Segir nýtt eldgosatímabil hafið á Reykjanesskaga

Magnús Tumi Guð­munds­son jarð­eðl­is­fræð­ingur segir eld­gosið í Geld­inga­dal tölu­verð tíð­indi. „Við verðum að túlka þetta sem svo að það sé hafið nýtt eld­gosa­tíma­bil á skag­anum.“ Hann segir þó engar ham­farir að hefj­ast.

Hraunið er mest tíu metrar á þykkt og í samanburði við önnur eldgos hér á landi er eldgosið í Geldingadal mjög lítið.
Hraunið er mest tíu metrar á þykkt og í sam­an­burði við önnur eld­gos hér á landi er eld­gosið í Geld­inga­dal mjög lítið. Mynd: Veðurstofa Íslands

„Við erum að fylgj­ast með eld­gosi sem kemur upp fyrir um miðju gangs­ins sem hefur verið að mynd­ast síð­ustu vik­urnar sam­hliða mik­illi jarð­skjálfta­hr­inu. Und­an­farna sól­ar­hringa höfum við séð að það dró úr skjálfta­virkn­inni og það er eins og kvikan hafi smám saman verið að fylla inn í þetta pláss og svo er yfir­þrýst­ingur sem veldur því að hún kemur þarna út í litlu gosi.“

[links]Þetta sagði Kristín Jóns­dóttir hóp­stjóri nátt­úru­vá­rsviðs Veð­ur­stof­unnar á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Hún sagði lík­lega ekki ástæðu til að halda að í kjöl­far eld­goss­ins verði mikil jarð­skjálfta­virkni. Vís­inda­menn ættu síður von á stærri skjálftum. „ En áfram er fylgst með breyt­ingum og sömu­leiðis í aflögun sem við mælum með gervi­tunglum og gps-mæl­ingum.“

Í ljósi sög­unnar má ætla að langt tíma­bil jarð­hrær­inga sé framundan. Síðast gaus á Reykja­nesi fyrir 781 ári en mun lengra er liðið frá því að eld­gos varð í Fagra­dals­kerf­inu. Að minnsta kosti 6.000 ár eru liðin frá því.

[adspot]

Magnús Tumi Guð­munds­son jarð­eðl­is­fræð­ingur sagði eld­gosið tölu­verð tíð­indi því ekki hafi gosið á Reykja­nesskaga í tæp­lega 800 ár. „Verðum að túlka þetta sem svo að það sé hafið nýtt eld­gosa­tíma­bil á skag­anum.“ Hann sagði þó engar ham­farir að hefj­ast en engu að síður væru þessar jarð­hrær­ingar eft­ir­tekt­ar­verðar. „Þetta er eitt minnsta gos sem sögur fara af, ef svo má að orði kom­ast,“ sagði hann.

Hraunið er mest tíu metrar á þykkt. Um 0,2-0,3 milljón rúmmetrar af kviku hafa komið upp á þeim 16 klukku­stundum sem liðnar eru frá upp­hafi goss­ins og rennslið því „verið svipað og í Elliða­ánum,“ sagði Magnús Tumi og benti á að gosið væri 3-4 sinnum minna en það sem varð á Fimm­vörðu­hálsi og aðeins um einn hund­raðs­hluti af Holu­hrauns­gos­inu.

Þessu gosi mætti ef til vill líkja við fyrsta gosið í Kröflu­eldum. Stað­setn­ing þess í Geld­inga­dal er mjög hag­stæð. „Þetta er eins og bað­ker og það lekur aðeins í baðkarið. Í sjálfu sér ekki alvar­legur atburður sem slíkur.“

En atburð­ur­inn er ekki búinn og enn á eftir að koma í ljós hvernig hann þró­ast.

Eitruðu gösin sem eru að koma upp í gos­inu geta sest niður í dældir í Geld­inga­dal og nágrenni, dal sem er í raun lokuð dæld. Og ef það er logn „þá verður þetta dauða­gildra,“ sagði Magnús Tumi. Brýndi hann fyrir fólki að nálg­ast gos­s­töðv­arnar af virð­ingu.

Um 30 kíló af gasi á sekúndu

Elín Björk Jón­as­dóttir, veð­ur­fræð­ingur sagði að um 30 kíló af gasi á sek­úndu kæmu upp í eld­gos­inu. Það er mun minna en gerð­ist í Holu­hrauns­gos­inu til dæmis. Ekki er að hennar sögn hætta á gasmengun í byggð að minnsta kosti næstu daga.

Benti hún á að veðrið væri að snú­ast í suð­vest­an­átt og jafn­vel slyddu. „Þannig að tals­verð vos­búð er hrein­lega fyrir gang­andi á þessum slóðum og ég mæli ekki sér­stak­lega með því að fólk leggi í þessa 6-7 tíma göngu.“ Þeir sem ætli sér að svæð­inu þurfi að hafa gasmæla með­ferðis, ekk­ert vit væri í öðru.

[adspot]

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn biðl­aði til þeirra sem ætl­uðu sér að skoða gosið að fara var­lega og benti á að mun betri aðstæður væru heima í stofu til að fylgj­ast með því. Á vef­mynda­vélum mætti sjá að nýjar lænur af hrauni mynd­ist annað slagið og renni hratt fram. Þá sýndi reynslan frá Fimm­vörðu­hálsi að nýjar sprungur geti opn­ast og því brýnt að „fara mjög var­lega“.

Hann hvatti fólk „til að poppa og horfa á þetta heima í vef­mynda­vél­unum“.

Á fund­inum voru jarð­vís­inda­menn­irnir spurðir um fram­haldið. Magnús Tumi sagði lík­leg­ast að gosið hægi á sér og fjari út. En það gæti staðið í ein­hverja daga og jafn­vel vikur. „Við vitum það ekki“. Svo gæti ný umbrota­hrina haf­ist seinna. „En miðað við sög­una á skag­anum mun þetta ekki ger­ast rosa­lega hratt.“

Síðustu eldar á Reykja­nesskaga áttu sér stað á 12. öld. Í þeim mynd­uð­ust hraunin sem Bláa lónið og orku­verið í Svarts­engi standa á. Þá runnu þrjú hraun á 10-15 ára tíma­bili.

Annað gos­tíma­bil var á 10. öld. Þá gaus 6-8 sinnum á um 50-100 árum. Síðasta hrinan á Reykja­nesi byrj­aði með tveimur gosum í Krýsu­vík­ur­kerf­inu um árið 800. „Síðan ger­ist ekk­ert í hund­rað ár.“

Þegar talað er um síð­ustu gos­hr­inu þá er verið að tala um tíma­bil sem stóð yfir í um 400 ár. Í henni kom um 50 pró­sent meira af gos­efnum en í Holu­hrauns­gos­inu einu saman. Svo að umfangið að því leyt­inu til var ekki mikið. „Við höfum enga hug­mynd um hvernig atburða­rásin verður. Við vitum hins vegar í stórum dráttum hvernig næstu aldir verða,“ sagði Magnús Tumi.

Kristín sagði að miðað við stöð­una í augna­blik­inu væri lík­leg­ast að gosið héldi áfram í ein­hverja daga. „Þá er ekki úti­lokað að það ger­ist eitt­hvað meira. Komi upp meiri kvika eða það verði gos ein­hvers staðar ann­ars staðar á sprung­unni. Þetta eru þættir sem við fylgj­umst með næstu daga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fagradalsfjall

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár