Skjálftinn: Engar tilkynningar um meiðsli á fólki eða tjón á mannvirkjum

Óvissu­stig almanna­varna hefur verið í gildi á Reykja­nesi vegna land­riss á svæð­inu frá því í jan­úar.

Skjálftinn varð um fimm kílómetra vestur af Seltúni.
Skjálft­inn varð um fimm kíló­metra vestur af Seltúni. Mynd: Wikimedia Commons.

Jarð­skjálft­inn sem varð klukkan 13:43 í dag mæld­ist af stærð­inni 5,6 og varð í Núps­hlíð­ar­hálsi, um fimm kíló­metra vestur af Seltúni við vest­an­vert Kleif­ar­vatn. Samkvæmt til­kynn­ingu frá almanna­varn­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra fylgdu um 50 eft­ir­skjálftar í kjöl­farið og hefur þeim farið fjölg­andi.

[links]Engar til­kynn­ingar hafa borist um meiðsli á fólki eða tjón á mann­virkjum en skjálft­inn fannst þó víða á land­inu. Lögreglu hafa borist til­kynn­ingar um að myndir hafi fallið af veggjum og að smá­hlutir hafi dottið úr hillum.

Í til­kynn­ing­unni segir að almanna­varn­ar­deildin muni fylgj­ast vel með stöðu mála í sam­vinnu við lög­reglu­emb­ættin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á Suð­ur­nesjum og á Suð­ur­landi auk Veð­ur­stof­unnar. Lög­reglu­menn munu fara um svæðið, meðal ann­ars í Krýsuvík, til að kanna áhrif skjálft­ans.

Óvissu­stig almanna­varna hefur verið í gildi á Reykja­nesi vegna land­riss á svæð­inu í námunda við fjallið Þorbjörn síðan 26. jan­úar 2020. Það, og aukin jarð­skjálfta­virkni, hóf að mæl­ast 21. jan­úar.

Reykja­nesskag­inn, þar sem skjálft­inn varð, er yngsti hluti Íslands. Hann er mjög eld­brunn­inn og dregur nafn sitt af all­miklu gufu- og leir­hvera­svæði, eins og ­segir í ítar­legri grein Magn­úsar Á. Sig­ur­geirs­sonar jarð­fræð­ings í Nátt­úru­fræð­ingnum frá árinu 1995.

[adspot]Í sam­an­tekt Magn­úsar og fleiri í Íslensku eld­fjalla­vefsjánn­i kemur fram að eld­stöðvakerfi Reykja­ness hafi verið í með­al­lagi virkt. Norð­ur­hluti þess renni inn í kerfi Svarts­engis en syðstu níu kíló­metr­arnir séu undir sjáv­ar­máli. Á nútíma (síð­ustu tíu þús­und árin eða svo) hafa þar orð­ið fleiri en fimmtán gos. Eld­gos á landi hafa ein­kennst af hraun­flæði en í sjó hafa orðið „surtseysk sprengigos“ eins og það er orð­að.

Frá land­námi hefur þrisvar sinnum gosið á Reykja­nesi, síð­ast á árunum 1211-1240 og eru þeir atburð­ir ­kall­aðir Reykja­nes­eld­ar. Á því tíma­bili gaus nokkrum sinn­um, þar af urðu þrjú ­gos í eld­stöðvakerfi sem kennt er við Svarts­engi. Eld­gosin voru hraun­gos á 1-10 kíló­metra löngum gossprung­um. Gos­virkni á Reykja­nes­i-­Svarts­engi ein­kenn­ist af goslotum eða eldum sem geta varað í ára­tugi og má búast við goslotu á um 1100 ára fresti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðskjálfti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár