„Við þurfum að undirbúa okkur fyrir að það verði stærri skjálftar“

Kristín Jóns­dóttir hjá nátt­úru­vár­vöktun Veð­ur­stofu Íslands segir að líkur séu á fleiri skjálftum og að við þurfum að vera við því búin að þeir verði stærri en þeir sem orðið hafa í morgun.

Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar Veðurstofu Íslands.
Kristín Jóns­dóttir, hóp­stjóri nátt­úru­vár­vökt­unar Veð­ur­stofu Íslands. Mynd: Skjáskot RÚV

Þetta er mjög kröftug hrina og hún er að raða sér á svæði á milli Kleif­ar­vatns og Grinda­vík­ur­vegar, sagði Kristín Jóns­dóttir, hóp­stjóri nátt­úru­vár­vökt­unar hjá Veð­ur­stofu Íslands í auka­frétta­tíma RÚV í hádeg­inu. Hún segir upp­tök skjálft­anna á nokkrum stöðum. „Þetta byrj­aði austan við Fagra­dals­fjall, svo flutti hún sig nær Krísuvík en svo höfum við sé að skjálft­arnir eru að raða sér upp á öllu þessu svæði.“

Stærsti skjálft­inn í hrin­unni sem hófst í morgun var 5,7 á stærð og er hrinan bundin við Reykja­nesið. Tugir skjálfta hafa fylgt í kjöl­farið og margir hafa verið yfir 4 að stærð. „Það er mikil virkni á þessu svæði,“ sagði Kristín, „þannig að þetta er óvenju­legt.“

[adspot]

Engin merki um gos­óróa hafa fund­ist og því segir Kristín að ekki sé vitað til þess að skjálft­arnir teng­ist eldsum­brotum. Sér­fræð­ingar eru nú á svæð­inu við mæl­ingar, m.a. gasmæl­ingar. Til­gang­ur­inn er að reyna að sjá hvort að ein­hverjar breyt­ingar séu á svæð­inu.

[links]„Þetta er mik­ill óstöð­ug­leiki sem nær yfir stórt svæði,“ sagði Kristín. Almanna­varnir hafa fundað vegna máls­ins og segir Kristín að við séum í „ein­hverjum atburði núna en á meðan óstöð­ug­leiki er í gangi eru auknar líkur á því að það verði fleiri skjálftar og jafn­vel stærri skjálftar.“

Vís­bend­ing um það er sú stað­reynd að frá Kleif­ar­vatni og til Blá­fjalla hafa ekki mælst skjálftar allt þetta ár. „Það gæti verið til marks um að það svæði sé læst og að brotni ekki nema í stærri skjálfta. Þar hafa verið stórir skjálftar, allt að 6,5, svo við þurfum að und­ir­búa okkur fyrir að það verði stærri skjálftar.“

Jarð­skjálfta­hrina hófst í morgun í nágrenni við Fagra­dals­fjall. Klukkan 10.05 varð jarð­skjálfti af stærð 5,7 rúma 3 kíló­metra suðsuð­vestur af Keili. Fjöldi eft­ir­skjálfta hefur fylgt og hefur sjálf­virka jarð­skjálfta­kerfi Veð­ur­stof­unnar numið alls 11 skjálfta yfir 4,0 að stærð frá því hrinan hófst.

Þeir hafa fund­ist víða á suð­vest­ur­horn­inu og allt norður í Húnaþing og vestur á Ísafjörð. Unnið er að nán­ari yfir­ferð á skjálfta­virkn­inni. Veð­ur­stofan bendir á að skjálfta­virknin sé bundin við Reykja­nesskaga. Aðrar stað­setn­ingar á skjálftum eru óáreið­an­legar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðskjálfti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár