Leiksigur!

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um sýn­ing­una Vertu úlfur sem Þjóð­leik­húsið sýnir um þessar mundir.

Vertu úlfur
Vertu úlfur Mynd: Þjóðleikhúsið

Þjóðleikhúsið: Vertu úlfur

Leikverk eftir Unni Ösp Stef­áns­dóttur byggt á sam­nefndri bók Héðins Unn­steins­sonar

Leik­stjóri: Unnur Ösp Stef­áns­dóttir

Leikmynd og mynd­bands­hönnun: Elín Hans­dóttir

Búningar: Filippía I. Elís­dóttir

Lýsing: Björn Berg­steinn Guð­munds­son og Halldór Örn Ósk­ars­son

Drama­t­úrg: Hrafn­hildur Hagalín

Tónlist í leik­sýn­ingu: Valgeir Sig­urðs­son

Hljóð­hönnun: Elvar Geir Sæv­ars­son

Leikari: Björn Thors

Það er auð­velt að hríf­ast af leik­sýn­ing­unni Vertu úlfur. Hún fjallar um áleitið efni, geð­sjúk­dóm, byggir á sam­nefndri sann­sögu­legri frá­sögn Héðins Unn­steins­sonar, sem í sögu sinni segir frá eigin reynslu, sem á stóra sviði Þjóð­leik­húss­ins er túlkuð í leik­gerð og leik­stjórn Unnar Aspar Stef­áns­dóttur af leik­ar­anum Birni Thors – sem er einn á svið­inu í um eina og hálfa klukku­stund, sem eitt og sér er aðdá­un­ar­vert afrek.

Þegar áhorf­endur koma sér fyrir í sal Þjóð­leik­húss­ins röltir Björn Thors um for­sviðið, tjaldið er dregið fyrir og brátt gefur hann til kynna að hann ætli að segja sögu sína og ekki ein­ungis það – hann sker úr um það, að við, áhorf­endur, séum hluti af því sam­fé­lagi sem fór illa með hann, beitti hann alvar­legu rang­læti og hann ætlar að segja sögu sína hér – á stóra sviði Þjóð­leik­húss­ins og ekki verður skilið annað en hann ætli að renna stoðum undir ákæru sína og sann­færa okkur um sekt sam­fé­lags­ins. Okkar.

[adspot]

Í leik­skrá er hann aðeins nefndur „leik­ari“, og ég skil það þannig að reynt sé að færa sýn­ing­una frá upp­runa sínum, sögu Héðins, og gera hana að almenn­ara verki; ákæruna er ekki að finna jafn ein­arð­lega orð­aða í bók­inni og með ákærunni vekur leik­sýn­ingin óneit­an­lega hug­renn­ingar í átt að álíka ákærum – fræg­ust mun trú­lega vera „Je‘accuse“ Émile Zola, sem í opnu bréfi til for­seta Frakk­lands ákærði sam­fé­lagið fyrir dóm­inn yfir Alfred Dreyfuss, sem hafði verið ákærður og dæmdur fyrir land­ráð. Hér talar „leik­ari“ beint til okkar áhorf­enda, dregur okkur inn í atburða­rás­ina og ekki er við öðru að búast en að við munum nú verða sek fundin – sam­ræmi við til­efnið.

Saga „leik­ara“ hefst á því að hann dregur hring á sviðið með sandi – það er hans punktur, mið­punktur, og inn í þann hring stígur hann til að kjarna sig og ná áttum. Innan skamms er for­tjaldið dregið frá og opnar sýn inn í hug­ar­heim hans – galtómt stóra svið Þjóð­leik­húss­ins sem hefur sjaldan virst jafn bert og nakið, til vinstri sér í kaðl­ana sem eru hluti af leik­hús­vél­inni, ber bak­vegg­ur­inn blasir við og hringsviðið, sem er greini­lega auð­kennt, þar er að finna hug­ar­rými „leik­ara“ og rímar við litla sand­hring­inn á for­svið­inu. Þessi leik­mynd er vel hugsuð og þjónar fylli­lega þeim til­gangi að skapa skilj­an­lega mynd af hug­ar­heimi þess sem glímir við geð­hvörf – þrí­víð mynd af sál­rænu ástandi og sú mynd er hug­vit­sam­lega og á köflum snilld­ar­lega samin og nægir að nefna mynd­ina af öku­ferð­inni um Borga­fjörð þar sem „leik­ari“ tekur bók­staf­lega flugið upp eftir bak­vegg stóra sviðs­ins. Leikmynd og til­heyr­andi mynd­band er skapað af Elínu Hans­dóttur, lýs­ingin er hönnuð af Birni Berg­steini Guð­munds­syni og Halldóri Erni Ósk­ars­syni og á stóran hlut í því að koma sögu „leik­ara“ til okkar áhorf­enda. Við það má bæta bún­ingum Filippíu I. Elís­dóttur sem ríma í lit full­kom­lega við sal Þjóð­leik­húss­ins og stað­festa að ann­ars staðar verður þessi saga og sýn­ing ekki sett niður og sögð.

Saga „leik­ara“ verður æ átak­an­legri eftir því sem á líður og hápunktur hennar er þegar kemur að því að hann er tek­inn með valdi af föður sínum og nokkrum til og lok­aður inni á geð­deild. Allri þess­ari sögu gerir Björn Thors skil með mestu ágætum, brestur hvergi í úthaldi eða ákefð þar sem við á, hann heldur að því er virð­ist áreynslu­laust jafn­vægi á hnífs­egg og heldur athygli áhorf­anda af öryggi. Þó ekki væri nema til þess eins að sjá Björn Thors vinna leik­sigur þá er það góð ástæða til að sjá sýn­ing­una. Hún er auk þess þarfur og skyn­sam­legur inn­blástur í umræðu um geð­heil­brigð­is­mál á Íslandi.

Björn og leik­stjór­inn Unnur Ösp not­færa sér sviðs­mynd­ina út í æsar til að gera sög­una sýni­lega og tekst það alveg með ágætum, enda vinnur allt saman að einu mark­miði – leikur, leik­mynd, lýs­ing, bún­ingar, tón­list – og gerir það með þeim virktum sem list augna­bliks­ins krefst. Sýningin situr eftir í huga manns, hinn ein­mana „leik­ari“ og átak­an­leg saga hans lifir löngu eftir að slökkt hefur verið á sviðs­ljós­unum.

Eitt er þó atriði, sem und­ir­rit­aður vill gera að umræðu­efni. Upphaf sýn­ing­ar­innar minnir sterk­lega á aðferða­fræði þýska leik­hús­manns­ins Bertolds Brecht, sem einatt not­aði þá tækni að láta per­sónur verka sinna tala beint til áhorf­enda og höfða til vit­ræns skiln­ings þeirra en ekki til­finn­inga. Og það er vel í sam­ræmi við upp­hafs­ávarp „leik­ara“ til okkar áhorf­enda – „ég ákæri“. Það er því eðli­legt að búast við átaka- og rétt­ar­fars­drama þar sem sann­leik­ur­inn skal dreg­inn fram í sviðs­ljósið. Og vissu­lega ber sýn­ingin með sér ákveð­inn sann­leik, sem er saga „leik­ara“ sögð af honum sjálfum. Við trúum því að þarna sé farið með eins og „leik­ari“ sjálfur man og hefur upp­lifað, hann er ein­lægur og sannur í frá­sögn sinni. En frá­sögnin verður til­finn­inga­leg og þegar kemur að lokum er eins og „leik­ari“ söðli end­an­lega um. Ákæran líkt og hverfur átaka­lítið og „leik­ari“ lítur til þeirra er í salnum sitja og fer með eins konar lyk­il­setn­ingu: „ég lifi og þér munuð lifa!“ og kveður síðan uppúr með það, að hann fyr­ir­gefi okkur. Það er eins og hrópað hafi verið einum of oft á úlfinn.

Burtu er hið Brechtska rétt­ar­drama og hinn klass­íski Aristóteles er leiddur inn á sviðið. Sagan endar á sál­fræði­legu nót­unum. Mess­í­asar­tónn­inn í lyk­il­setn­ing­unni tekur við af ákærunni, sem líkt og hverfur út í busk­ann. Eftir situr fyr­ir­gefn­ingin eins og antíklímax. Það er mik­ill ys og þys út af litlu, því miður, og kemur til af því að hér stang­ast á tvær meg­in­stefnur í leik­rænni frá­sögn, ann­ars vegar hið epíska leik­hús Brechts og hins vegar hinn dramat­íski harm­leikur Aristótel­esar. Í harm­leiknum í Grikk­landi til forna var sið­ferði­legum boð­skap leiks­ins gjarnan beint til áhorf­enda í lokin til að minna þá á, hvaða vegur leiddi til glöt­unar og hvaða vegur leiddi til far­sældar og sáttar við guð­ina; sagan var dæmi­saga og til áminn­ingar um að þær athafnir manns­ins sem ekki væru guð­unum þókn­an­legar leiddu til for­dæm­ingar og tor­tím­ingar. Þegar áhorf­endur öðl­uð­ust inn­sæi um þetta í leiks­lok áttu þeir að verða fyrir því sem kall­ast katharsis, sem túlka má sem eins konar hreinsun hug­ans, inn­sæi um það sem rétt er og eft­ir­breytni­vert. Fyr­ir­gefn­ingin er af þeim toga spunnin; sá sem breytt hefur rang­lega er fyr­ir­gefið og þar með hlíft við refs­ingu. En það gengur illa upp í leik­hús­frá­sögn sem hefst á ákæru í stíl hins epíska leik­húss, því með fyr­ir­gefn­ing­unni í lokin eru gjörðir hins seka – okkar áhorf­enda – rúnar afleið­ingum og merk­ingu. Sam­fé­lags­dra­mað fer fyrir lítið.

Það má hugs­an­lega segja það áhuga­verða dram­t­úrgíska til­raun að tefla þeim saman í sömu sögu, Aristótel­esi og Brecht, en hún gengur illa upp. Leik­list­ar­sagan er til vitnis um það að annar þeirra reyndi af öllum mætti að forð­ast hinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklistargagnrýni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár