Ritari Vinstri grænna segist upplifa fullkomna höfnun

Eftir for­val Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi seg­ist rit­ari flokks­ins upp­lifa full­komna höfnun. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­flokks­for­maður er sömu­leiðis von­svikin og ætlar að gefa sér tíma til að ákveða hvort hún þiggi annað sætið á list­anum.

Ingibjörg Þórðardóttir ritari, Óli Halldórsson sveitarstjórnarmaður og Bjarkey Olsen Gunnardóttir þingflokksformaður.
Ingi­björg Þórð­ar­dóttir rit­ari, Óli Hall­dórs­son sveit­ar­stjórn­ar­maður og Bjarkey Olsen Gunn­ar­dóttir þing­flokks­for­maður. Mynd: Samsett

Ingi­björg Þórð­ar­dóttir rit­ari Vinstri grænna hlaut ekki braut­ar­gengi í for­vali flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Hún bauð sig þar fram til þess að taka fyrsta eða annað sætið á lista flokks­ins, en hún er í dag vara­þing­maður flokks­ins og var í þriðja sæti á lista í kjör­dæm­inu í kosn­ing­unum árið 2017.

„Það er aug­ljós­lega meira fram­boð af mér en eft­ir­spurn og félagar mínir í VG í NA hafna mér full­kom­lega. Það breytir nú samt ekki því að ég mun standa við bakið á VG og þessum lista sem sam­anstendur af frá­bæru fólki. Ég óska Óla Halldórs inni­lega til ham­ingju með kosn­inga­sig­ur­inn,“ skrifar Ingi­björg, sem var kjörin rit­ari flokks­ins árið 2019, á Facebook í dag.

Bjarkey ekki búin að ákveða hvort hún þiggi 2. sætið

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, seg­ist ekki viss um hvort hún muni þiggja annað sætið á lista flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar. Hún bauð sig fram til að leiða list­ann, en laut í lægra fyrir Óla, sem er sveit­ar­stjórn­ar­maður í Norð­ur­þingi og annar vara­þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu í dag.

Bjarkey, sem setið hefur á þingi óslitið frá árinu 2013 ræddi málin við mbl.is og sagði að nið­ur­staða for­vals­ins hefði auð­vitað verið von­brigði. Hún sagð­ist ætla að taka sér þann tíma sem hún þyrfti til þess að kom­ast að nið­ur­stöðu um hvort hún tæki sæti á lista í kjöl­far þess­arar nið­ur­stöðu.

Alls voru 12 manns í fram­boði í for­val­inu og 648 manns greiddu atkvæði, sem sam­svarar 62 pró­sent kosn­inga­þátt­töku, en rösk­lega þús­und voru á kjör­skrá í kjör­dæm­inu, sem hefur löngum verið eitt helsta vígi Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs.[links]

Bjarkey hefur verið þar á öðru sæti á lista á eftir Stein­grími J. Sig­fús­syni fyrr­ver­andi for­manni flokks­ins í und­an­förnum kosn­ingum. Hún sótt­ist eftir því að leiða lista flokks­ins í for­val­inu og upp­skar 293 atkvæði í 1.-2. sæti. Óli fékk 304 atkvæði í odd­vita­sætið.

Óli bauð sig fram til þess að verða vara­for­maður Vinstri grænna á lands­fundi hreyf­ing­ar­innar haustið 2017, en laut þá í lægra haldi fyrir Edward H. Hui­jbens, sem gegndi emb­ætt­inu þar til árið 2019, er Guð­mundur Ingi Guð­brands­son utan­þings­ráð­herra flokks­ins tók við því kefli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár