Víðir „pínu með í maganum“

Þó að það sé lítið og á lygi­lega hent­ugum stað hvað varðar hraun­rennsli og gasmengun, er eld­gosið í Geld­inga­dal ekki hættu­laust. Fólk streymir nú á vett­vang til að berja það augum. Hraunið getur flætt marga metra á stuttum tíma og nýjar sprungur opn­ast.

Þessir menn voru með leyfi til að fara að eldgosinu enda þar á vegum Gæslunnar.
Þessir menn voru með leyfi til að fara að eld­gos­inu enda þar á vegum Gæsl­unnar. Mynd: Landhelgisgæslan

Eldgosið í Geld­inga­dal við Fagra­dals­fjall, sem hófst á níunda tím­anum í gær­kvöldi, er þegar í rénun. Í myrkr­inu í gær sýnd­ist vís­inda­mönnum gjósa á um 500-700 metra sprungu en í dags­birt­unni hefur komið í ljós að hún er um 180 metrar á lengd og hefur aldrei verið lengri en það. „Með fjöllin og dal­ina til sam­an­burðar í morgun er þetta heldur minna,“ sagði Björn Oddsson, jarð­vís­inda­maður hjá almanna­vörnum í við­tali við RÚV í hádeg­inu.

Fleiri stærðir hafa verið að skýr­ast eftir því sem birta tók af degi. Gas sem upp kemur var talið vera um 160 kíló á sek­úndu í gær en nú er talið að magnið sé um 30 kíló. Gosið er mikið sjón­ar­spil engu að síður og hefur dregið fjölda manns að í dag sem veldur Víði Reyn­is­syni, yfir­lög­reglu­þjóni almanna­varna nokkrum áhyggjum. „Ég er pínu með í mag­anum, ég verð að við­ur­kenna það,“ sagði hann í beinni útsend­ingu í hádeg­is­fréttum úr stjórn­stöð­inni í Skóg­ar­hlíð. Hann seg­ist sjást á vef­mynda­vélum að margt fólk sé komið á stað­inn og nokkuð nálægt. Við­bún­að­ar­stigið var fært af neyð­ar­stigi niður á hættu­stig í morgun. Svæðið er því ekki lokað en Víðir ítrekar að það geti verið stór vara­samt að fara þar um. Sagði hann hraun­rennslið geta „stokkið fram“ um marga metra á stuttum tíma. Það geti opn­ast nýjar sprungur, jafn­vel í hund­ruð metra fjar­lægð frá þeim stað sem nú gýs á.

[adspot]

Frey­steinn Sig­munds­son jarð­eðl­is­fræð­ingur segir að það sem gerst hafi við Fagra­dals­fjall sé að op hafi komið á kviku­gang­inn langa sem byrj­aði að mynd­ast fyrir nokkrum vikum og að „kvikan leki upp“.

Björn Oddsson var meðal þeirra vís­inda­manna sem flaug yfir gos­s­töðv­arnar í gær. Hann segir gíg­ana sem höfðu mynd­ast þá hafa sést vel sem og hrauntung­urnar sem renna frá þeim. Nú er kviku­stróka­virknin orðin mjög lítil og að lítil sem engin aska mynd­ist. „Við verðum að hafa það í huga að meðan þessi virkni er þá er það ekki úti­lokað að það opn­ist aðrar sprungur á öðrum stöðum.“

Elín Björk Jón­as­dóttir veð­ur­fræð­ingur fylgist nú náið með gasmæl­ingum vegna goss­ins. Hún sagði í hádeg­is­fréttum RÚV að verið væri að end­ur­reikna líkön um gas­dreif­ing­una en að allt benti til þess að litlar líkur væru á því að gös myndu valda hættu í byggð og þar með talið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þó að vind­átt sé að breyt­ast. „En,“ sagði hún, „hættan er ekki lítil eða hverf­andi við gos­s­töðv­arnar og fólk má alls ekki halda að það sjái gasið.“ Þeir gufustrókar sem sjá­ist séu einmitt aðal­lega það: Vatns­gufa. Gösin eru hins vegar ósýni­leg og geta auð­veld­lega safn­ast í lægðir í lands­lag­inu.

En hvert gæti fram­haldið orðið?

Það er spurn­ingin sem brennur á öllum en erfitt er að svara með nákvæmni. Frey­steinn Sig­munds­son sagði að ekki væri hægt að segja til um það á þess­ari stundu hvort að gosið hrein­lega logn­ist fljótt út af. Eldgosið væri beint fram­hald af því sem hefði verið að eiga sér stað á Reykja­nesi síð­ustu vikur. Magn kvik­unnar sem væri að koma upp á yfir­borðið væri um það bil það sama og vís­inda­menn telja að hafi verið að flæða inn í kviku­gang­inn á svæð­inu. „Við verðum að bíða og sjá,“ sagði hann við RÚV í hádeg­inu. „Þetta getur haldið svona áfram. Það eru engar vís­bend­ingar um að hraun­rennsli sé að fara að marg­fald­ast.“

Síðustu þrjár vikur hafa ein­kennst af miklum jarð­skjálftum á Reykja­nesi. Þetta hefur verið tíma­bil spennu, segir Frey­steinn. Og undir niðri var að mynd­ast átta kíló­metra langur kviku­gangur. En nokkrum dögum fyrir gosið dró úr skjálfta­virkni. Því sé spurn­ing hvort að spennan í jarð­skorp­unni hafi þegar verið losuð. Búast má við því að draga muni úr skjálfta­virkni. En af þrýst­ingnum var nóg og þess vegna náði kvikan gló­andi upp á yfir­borðið.

Þegar litið er til sög­unnar eru dæmi um eld­gosa­hrinur, sann­kall­aða jarð­elda, sem hófust með litlum gosum sem þessum. Kröflu­eldar eru gott dæmi um það. En end­ur­tekin eld­gos urðu svo á svæð­inu næstu fimmtán árin á eftir. Þetta rifj­aði Páll Ein­ars­son jarð­eðl­is­fræð­ingur upp í Rík­is­út­varp­inu í nótt. „Þetta er bara einn kafli í langri fram­halds­sögu, hún er þegar orðin fimmtán mán­aða löng,“ sagði hann. „Kafl­arnir hafa orðið æsi­legri eftir því sem fram hefur liðið eins og í góðri fram­halds­sögu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fagradalsfjall

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár