„Þetta eru mikil læti“

Eld­fjalla­fræð­ing­ur­inn Ármann Hösk­ulds­son segir að jarð­skjálfta­hrinan mikla á Reykja­nesi í dag þurfi ekki að leiða til eld­goss en bendir á að svæðið sé þekkt eld­gosa­svæði „og það hlýtur að koma að því“ að það komi „eitt­hvað upp“.

Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur við Háskóla Íslands.
Ármann Hösk­ulds­son eld­fjalla­fræð­ingur við Háskóla Íslands. Mynd: Kristinn Ingvarsson/Háskóli Íslands

„Reykja­nesið er búið að vera lif­andi síð­asta ár og á þessu ári. Við vitum að þetta er virkt eld­gosa­svæði og það hlýtur að koma að því að það kemur eitt­hvað upp,“ segir Ármann Hösk­ulds­son, eld­fjalla­fræð­ingur hjá Jarð­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands, í sam­tali við Kjarnann, um stóru jarð­skjálfta­hrin­una á Reykja­nesskag­anum í morgun sem fund­ist hefur vel á öllu suð­vest­ur­horni lands­ins og jafn­vel víðar. Stærsti skjálft­inn var 5,7 stig og varð hann suð­vestur af fjall­inu Keili.

Ármann segir að Veð­ur­stofan og aðrar rann­sókn­ar­stofn­anir fari nú yfir gögn til að kanna hvort að um gliðnun sé að ræða eða áfram­hald­andi nún­ing platna í jarð­skorp­unni. Hvort að þær séu ein­göngu að strjúkast saman eða hvort að þær séu að fara í sundur. „Vænt­an­lega gengur þetta yfir miðað við það sem við sáum í fyrra,“ segir Ármann og vísar til þeirrar miklu virkni sem var á svæð­inu með land­risi við fjallið Þorbjörn. „Þegar við erum komin með spennu­á­stand þar sem skorpan fer að gliðna þá fer eitt­hvað að ger­ast.“

[adspot]

Stórir jarð­skjálftar tengj­ast nún­ingi í jarð­skorp­unni „og í raun þarf það spennu­svið að klára sig áður en við fáum eitt­hvað upp,“ bendir Ármann á. „Þetta þarf ekki að leiða til neins nema stórra skjálfta.“

Hann segir að gos­órói, und­an­fari eld­goss, þurfi ekki að fylgja strax í kjöl­far jarð­skjálfta­hr­inu. „Við myndum ekki sjá hann fyrr en svona korteri fyrir gos á þessu svæði.“

[links]Til að meta hvað er að ger­ast og til að reikna út hreyf­ing­una í jarð­skorp­unni er m.a. stuðst við gervi­tungla­myndir og GPS-mæla. Þannig er hægt að sjá hvort að jörðin sé að lyfta sér, land­ris að verða, eða að gliðna.

„Þetta eru mikil læti og búast má við rifum á yfir­borði,“ sagði Ármann við Kjarnann í morgun en hann var þá staddur heima hjá sér í Garða­bænum. „Ég er hálf sjó­veikur að ganga hér um gólf,“ sagði hann.

Land­risið við Þorbjörn hélt áfram á nokk­urra mán­aða tíma­bili í fyrra en stöðv­að­ist svo. Ármann segir að talið sé að lítil kvika hafi kom­ist inn nærri yfir­borði sem olli land­ris­inu. „En lætin hafa haldið áfram,“ segir hann. „Skorpan er að gera sig klára. Því þú verður að opna skorpu til að hleypa kviku upp.“

Frá land­námi hefur þrisvar sinnum gosið á Reykja­nesi, síð­ast á árunum 1211-1240 og eru þeir atburðir kall­aðir Reykja­nes­eldar. Á því tíma­bili gaus nokkrum sinnum, þar af urðu þrjú gos í eld­stöðvakerfi sem kennt er við Svarts­engi. Eldgosin voru hraun­gos á 1-10 kíló­metra löngum gossprungum. Gos­virkni á Reykja­nesi-Svarts­engi ein­kenn­ist af goslotum eða eldum sem geta varað í ára­tugi og má búast við goslotu á um 1100 ára fresti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár