Staðfest: 5,7 stiga skjálfti – „Sterk jarðskjálftahrina gengur nú yfir Reykjanes og höfuðborgarsvæðið“

Stór jarð­skjálfti, 5,7 stig, fannst vel á öllu suð­vest­ur­horni lands­ins laust eftir klukkan 10 í morgun. Fjöl­margir skjálftar hafa fylgt í kjöl­farið.

Myndin sýnir fjölda skjálfta á síðustu klukkustundum eins og staðan var kl. 10.35 í morgun.
Myndin sýnir fjölda skjálfta á síð­ustu klukku­stundum eins og staðan var kl. 10.35 í morgun. Mynd: Skjáskot: Veðurstofan

Stór jarð­skjálfti fannst vel á suð­vest­ur­horni lands­ins laust eftir klukkan 10 í morgun. Veð­ur­stofan hefur stað­fest að hann var 5,7 að stærð og varð þremur kíló­metrum suð­vestur af fjall­inu Keili á Reykja­nesi. Fjöldi eft­ir­skjálfta hefur fylgt. Búast má við frek­ari eft­ir­skjálfum, að því er segir í til­kynn­ingu á Facebook-síðu Veð­ur­stof­unnar.

„Sterk jarð­skjálfta­hrina gengur nú yfir Reykja­nes og höf­uð­borg­ar­svæðið,“ segir í stuttri til­kynn­ingu almanna­varna. Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra hvetur fólk til þess að kynna sér varnir og við­búnað vegna jarð­skjálfta.[links]

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef Veð­ur­stof­unnar hafa fjöl­margir skjálftar orðið á Reykja­nesskaga frá því snemma í morgun. Flestir hafa orðið við Fagra­dals­fjall. Klukkan 10.30 höfðu 25 skjálftar yfir þrír að stærð orðið á hálf­tíma.

Um jarð­skjálfta­hr­inu er að ræða sem hófst sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðum Veð­ur­stof­unnar á Reykja­nesskaga snemma í morgun. Hrinan hefur fund­ist mjög vel í Reykja­vík og víðar og hefur verið nær stöðug frá því rúm­lega tíu.

Fleiri skjálftar hafa fylgt í kjöl­farið.

Síðasta árið hefur jarð­skjálfta­virkni verið mjög mikil á Reykja­nesi og tölu­vert land­ris mælst við fellið Þorbjörn.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðskjálfti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár