Líklegt að kvikuhlaup sé í gangi

4,2 stiga skjálfti varð norður af Geld­inga­dölum í nótt. Var­færnar yfir­lýs­ingar um enda­lok eld­goss­ins voru gefnar út fyrir örfáum dögum en nú segja sér­fræð­ingar ekki ólík­legt að kviku­hlaup sé í gangi.

Eldgosið í Geldingadölum stóð í námkvæmlega sex mánuði.
Eldgosið í Geld­inga­dölum stóð í nám­kvæm­lega sex mán­uði. Mynd: Golli

Um klukkan 18 í gær­kvöldi hófst jarð­skjálfta­hrina um 2-4 kíló­metra norð­austur af Geld­inga­dölum. Virknin jókst svo til muna laust eftir mið­nætti og er enn mikil með 1-10 skjálfta á mín­útu. Þegar líða tók á nótt­ina færð­ist virknin að eld­stöðv­unum í Geld­inga­dölum. Ekki er ólík­legt að kviku­hlaup sé í gangi sem þýðir að kvikan er að fær­ast lárétt í jarð­skorp­unni. Engin merki eru um gos­óróa.

[links]

Fyrir um þremur sól­ar­hringum taldi Veð­ur­stofa Íslands að atburð­unum við Fagra­dals­fjall, líkt og sagði í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­innar, væri lokið þótt áfram yrði fylgst grannt með. Þá voru sléttir þrír mán­uðir liðnir frá því að hraun sást renna á svæð­inu. „Við munum því áfram fylgj­ast vel með virkn­inni á Reykja­nesskaga, en við getum sagt að þessum til­tekna atburði sem hófst með eld­gosi 19. mars við Fagra­dals­fjall er lokið, hver sem þró­unin á svæð­inu verður,“ var haft eftir Söru Barsotti, fag­stjóra eld­fjalla­vár á Veð­ur­stof­unni. „Það eina sem vitað er með vissu er að nátt­úran fer sínu fram.“

Ekki ætti að koma neinum á óvart að virkni sé að aukast aftur á svæð­inu enda þekkt að slíkt ger­ist í lotum á Reykja­nesi.

[adspot]

Frá því jarð­skjálfta­hrina hófst í gær og þar til um klukkan sex í morgun höfðu um 1.100 skjálftar mælst, þar af 90 af stærð­inni tveir eða þaðan af stærri. Stærsti skjálft­inn sem mælst hefur til þessa í hrin­unni var af stærð 4,2 og mæld­ist klukkan 04:25 norður af Geld­inga­dölum. Hann fannst víða á Reykja­nesi, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Akranesi og Borg­ar­nesi.

Eins og nefnt var í til­kynn­ingu frá Veð­ur­stof­unni fyrr í vik­unni mælist þensla á svæð­inu og unnið er að útreikn­ingum og lík­ana­gerð svo hægt sé að túlka mæl­ing­arnar, en nið­ur­stöður liggja ekki fyrir. „Aflög­un­ar­mæl­ingar sýna að kviku­söfnun er í gangi í jarð­skorp­unni við Fagra­dals­fjall og erfitt er að spá fyrir um hvert fram­haldið verður,“ stendur í til­kynn­ingu sem Veð­ur­stofan gaf út snemma í morgun.

Vegna jarð­skjálfta­hrin­unnar hefur Veð­ur­stofan breytt flug­lita­kóða í app­el­sínugulan.

Eldgos hófst í Geld­inga­dölum 19. mars á þessu ári. Hraun­flæði sást síð­ast 18. sept­em­ber og því ljóst að gos­hrinan stóð í nákvæm­lega hálft ár.

Þann 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn var greint frá því að Rík­is­lög­reglu­stjóri í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­nesjum hefði aflýst óvissu­stigi vegna eld­goss­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fagradalsfjall

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár