„Fólk er alveg hreint trítilótt“ í að komast á gosstöðvarnar

„Þegar þús­undir manna eru að snerta sama kað­al­inn þá minnir það mig ill­þyrmi­lega á Aust­ur­ríki og Ischgl,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir um traffík­ina við gos­s­töðv­arnar.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Ég hef áhyggjur af þessu og hef viðrað þær margoft,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í við­tali í morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun. „Ef að fólk er að hóp­ast mikið saman og er í einni kös á stíg­unum og við gos­s­töðv­arnar þá er þar aug­ljós­lega aukin smit­hætta.“

Hann hefur rætt við almanna­varnir og lög­regl­una um hvort eitt­hvað sé hægt að gera í mál­inu. „Fólk er alveg hreint trít­i­lótt að kom­ast þarna,“ segir hann. „Það er álit yfir­valda á staðnum að það sé nán­ast von­laust að stöðva og banna för fólks. Það fari þá bara aðrar leiðir, yfir erf­ið­ari staði. Klöngrist yfir hraunið og gæti lent í öðrum vand­ræðum. Þannig að af tvennu illu eru menn að reyna að hafa ein­hverja stjórn á þessu en það er mjög erfitt. En ég deili sann­ar­lega þessum áhyggjum og hef biðlað til fólks að vera ekki að fara þarna þegar það er mikið af fólki og ef það fari að það gæti að öllum grund­vall­ar­at­riðum.“

Spurður hvort að far­sótt­ar­þreyta Íslend­inga sé orðin mikil og þeir hættir að hlusta á varn­að­ar­orð sótt­varna­læknis seg­ist Þórólfur telja svo vera. „Ég held að gosið yfir­taki allt. Ég skil það mjög vel. Þetta er algjört sjón­ar­spil.“

En í því að fara að gos­inu felist ákveðin áhætta. „Þegar þús­undir manna eru að snerta sama kað­al­inn þá minnir það mig ill­þyrmi­lega á Aust­ur­ríki og Ischgl, þar sem allir smit­uð­ust á einum bar þar sem voru sam­eig­in­legir snertifletir. Maður myndi helst ekki vilja sjá það ger­ast aftur.“

Síðustu daga hafa borist fréttir af því að fólk komi til lands­ins og fari beint á gos­s­töðv­arnar og virði þar af leið­andi ekki sótt­kví á milli ski­manna.

Þórólfur segir dæmi þegar sýna að fólk sem ekki virði sótt­kví hafi komið af stað hópsmiti inn­an­lands. Það þurfi aðeins einn smit­aðan ein­stak­ling til að koma af stað far­aldri. „Allt sem við erum að sjá er afleið­ing af því að fólk er ekki að fara eftir leið­bein­ingum. Meðvitað eða ómeð­vitað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár