Órói mælist á Reykjanesi

Eldgos er mögu­lega að hefj­ast á Reykja­nesi. Það myndi ekki ógna byggð né vega­sam­göngum. Óróapúls byrj­aði að mæl­ast kl. 14:20, en slíkir púlsar margra smárra jarð­skjálfta mæl­ast gjarnan í aðdrag­anda eld­gosa. Síðast gaus á Reykja­nesi á 13. öld.

Óróapúlsinn mælist við Litla Hrút, suður af Keili.
Óró­apúls­inn mælist við Litla Hrút, suður af Keili. Mynd: Iceland 360 VR

Klukkan um 14:20 í dag mæld­ist óró­apúls á jarð­skjálfta­mælum á suð­vest­ur­horn­inu. Púlsinn er stað­settur suður af Keili, við Litla Hrút. Óró­apúlsar mæl­ast í aðdrag­anda eld­gosa, en enn hefur ekki verið stað­fest að eld­gos sé hafið á Reykja­nesi.[links]

Fram kom í máli Krist­ínar Jóns­dóttur hóp­stjóra nátt­úru­vár hjá Veð­ur­stofu Íslands í útvarps­fréttum RÚV kl. 15 að hugs­an­legt væri að eld­gos væri að hefj­ast. Við­bún­að­ar­stig vegna flug­um­ferðar á suð­vest­ur­horn­inu hefur verið hækkað upp í app­el­sínugult. Búið er að boða til blaða­manna­fundar á vegum Almanna­varna og Veð­ur­stof­unnar kl. 16.

Vika er síðan að öflug skjálfta­hrina hófst á Reykja­nesskaga með skjálfta af stærð­inni 5,7, sem enn er stærsti skjálfti hrin­unnar. Ekki er talið lík­legt að gos á þeim stað sem óró­inn mælist myndi ógna byggð eða vega­sam­göngum.

Þrjú gostímabil á Reykjanesi frá landnámi

Frá land­námi hefur þrisvar sinnum gosið á Reykja­nesi, síð­ast á árunum 1211-1240. Þeir atburð­ir eru ­kall­aðir Reykja­nes­eld­ar. Á því tíma­bili gaus nokkrum sinn­um, þar af urðu þrjú ­gos í eld­stöðvakerfi sem kennt er við Svarts­engi. Eld­gosin voru hraun­gos á 1-10 kíló­metra löngum gossprung­um.

Í Reykja­nes­eldum urðu sam­an­lagt minnst sex gos með hléum og vörðu frá tveimur til tólf ára. Gos­virknin hófst í eld­stöðvakerf­inu Reykja­nes­i og færð­ist svo í átt til Svarts­engis á seinni stigum eld­anna. Á Reykja­nes­i ­mynd­að­ist eitt hraun en þrjú við Svarts­engi.

[adspot]

Athuga­semd rit­stjórnar: Fyr­ir­sögn frétt­ar­innar hefur verið breytt. Áður var talað um „gos­óróa“ en sér­fræð­ingar Veð­ur­stof­unnar hafa bent á að óró­inn geti vart talist gos­órói fyrr en ljóst er að eld­gos sé hafið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár