„Jörðin skalf öll og pipraði af ótta“

Á einni viku hefur land við fjallið Þorbjörn risið um meira en þrjá sentí­metra. Það er þó alls ekki ávísun á eld­gos. „Jörðin skalf öll og pipraði af ótta; himin ok skýin grétu,“ segir í lýs­ingum á Reykja­nes­eldum sem urðu á fyrri hluta þrett­ándu aldar.

Fjallið Þorbjörn til vinstri og jarðvarmavirkjunin á Svartsengi fyrir miðri mynd.
Fjallið Þorbjörn til vinstri og jarð­varma­virkj­unin á Svarts­engi fyrir miðri mynd. Mynd: Úr Íslensku eldgosavefsjánni

Hið óvenju­lega land­ris á Reykja­nesskag­anum, rétt vestan við fjallið Þorbjörn, sem mælst hefur frá 21. jan­úar, hefur haldið áfram og er nú orðið yfir þrír sentí­metrar þar sem það er mest. Vegna land­riss­ins og auk­innar jarð­skjálfta­virkni á svæð­inu var óvissu­stigi almanna­varna lýst yfir á föstu­dag. Það er enn í gildi.

„Ris heldur áfram með svip­uðum hætti, á svip­uðum stað og með svip­uðum hraða,“ segir Benedikt Ófeigs­son, jarð­eðl­is­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands, í sam­tali við Kjarnann. Hann bendir á að jarð­skjálftar séu algengir á þessum slóðum en að við­búið sé að land­risið valdi fleiri skjálftum.

Benedikt segir að atburðir síð­ustu daga bendi til kviku­söfn­unar, land­risið sé vís­bend­ing um það. „Við sjáum þenslu­merki, það er að aukast spenna eða þrýst­ingur. Við teljum að þetta sé kvika miðað við hvernig þetta lítur út þó að það séu aðrir mögu­leikar í stöð­unni.“

Í gær var komið fyrir mæli upp á Þorbirni og í dag er stefnt að því að setja upp fleiri GPS-mæla svo hægt sé að fylgj­ast enn betur með þró­un­inni. Í nótt mæld­ust nokkrir jarð­skjálftar tæpum tveimur kíló­metrum norður af Grinda­vík. Sá stærsti var 3,5 að stærð.

Alls óvíst er hvort að sú atburða­rás sem hófst með land­risi og jarð­skjálfta­hr­inu fyrir viku muni leiða til eld­goss. Mögulegt er að henni ljúki án frek­ari tíð­inda.

Gosið á landi og í sjó

Reykja­nesskag­inn er yngsti hluti Íslands. Hann er mjög eld­brunn­inn og dregur nafn sitt af all­miklu gufu- og leir­hvera­svæði, eins og segir í ítar­legri grein Magnúsar Á. Sig­ur­geirs­sonar jarð­fræð­ings í Nátt­úru­fræð­ingnum frá árinu 1995.

[links]Í sam­an­tekt Magnúsar og fleiri í Íslensku eld­fjalla­vefsjánni kemur fram að eld­stöðvakerfi Reykja­ness hafi verið í með­al­lagi virkt. Norð­ur­hluti þess renni inn í kerfi Svarts­engis en syðstu níu kíló­metr­arnir séu undir sjáv­ar­máli. Á nútíma (síð­ustu tíu þús­und árin eða svo) hafa þar orðið fleiri en fimmtán gos. Eldgos á landi hafa ein­kennst af hraun­flæði en í sjó hafa orðið „surtseysk sprengigos“ eins og það er orðað.

Frá land­námi hefur þrisvar sinnum gosið á Reykja­nesi, síð­ast á árunum 1211-1240 og eru þeir atburðir kall­aðir Reykja­nes­eldar. Á því tíma­bili gaus nokkrum sinnum, þar af urðu þrjú gos í eld­stöðvakerfi sem kennt er við Svarts­engi. Eldgosin voru hraun­gos á 1-10 kíló­metra löngum gossprungum. Gos­virkni á Reykja­nesi-Svarts­engi ein­kenn­ist af goslotum eða eldum sem geta varað í ára­tugi og má búast við goslotu á um 1100 ára fresti.

Í Reykja­nes­eldum urðu sam­an­lagt minnst sex gos með hléum og vörðu frá tveimur til tólf ára. Gos­virknin hófst í eld­stöðvakerf­inu Reykja­nesi og færð­ist svo í átt til Svarts­engis á seinni stigum eld­anna. Á Reykja­nesi mynd­að­ist eitt hraun en þrjú við Svarts­engi. „Surtseysk gos“ urðu í sjó við Reykja­nes í eld­unum og mynd­uðu fjögur gjósku­lög. Tvö þess­ara gjósku­laga hafa fund­ist á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í um 45 kíló­metra fjar­lægð, að því er fram kemur á Íslensku eld­fjalal­vefsjánni.

Reykja­nes­eldar tóku til alls vest­an­verðs Reykja­nesskag­ans. Sam­bæri­legir eldar voru einnig í gangi í Brenni­steins­fjöllum aust­ast á skag­anum á 10. öld. Á 12. öld urðu svo Krísu­vík­ur­eldar um mið­hluta skag­ans, líkt og fram kemur í grein Magnúsar.

Gjóska í allt að 100 kílómetra fjarlægð

Allmörg neð­an­sjáv­ar­gos hafa orðið á Reykja­nes­hrygg síð­ustu aldir. Öflugt gos varð suður af Eld­eyj­ar­boða árið 1783. Þá mynd­að­ist eyja sem hvarf þó stuttu síðar vegna ágangs sjávar. Á 19. öld er vitað um þrjú gos á þessum slóðum, segir í Íslensku eld­fjalla­vefsjánni, og á 20. öld­inni varð nokkrum sinnum vart við ólgu í sjó og gjósku­þústir sem lík­lega hafa verið af völdum lít­illa neð­an­sjáv­ar­gosa.

Stærsta þekkta gos á Reykja­nesi var sprengigos árið 1226. Í eld­fjalla­vefsjánni segir að gjóska úr því hafi borist með vindum til aust­urs og norð­aust­urs, þakið allan Reykja­nesskag­ann og fund­ist í jarð­vegi í allt að 100 kíló­metra fjar­lægð frá upp­tökum.

Þá segir að rit­aðar heim­ildir gefi í skyn að gjósku­fallið hafi valdið heilsu­bresti í búfé á nær­liggj­andi svæðum. Einnig kunni að hafa orðið jarð­vegseyð­ing á vest­ur­hluta Reykja­nesskaga. Lengd goss­ins er ekki þekkt en senni­lega hefur það varað í nokkrar vikur.

Í grein Magnúsar í Nátt­úru­fræð­ingnum kemur fram að heim­ildir geti um fjölda gosa í sjó undan Reykja­nesi eftir land­nám en aðeins eitt á landi. Í heim­ildum sé hins vegar hvergi sagt berum orðum að hraun hafi runnið á Reykja­nesi en helst er þó ýjað að því í frá­sögnum við árin 1210-1211.

Í Odd­verja­an­nál segir til dæmis: „Elldur wm Reyianes: Saurli fann Elldeyjar hinar nyo enn hinar horfnar er alla æfi haufdu stadit.“

Sé þessi setn­ing færð til nútíma­máls er hún á þá leið að Sörli Kolsson hafi fundið „Eldeyjar hinar nýju en að hinar hafi horfið er áður stóðu“.

Magnús bendir á að alls sé óvíst hvort eða hvernig þessi frá­sögn tengd­ist þeirri Eldey sem við sjáum í dag en ekk­ert úti­loki að hún sé frá þessum tíma.

Í öðrum frá­sögnum af gosum í sjó á 13. öld er ávallt talað um eld­gos eða elda í sjó við eða fyrir Reykja­nesi. Það bendir, að mati Magnúsar, ótví­rætt til goss í sjó.

Í Páls sögu bisk­ups segir við árið 1211: „Jörðin skalf öll og pipraði af ótta; himin ok skýin grétu, svá at mik­ill hlutr spillt­ist jarðar ávaxt­ar­ins, en him­in­tún­glin sýndu dauða­tákn ber á sér, þá náliga var komit at hinum efstum lífs­stundum Páls bisk­ups, en sjór­inn brann ok fyrir land­inu þá; þar sem hans bisk­ups­dómur stóð yfir sýnd­ist náliga allar höfut­skepnur nokkut hrygð­ar­mark á sér sýna frá hans frá­falli“.

Magnús útskýrir í grein sinni að þegar sagt er að him­in­tunglin sýni á sér dauða­tákn sé vel hugs­an­legt að þar sé vísað til móðu í lofti sem gjarnan er fylgi­fiskur hraun­gosa og að sól og tungl hafi af þeim sökum sýnst rauð.

„Mik­il­vægt hlýtur að telj­ast að þekkja eðli og hætti eld­virkn­innar á Reykja­nesi vegna hinnar ört vax­andi byggðra og umsvifa manna á Suð­ur­nesjum,“ skrif­aði Magnús í grein sinni árið 1995. „Víst má telja að komi upp hraun á Reykja­nesi í náinni fram­tíð verða mann­virki þar í veru­legri hættu og af gjósku­gosi við strönd­ina getur, auk tjóns á mann­virkjum, orðið veru­leg röskun á sam­göngum í lofti, á landi og í sjó.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðhræringar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár