Hættustigi lýst yfir: Grjót hrunið úr fjöllum og hvítir gufustrókar sést

Lýst hefur verið yfir hættu­stigi almanna­varna á Reykja­nesskaga og höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna jarð­skjálfta­hrin­unnar sem hófst í morgun. Grjót hefur hrunið úr fjöllum á Reykja­nesi og hvítir gufustrókar á jarð­hita­svæðum sést á svæð­inu.

Grjóthrun hefur orðið á Reykjanesskaga og varað er við frekara hruni. Myndina tók áhöfn Landhelgisgæslunnar í eftirlitsflugi í morgun.
Grjót­hrun hefur orðið á Reykja­nesskaga og varað er við frekara hruni. Myndina tók áhöfn Land­helg­is­gæsl­unnar í eft­ir­lits­flugi í morgun. Mynd: Landhelgisgæslan

Rík­is­lög­reglu­stjóri, í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­nesjum og Veð­ur­stofu Íslands, lýsir yfir hættu­stigi almanna­varna vegna öfl­ugrar jarð­skjálfta­hr­inu sem nú gengur yfir á Reykja­nesi.

Hættu­stig almanna­varna er sett á til að sam­hæfa aðgerðir og verk­lag ýmissa verk­lags­að­ila og stofn­ana og hefur ekki áhrif á almenn­ing. Hættu­stig er sett á ef heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af nátt­úru- eða manna­völdum þó ekki svo alvar­legar að um neyð­ar­á­stand sé að ræða.

[adspot]

Skjálfti af stærð 5,7 mæld­ist um 3,3 kíló­metra suðsuð­vestur af Keili á Reykja­nesi klukkan 10:05 í morgun. Upptök skjálft­anna eru á um 20 kíló­metra kafla frá Grinda­vík­ur­vegi að Kleif­ar­vatni. Fjöldi eft­ir­skjálfta hefur fylgt og hefur sjálf­virka jarð­skjálfta­kerfi Veð­ur­stofu Íslands numið alls 12 skjálfta yfir 4 að stærð frá því hrinan hófst. Síðasti skjálfti mæld­ist 4,8 að stærð, klukkan 12:37.

[links]Skjálft­arnir hafa fund­ist víða á Suð­vest­ur­horn­inu og allt norður í Húnaþing og vestur á Ísafjörð, segir í til­kynn­ingu frá almanna­vörnum. Varað er við grjót­hruni á Reykja­nesskaga á meðan á hrin­unni stendur. Unnið er að nán­ari yfir­ferð á skjálfta­virkni.

Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra fylgist vel með í sam­vinnu við lög­reglu­emb­ættin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á Suð­ur­nesjum og Veð­ur­stofu Íslands.

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum fer nú um svæðið til að kanna áhrif skjálft­ans. Þá hefur áhöfn á þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar flogið yfir Reykja­nes til að kanna aðstæður. Grjót hefur hrunið úr fjöllum á Reykja­nesi og hvítir gufustrókar á jarð­hita­svæðum hafa sést á svæð­inu.

Veð­ur­stofa Íslands hefur hækkað lita­kóða fyrir flug á Reykja­nesi yfir á gult.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðskjálfti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár