KRJÚPA – SKÝLA – HALDA – er orðaröð sem rétt er að leggja á minnið

Almanna­varnir hvetja fólk til að kynna sér varnir og við­búnað vegna jarð­skjálfta vegna kröft­ugrar jarð­skjálfta­hr­inu sem nú stendur yfir á Reykja­nesskaga.

Krjúpa skal úti í horni við burðarvegg eða undir borði, skýla höfði og halda sér í.
Krjúpa skal úti í horni við burð­ar­vegg eða undir borði, skýla höfði og halda sér í. Mynd: Af vef almannavarna

Vegna jarð­skjálfta­hrin­unnar sem nú stendur yfir á Reykja­nesi hvetur almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra fólk til að kynna sér varnir og við­búnað vegna jarð­skjálfta. Fræðsla um við­brögð þegar jarð­skjálfti verður sem og við­brögð eftir stóra skjálfta er að finna á heima­síðu almanna­varna.

Í þeim segir m.a. að rétt sé að leggja orða­röð­ina KRJÚPA – SKÝLA – HALDA á minnið.

Heima­síða almanna­varna hrundi vegna álags í síð­ustu viku. Að sama skapi hefur vefur Veð­ur­stof­unnar hrunið nokkrum sinnum þegar álagið hefur verið hvað mest.

[adspot]

Stærsti jarð­skjálft­inn í hrin­unni hingað til varð klukkan 10.05 á mið­viku­dag og voru upp­tökin skammt frá fjall­inu Keili. Hann var 5,7 að stærð. Kristín Jóns­dóttir, hóp­stjóri nátt­úru­vár­vökt­unar hjá Veð­ur­stofu Íslands, sagði í kjöl­farið að líkur væru á fleiri skjálftum og jafn­vel stærri.

Síðustu daga hafa orðið nokkrir stórir skjálftar, nú síð­ast í nótt, aðfara­nótt mánu­dags, og var hann 4,9 a stærð.

Helstu atriði sem almanna­varnir benda fólki á að huga að vegna jarð­skjálfta eru eft­ir­far­andi:

Ef þú ert inn­an­dyra þegar jarð­skjálfti byrjar– ekki hlaupa af stað. Haltu kyrru fyrir og og haltu þig frá gluggum.

Ef þú er utandyra þegar þú finnur jarð­skjálfta: Ekki hlaupa inn. Reyndu að koma þér frá bygg­ingum sem geta hrunið. Grjót­hrun, skriður og snjó­flóð geta fallið úr hlíðum og fjall­lendi.

Húsgögn: Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða vegg.

Lausir munir: Stillið þungum munum ekki ofar­lega í hillur eða á veggi án þess að festa þá tryggi­lega. Þungur borð­bún­aður og hlutir eru best geymdir í neðri skápum, helst lok­uðum.

Kyndi­tæki og ofnar: Kynnið ykkur stað­setn­ingu og lokun á vatns­inntaki og raf­magns­töflu. Festið hita­veitu­ofna tryggi­lega. Leki getur valdið miklu tjóni ef ekki er lokað strax fyrir vatnið.

Svefn­staðir: Fyr­ir­byggið að skápar, mál­verk, brot­hættir og þungir munir geti fallið á svefn­staði. Varist að hafa rúm við stóra glugga. Verðu höfuð þitt og and­lit með kodda ef þú vaknar upp við jarð­skjálfta.

Útvarp og til­kynn­ingar: Hlustið á til­kynn­ingar og fyr­ir­mæli sem gefin eru í útvarpi. Gott er að hafa útvarp með lang­bylgju ef FM sendar detta út. Þá er hægt að hlusta á útvarp í bílum.

Símar: Farsímar duga skammt ef raf­magn dettur út í lengri tíma. Þá getur verið gott að eiga hleðslu­tæki til að hafa í bif­reið eða hleðslu­banka til að hlaða far­síma. Sendu SMS til þinna nán­ustu í stað þess að hringja (sér­stak­lega eftir stóran jarð­skjálfta) til að minnka álag á sím­kerfi í ham­förum.

Á jarð­skjálfta­svæðum er hægt að draga úr afleið­ingum jarð­skjálfta með jarð­skjálfta­æf­ingum til að vera betur við­búin þegar stór skjálfti verður: KRJÚPA – SKÝLA – HALDA – er orða­röð sem rétt er að leggja á minnið, segir í leið­bein­ingum almanna­varna. Þetta skal gera úti í horni við burð­ar­vegg eða krjúpa undir borð, skýla höfði og halda sér í.

Almanna­varna­deild mælir með því að fólk finni sér staði heima, í vinn­unni eða í skól­anum þar sem öruggt er að vera ef það verður jarð­skjálfti.

Ítar­legri leið­bein­ingar má nálg­ast hér og hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðskjálfti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár