„Engar hamfarir yfirvofandi“

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­vörnum, segir sterkt merki um að gos sé að hefj­ast á Reykja­nesi en bendir enn­fremur á að engar ham­farir séu yfir­vof­andi.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

„Okkar plön miða við að gos sé að hefj­ast á næst­unni,“ sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna, í sam­tali við RÚV kl. 15.30. „Á næst­unni“ þýðir á næstu klukku­stundum að sögn Víðis.

Hann segir að svona atburðir, miklir skjálftar og gos­órói, geti „auð­vitað stoppað“ en þar sem merki um gos hafi verið að eiga sér stað í langan tíma sé lík­legt að það fari að gjósa.

Óróapúls mæld­ist kl. 14:20 og sást á flestum jarð­skjálfta­mælum og er stað­settur suður af Keili við Litla Hrút. Slík merki mæl­ast í aðdrag­anda eld­gosa en ekki hefur verið stað­fest að eld­gos sé hafið. Unnið er að nán­ari grein­ingu.

[adspot]

„Það eru engar ham­farir að fara í gang,“ sagði Víðir og brýndi fyrir fólki að halda ró sinni og „halda lífi sínu áfram. Þetta er ekk­ert að fara að breyt­ast næstu klukku­tím­ana.“

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar með vís­inda­menn inn­an­borðs er farin í loftið. Þannig verður hægt að fylgj­ast með úr lofti til að stað­festa þegar og ef gos byrjar að sögn Víðis.

[links]„Vin­sam­leg­ast gefið okkur vinnu­frið á þessu svæði,“ sagði hann og beinir því til almenn­ings að fara ekki á svæðið að skoða. Einnig biður hann fólk sem er að keyra Reykja­nes­braut­ina um að halda ferð sinni óhikað áfram og alls ekki stoppa út í kanti. Það eru „engar ham­farir yfir­vof­andi,“ ítrek­aði hann. Ekki standi til að loka Reykja­nes­braut­inni eins og staðan er núna þó að við­bragðs­á­ætl­anir geri ráð fyrir að það verði gert ef þörf krefur.

Búið er að færa lita­kóða fyrir svæðið upp á app­el­sínugult. Ef gos hefst verður flug­um­ferð tíma­bundið stöðvuð á meðan staðan skýrist. „Það er eng­inn í hættu,“ sagði hann spurður um skila­boð til íbú­anna á svæð­inu.

„Gosið er ekki hafið og ef gos byrjar á þessum stað þá er eng­inn í hættu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jarðhræringar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár