Óli Halldórsson efstur í forvali VG í Norðausturkjördæmi

Óli Hall­dórs­son var efstur í for­vali Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem fór fram um helg­ina. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­maður flokks­ins skipar annað sætið og Jódís Skúla­dóttir er í þriðja sæti.

Óli Halldórsson og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir voru í efstu tveimur sætum í forvali VG í Norðausturkjördæmi.
Óli Hall­dórs­son og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir voru í efstu tveimur sætum í for­vali VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Óli Hall­dórs­son sveit­ar­stjórn­ar­maður í Norð­ur­þingi varð hlut­skarpastur í for­vali Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, sem fram fór um helg­ina. Hann mun því lík­lega leiða lista flokks­ins í kjör­dæm­inu til kosn­inga síðar á árinu.

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­maður var í öðru sæti í for­val­inu og Jódís Skúla­dóttir bæj­ar­full­trúi í Múla­þingi í þriðja sæti. Kári Gautason fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Vinstri grænna hafn­aði í fjórða sæti.

Alls voru 12 manns í fram­boði og 648 manns greiddu atkvæði, sem sam­svarar 62 pró­sent kosn­inga­þátt­töku, en rösk­lega þús­und voru á kjör­skrá í kjör­dæm­inu, sem hefur löngum verið eitt sterkasta vígi Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs.

Fram kemur í til­kynn­ingu frá VG að listi með alls 20 fram­bjóð­endum verði lagður fyrir kjör­dæm­is­þing til sam­þykktar í sam­ræmi við lög og stefnu hreyf­ing­ar­innar.

Niðurstaða forvalsins:

  • 1. sæti Óli Hall­dórs­son með 304 atkvæði í 1. sæti
  • 2. sæti Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir með 293 atkvæði í 1.-2. sætið
  • 3. sæti Jódís Skúla­dóttir með 297 atkvæði í 1.-3. sæti
  • 4. sæti Kári Gautason með 337 atkvæði í 1.-4. sæti
  • 5. sæti Jana Salóme Ingi­bjargar Jós­eps­dóttir með 322 atkvæði í 1.-5. sæti
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár