„Þetta virðist gerast í mestu rólegheitum“

Þrjú gosop hafa opn­ast á miðjum kviku­gang­inum á Reykja­nesi og við hann eru göngu­leiðir að gos­s­töðv­unum. „Það verður að minna á að eld­gos eru hættu­leg í eðli sínu,“ segir Ásta Rut Hjart­ar­dóttir jarð­eðl­is­fræð­ingur.

Ásta Rut Hjartardóttir jarðeðlisfræðingur hefur undanfarna mánuði kortlagt sprungur á Reykjanesi á þeim slóðum sem síðan fór að gjósa.
Ásta Rut Hjart­ar­dóttir jarð­eðl­is­fræð­ingur hefur und­an­farna mán­uði kort­lagt sprungur á Reykja­nesi á þeim slóðum sem síðan fór að gjósa. Mynd: Úr einkasafni

Fyrst tróð hún sér upp á einum stað. Nokkru síðar á öðrum. Og svo enn einum. Jarð­eld­arnir í Fagra­dals­fjalli eru allt að því kurt­eis­is­legir – svo góðan stað hefur kvikan glóð­heita úr iðrum jarðar fundið sér til að vella upp á yfir­borðið, fjarri byggð og mann­virkjum. Fyllt einn dal. Síðan tekið að renna allt að því mjúk­lega í fagur app­el­sínugulri á, hraun­elfi, niður í þann næsta. En þó að hún hafi ekki gert ákveðið boð á undan sér, lít­ill órói mælst, rétt áður en hún þrýsti sér upp í gegnum jarð­skorpuna, kemur stað­setn­ing hinna þriggja goss­taða jarð­vís­inda­mönnum ekki á óvart.

Við vitum öll hvað gekk á í aðdrag­and­anum. Hvernig jörðin skalf, eins og svæðið væri að hrista sig fyrir átök, og hvað gervi­tungla­myndir og aðrar rann­sóknir höfðu leitt í ljós: Þarna hafði mynd­ast kviku­gangur á litlu dýpi, lík­lega um átta kíló­metra langur. Fullur af kviku djúpt neðan úr sjálfum möttli plánet­unnar okkar. Hún fann sér svo leið­ina upp í gegnum sprungur.

[adspot]

„Við byrj­uðum að skoða sprungur sem mynd­ast höfðu fyrir gosið,“ segir Ásta Rut Hjart­ar­dóttir, jarð­eðl­is­fræð­ingur og rann­sókn­ar­sér­fræð­ingur hjá Jarð­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands. Hún hefur gengið um svæðið þvert og endi­langt síð­ustu vikur og rýnt í jarð­veg­inn.

Reykja­nesið er allt mjög eld­brunnið og sprungið, svo­kall­aða sprungu­sveima er þar að finna. Ekki hafði gosið þar í tæp 800 ár og ekki í Fagra­dals­fjalli í að minnsta kosti 6.000 ár. En í tengslum við jarð­skjálfta­hrin­una miklu fyrr á árinu höfðu Ásta og sam­starfs­menn hennar fundið fullt af litlum sprungum sem voru rétt sjá­an­legar á yfir­borð­inu. Sprung­urnar fund­ust á nokkuð stóru svæði, allt frá Sýl­inga­felli norðan við Grinda­vík og austur fyrir gos­s­töðv­arnar, eða á því svæði sem jarð­skjálft­arnir áttu upp­tök sín. „Þær tengj­ast kvik­unni óbeint. Kviku­gang­ur­inn við Fagra­dals­fjall mynd­ast þegar kvika þrýstir sér grunnt inn í jarð­skorpuna. Þar sem kvikan tekur pláss, þá ýtir hún land­inu frá sér sitt hvorum megin við sig, og ýtir þar með á gamlar sprungur fjær kviku­gang­inum. Þessar sprungur gáfu sig, sem olli jarð­skjálftum og sprungu­hreyf­ingum á mun stærra svæði en því sem kviku­gang­ur­inn nær yfir,“ útskýrir Ásta.

Svo litlar eru sumar sprung­urnar sem urðu á vegi Ástu að þjálfað auga þarf til að finna þær. Til að sjá hvort að um t.d. frost­hreyf­ingu sé að ræða eða eitt­hvað annað og meira. „Já, það þarf að vita að hverju maður er að leita þegar þær eru svona litlar,“ segir hún. Sumar þeirra hafa aðeins verið nokkrir milli­metrar eða sentí­metrar á breidd. „Þetta eru í raun jafn­vel aðeins örfínar línur í jarð­veg­inum en þegar maður eltir þær þá sést að þær mynda sprungu­mynstur á stærra svæði“.

Kviku­gang­ur­inn sem upp­götv­að­ist með alls konar mæl­ingum úr lofti og af landi liggur í norð­austur-suð­vestur stefnu. „Og það er í raun­inni þannig að miðjan á honum er nálægt því svæði sem fyrst gaus á í Geld­inga­dölum. Gosið kom hrein­lega upp beint ofan á honum.“

Sömu sögu er að segja um hina tvo stað­ina sem nú gýs á. Þeir eru ofan á miðju kviku­gangs­ins. Þar höfðu sést sprungur sem kviku­gang­ur­inn hefur vænt­an­lega gert er hann ólm­að­ist undir.

En af hverju fann kvikan sér nýjan stað til að koma upp – var Geld­inga­dalur ekki nóg fyrir hana?

„Þetta er góð spurn­ing,“ segir Ásta og hlær. „Ein skýr­ingin kann að vera sú að gíg­ur­inn byggð­ist upp og vökva­þrýst­ing­ur­inn varð hærri og því var þetta orðið of erfitt fyrir hana og hún varð að leita sér að nýjum leiðum.“

Engar nýjar sprungur sjáanlegar

Fjöl­margir, lík­lega tug­þús­undir manna, hafa lagt leið sína að gos­s­töðv­unum frá því að það byrj­aði að gjósa. Margir hafa vakið athygli á því að göngu­leið­irnar liggi ofan á eða skammt frá kviku­gang­inum sjálfum. Ásta bendir á að lík­lega séu grynnstu hlutar gangs­ins þar þegar storkn­aðir svo ólík­legt verði að telj­ast að kvika komi þar upp, nema að kviku­gang­ur­inn leiti aftur þangað. Hún segir að göngu­leiðin liggi vissu­lega nálægt kviku­gang­inum en að engar nýjar sprungur líkar þeim sem sem sáust norðan gossprung­unnar í Geld­inga­dölum hafi sést sunnan megin við gos­s­töðv­arnar, á þeim slóðum sem ein helsta göngu­leiðin liggur. „En það verður að minna á að eld­gos eru hættu­leg í eðli sínu,“ segir hún.

Getur séð jörðina opnast

Hún minnir líka á að nýjum goss­tað fylgi eng­inn skarkali. Þú gætir bók­staf­lega staðið fyrir framan hann og séð jörð­ina opn­ast. Engin stór­kost­leg læti verða sem gefa merki um hvað sé að fara að ger­ast. „Þetta opn­ast rólega, fyrst kemur gas upp og svo vellur kvikan ein­fald­lega upp. Þetta virð­ist ger­ast í mestu róleg­heitum,“ segir Ásta. „Ég elska vef­mynda­vélar,“ bætir hún hlæj­andi við en það er einmitt á þeim sem sást vel hvernig gosið hófst á þriðja staðnum í fyrra­kvöld.

En hvað gæti svo gerst? Munu fleiri goss­taðir opn­ast?

Svarið við því er ekki ein­falt. Ekki heldur svarið við spurn­ing­unni hvort að önnur eld­gosa­kerfi á Reykja­nesskaga muni nú vakna af nokk­urra alda Þyrni­rós­ar­svefni. „Ef við skoðum sög­una þá segir hún okkur að það hafi verið ákveðin til­hneig­ing til að kerfin verði virk á svip­uðum tíma,“ segir Ásta og bætir við að í jarð­sög­unni geti orða­lagið „svip­aður tími“ þýtt ára­tugir eða jafn­vel aldir. „Það gæti orðið þögn á svæð­inu eftir þetta gos en svo gæti aftur byrjað að gjósa síðar og þá ann­ars staðar. En já, sagan bendir til þess að þegar eitt kerfið byrjar þá rumski hin.“

Lítið og fallegt gos

Gos­s­töðv­arnar í dag eru á mjög „heppi­legum stað“ ef svo má að orði kom­ast. „Fyrst það fór að gjósa á Reykja­nesi er þetta einn af skástu stöð­unum,“ segir Ásta. Á skag­anum séu marg­vís­leg mann­virki og mik­il­vægir inn­viðir sem ekki séu í hættu vegna þessa goss. „Svo er þetta lítið og fal­legt gos.“

Núna liggur snjó­föl yfir svæð­inu og því erfitt og jafn­vel ómögu­legt að greina nýjar sprungur ef ein­hverjar eru. „En við munum halda áfram að fylgj­ast með og kort­leggja um leið og færi gefst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðhræringar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár