„Óvenju hratt“ landris vegna mögulegrar kvikusöfnunar við fjallið Þorbjörn

Land á Reykja­nesi hefur risið um allt að tvo sentí­metra á nokkrum dögum, jarð­skjálftar hafa orðið og hefur óvissu­stigi nú verið lýst yfir. Síðast gaus á svæð­inu á þrett­ándu öld. Íbúa­fundir verða haldnir á morgun.

Landris hefur orðið vestan við fjallið Þorbjörn.
Landris hefur orðið vestan við fjallið Þorbjörn. Mynd: Visitreykjanes.is

Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur lýst yfir óvissu­stigi almanna­varna vegna vís­bend­inga um kviku­söfnun vestan við fjallið Þorbjörn á Reykja­nesskaga. Jarð­skjálfta­hrina hefur verið í gangi á svæð­inu á sama tíma.

Und­an­farna daga hefur land­ris og aukin jarð­skjálfta­virkni mælst á Reykja­nesskaga og telja jarð­vís­inda­menn Veð­ur­stofu Íslands og Jarð­vís­inda­stofn­unar HÍ mögu­legt að um sé að ræða kviku­söfnun vestan við Þorbjörn. Ekki er þó sé úti­lokað að aðrar ástæður geti verið fyrir virkn­inni.

Samhliða hefur Veð­ur­stofa Íslands fært lita­kóða fyrir flug á gult sem þýðir að eld­stöð sýni merki um virkni umfram venju­legt ástand.

Í næsta nágrenni fjalls­ins Þor­bjarnar er að finna bæði íbúa­byggð og atvinnu­starf­semi. Þar er til að mynda Bláa lónið, Svarts­engi og höf­uð­stöðvar HS orku svo dæmi séu tekin.

Í frétt á vef Veð­ur­stof­unnar segir að land­risið sé óvenju hratt og í henni eru raktar nokkrar sviðs­myndir, þ.e. hvað mögu­lega gæti gerst nú í fram­hald­inu. Ein þeirra er að kviku­söfn­unin hætti og þetta leiði ekki til frek­ari atburða. Önnur er sú að hraun­gos verði.

Síðast gaus á þessum slóðum á þrett­ándu öld.

Íbúa­fundur verður hald­inn í íþrótta­hús­inu Grinda­vík kl. 16 á morgun, mánu­dag 27. jan­úar, þar sem vís­inda­menn frá Veð­ur­stof­unni og Jarð­vís­inda­stofnun munu gera grein fyrir stöð­unni auk full­trúa frá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum.

Óvissu­stigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitt­hvað sé að ger­ast af nátt­úru- eða manna­völdum, sem á síð­ari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað.

Landris hefur mælst frá 21. jan­úar og virð­ist miðja þess vera á Reykja­nesskag­anum rétt vestan við fjallið Þorbjörn, segir í frétt Veð­ur­stof­unnar. Land­risið er óvenju hratt eða um 3-4 milli­metrar á dag og í heild­ina er það orðið um tveir sentí­metrar þar sem það er mest.

Land­risið er lík­leg­ast vís­bend­ing um kviku­söfnun á nokk­urra kíló­metra dýpi. Ef skýr­ingin er kviku­söfnun er hún enn sem komið er mjög lítil. Þetta er nið­ur­staða sam­ráðs­funda vís­inda­manna sem haldnir voru á Veð­ur­stof­unni nú í morgun og eftir hádegi.

Atburðarásin óvenjuleg fyrir svæðið

Nákvæmar mæl­ingar á jarð­skorpu­hreyf­ingum á Reykja­nesskag­anum ná yfir tæp­lega þrjá ára­tugi. Á því tíma­bili hefur sam­bæri­legur land­ris­hraði ekki mælst. Atburða­rásin er því óvenju­leg fyrir svæðið ef miðað er við reynslu und­an­far­inna ára­tuga.

Land­risið mælist sam­fara jarð­skjálfta­hr­inu austan við ris­miðj­una (norð­austan við Grinda­vík) sem mælst hefur frá 21. jan­úar. Stærstu skjálft­arnir mæld­ust 22. jan­úar og voru 3,7 og 3,6 að stærð og fund­ust vel á Reykja­nesskag­anum og allt norður í Borg­ar­nes.

Dregið hefur úr hrin­unni síð­ustu daga. Jarð­skjálfta­hrinur eru algengar á svæð­inu og þessi hrina getur ekki talist óvenju­leg ein og sér, segir enn­fremur í frétt Veð­ur­stof­unnar. Það að land­ris mælist sam­fara jarð­skjálfta­hrin­unni, gefur til­efni til þess að fylgj­ast sér­stak­lega náið með fram­vindu á svæð­inu.

Dæmi um hraungos úr sprungum á 13. öld

Land­risið mælist á fleka­skilum og innan eld­stöðvakerfis Svarts­engis sem er ýmist talið sjálf­stætt eld­stöðvakerfi eða talið vera hluti stærra kerfis sem kennt er við Reykja­nes. Síðast gaus í kerf­inu í Reykja­nes­eldum sem stóðu yfir með hléum á tíma­bil­inu 1210-1240 en á því tíma­bili gaus nokkrum sinnum þar af urðu þrjú eld­gos í Svarts­eng­is­kerf­inu.

Eldgosin voru hraun­gos á 1-10 km löngum gossprungum en engin sprengigos eru þekkt í Svarts­eng­is­kerf­inu. Stærsta gos í hrin­unni á 13. öld mynd­aði Arn­ar­set­urs­hraun (um 0,3 km3 og 20 km2). Algeng­ast er að gos af þess­ari gerð standi yfir í nokkra daga, uppí nokkrar vikur.

Jarð­skjálfta­virkni er mjög algeng á svæð­inu og teng­ist fleka­hreyf­ingum, jarð­hita­virkni og hugs­an­lega inn­skota­virkni. Stærstu skjálftar sem mælst hafa á vest­ur­hluta Reykja­nesskag­ans eru um 5,5 að stærð.

Mögulegar sviðsmyndir

Atburða­rásin hefur aðeins staðið yfir í nokkra daga og óvíst hvort að hún leiði til frek­ari atburða sem hafi áhrif, segir í frétt Veð­ur­stof­unnar. Út frá þeim upp­lýs­ingum sem þegar liggja fyrir eru eft­ir­far­andi sviðs­myndir mögu­legar án þess að hægt sé að segja til um hver þeirra er lík­leg­ust eða hversu hratt atburða­rásin mun þró­ast.

Ef land­ris stafar af kviku­söfnun:

Kviku­söfnun hættir mjög fljót­lega án frek­ari atburða.

Kviku­söfnun heldur áfram á sama stað og hraða í ein­hvern tíma án þess að til stærri atburða komi.

Kviku­söfnun heldur áfram og leiðir til gangainnskots.

Kviku­söfnun heldur áfram og leiðir til gangainnskots og eld­goss (hraun­goss á sprungu).

Kviku­söfnun veldur jarð­skjálfta­virkni með stærri skjálftum á þessu svæði (allt að M6).

Veð­ur­stofan hefur aukið eft­ir­lit með svæð­inu. Eins verður eft­ir­lit aukið með upp­setn­ingu fleiri mæli­tækja til að vakta og greina betur fram­vindu atburða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðskjálfti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár