Þar eru hrafnar, lundar og skarfar – Ópera um rétt alls sem lifir

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Fugla­bjargið sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. „Á þeim tímum sem við nú lifum hefur aldrei verið mik­il­væg­ara að taka til sín hug­mynd­ina um nátt­úr­una sem á rétt á að vera til á sínum eigin for­sendum.“

Borgarleikhúsið í samvinnu við leikhópinn Hin Fræga Önd

Hand­rits­höf­undur: Birnir Jón Sig­urðs­son

Tónskáld: Ingi­björg Ýr Skarp­héð­ins­dóttir og Ragn­heiður Erla Björns­dóttir

Leik­stjóri: Hallveig Kristín Eiríks­dóttir

Leikmynd: Hallveig Kristín Eiríks­dóttir og Birnir Jón Sig­urðs­son

Búningar: Sólveig Spilla­ert

Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústs­son

Hljóð: Kristinn Gauti Ein­ars­son

Flytj­endur: Björk Níels­dóttir, Ragnar P. Jóhanns­son, Viktoría Sig­urð­ar­dóttir, Björg Brjáns­dóttir, Bryndís Þórs­dóttir, Halldór Eldjárn, Tumi Árnason.

Skammt undan ströndum Aust­ur­lands er eyja sem heitir Skrúðsey, í dag­legu tali kölluð Skrúður. Skrúður stendur eins og klettur uppúr haf­inu, sést vel úr Fáskrúðs­firði og einnig Reyð­ar­firði, hún er erfið upp­göngu en þaðan voru þó stund­aðir útróðrar fyrr á öldum og höfð­ust þá ver­menn við í helli, sem þar er og hefur í þjóð­sögum verið tal­inn heim­ili berg­risa eða hrím­þursa þess sem einnig er kall­aður Skrúðs­bónd­inn; um hann segir í þekktu kvæði Ólafs Ind­riða­sonar sem ort var um miðja nítj­ándu öld:

„Mjög er reisugt í Skrúð,

þar sig berg­ris­ans búð

inn í brim­þveg­inn ham­ar­inn klýfur!“

Í næsta erindi – sem einnig má lesa í leik­skrá að Fugla­bjarg­inu – lýsir Ólafur öðrum íbúum Skrúðs, en það eru fugl­arnir:

„Þar er haf­súla og már,

Þar er haftyrð­ill smár,

Þar eru hrafnar, lundar og skar­far.

Þar er æður og örn

Þar sín ótal­mörg börn

Elur svart­fugl og skegglurnar þarfar.“

Og hérna er í raun komin hlut­verka­skrá sýn­ing­ar­innar Fugla­bjargið eða því sem næst; í sýn­ing­unni koma fram Súlan, Ritan, Lundinn, Haftyrð­ill­inn, Langvían, Hrafninn, Skarf­ur­inn, Æðar­fugl­inn og Hafassan og þau segja sína sögu eins og hún birt­ist á einu ári í lífi Skrúðs með öllum þeim til­brigðum sem árs­tíða­skipti og veðra­skipti bjóða.

[adspot]

Höfundur hand­rits er Birnir Jón Sig­urðs­son og leitar hann fanga í eðli og hegð­un­ar­mynstri fugl­anna og mótar og myndar sögu­þráð útfrá því. Reyndar er kannski ekki rétt að tala um sögu­þráð í þeim skiln­ingi sem algengastur er, og þó – fer hreyf­ing og fram­þróun nátt­úr­unnar og alls þess lif­andi sem hana byggir ekki eftir ákveð­inni rök­festu sem kalla má þráð sögu? Allt sem lífsanda dregur fæð­ist, dafnar, vex, nær þroska, hrörnar og deyr og í því má vissu­lega greina ákveð­inn þráð – sögu­þráð. Sú saga sem þannig er ofin kallar þó á öðru­vísi nálgun áhorf­enda og áheyr­enda – lífs­saga af því tagi sem sögð er í Fugla­bjarg­inu skorar á áhorf­and­ann að beita athygli og skiln­ingi á annan hátt en þegar horft er á venju­lega frá­sögn í leik­húsi.

Þær per­sónur sem hér birt­ast sjónum haga sér á annan hátt en mann­fólkið og það kallar á ein­beit­ingu og hæfi­leika til inn­lif­unar að taka sögu þeirra til sín. En það er hverju manns­barni hollt að þjálfa þann eig­in­leika og hér gefst kostur á því – Fugla­bjargið skorar á áhorf­endur sína að opna sig fyrir því sem fyrir augu ber og þá sést kannski, þegar allt kemur til alls, að fuglar Skrúðs eru hreint ekk­ert svo frá­brugðnir okkur mönn­unum þegar allt kemur til alls. Það er nefni­lega ýmis­legt líkt með skyldum og öll erum við ábú­endur í sama vist­kerfi.

Fugla­bjargið er fyrst og fremst ópera eða tón­verk og tón­listin flutt með lif­andi hljóð­færa­leik á svið­inu undir söng leik­ar­anna/söngv­ar­anna, sem bregða sér í hlut­verk fugl­anna sem áður eru nefndir. Tón­listin, líkt og sögu­þráð­ur­inn, sækir inn­blástur í atferli fugl­anna og notar þau hljóð sem heyra má í fugla­bjargi Skrúðs. Úr verður líf­legt tón­verk, fjöl­breyti­legt eins og fugla­hljóðin í nátt­úr­unni, sem tjáir öll til­brigði þess lífs sem kviknar, vex, þró­ast, elskar og ját­ast því lífi sem í boði er. Tón­skáldin Ingi­björg Ýr Skarp­héð­ins­dóttir og Ragn­heiður Erla Björns­dóttir eru höf­undar tón­list­ar­innar, en sú síð­ar­nefnda er einnig tón­list­ar­stjóri sýn­ing­ar­innar. Þær Ingi­björg Ýr og Ragn­heiður Erla hafa báðar útskrif­ast af tón­smíða­braut LHÍ og hafa síðan feng­ist við nútíma tón­smíðar þar sem unnið er að því að tengja tækni og tón­list á nýjan hátt, en það skilar sér með ágætum í hljóð­heimi Skrúðs. Það má nefna hér að í fyrri verk­efnum sínum hafa þær leitað í hug­ar­heim þjóð­sagna og menn­ing­ar­arfs, sem nýt­ist svo um munar í Fugla­bjarg­inu. Tón­listin er aðlað­andi í þeirri merk­ingu að hún vekur for­vitni og er sam­tvinnuð þeim vist­fræði­lega sögu­þræði sem sýn­ingin fylgir.

Söngv­ar­arnir hafa það verk­efni að gæða hvern fugl lífi og leysa það af hendi á hríf­andi hátt undir styrkri leik­stjórn Hall­veigar Krist­ínar Eiríks­dóttur. Þarna birt­ast Súla, Haftyrð­ill og Langvía, öll leikin og sungin af Viktoríu Sig­urð­ar­dóttur, Riturnar eru leiknar og sungnar af Halldóri Eldjárn og Bryndísi Þór­is­dóttur, sem skipa einnig hljóm­sveit sýn­ing­ar­innar; þá er þarna kostu­legur Lundi, sung­inn og leik­inn af Björk Níels­dóttur, sem einnig fer með hlut­verk Hrafns­ins. Þá er ógetið Skarfs­ins, sem Ragnar Pétur Jóhans­son leikur og syngur og Hafassan sem Björg Brjáns­dóttir syngur og leikur ásamt því að vera í hljóm­sveit­inni. Tumi Árnason leikur einnig í hljóm­sveit­inni og bregður sér ásamt fleirum í hlut­verk Æðar­fugls­ins. Það má því ljóst vera að lífið í klettum Skrúðs er hið fjöl­breyti­leg­asta – en það birt­ist ekki síst í frá­bær­lega fal­legum og hug­vit­sam­lega hönn­uðum fugla­bún­ingum Sól­veigar Spilli­a­ert. Það er auð­fundið, að þessir bún­ingar styðja vel við túlkun leik­ara og söngv­ara í hlut­verkum sínum og þeir gleðja svo sann­ar­lega augað og eiga sinn þátt í því, ásamt hag­nýtri og fal­legri leik­mynd að gefa sýn­ing­unni töfr­andi og heill­andi yfir­bragð. Ónefnd er leik­myndin, sem hönnuð er af leik­stjór­anum Hall­veigu Kristínu og hand­rits­höf­und­inum Birni Jóni og um hana má segja að hún er nán­ast eins og átt­undi leik­ar­inn, svo vel þjónar hún sög­unni og myndar um hana lif­andi umgjörð, sem er umbreyti­leg eftir aðstæðum og þörfum.

Fugla­bjargið er heil­steypt og fal­legt lista­verk sem eng­inn skyldi láta fram­hjá sér fara. Á þeim tímum sem við nú lifum hefur aldrei verið mik­il­væg­ara að taka til sín hug­mynd­ina um nátt­úr­una sem á rétt á að vera til á sínum eigin for­sendum. Fugla­bjargið styður þá hug­mynd að allt sem lifir fái að gera það á sínum eigin for­sendum.

Í kynn­ingu á Fugla­bjarg­inu, t.d. á heima­síðu Borg­ar­leik­húss­ins, er sýn­ingin sögð „tón­leik­hús­verk fyrir börn“ og „barna­verk“. Það er í sjálfu sér satt, en þó vaknar sú hugsun hvort ekki væri rétt að benda á hversu vel sýn­ingin er fallin til að kveikja sam­ræður milli kyn­slóða, milli barna og for­eldra, milli barna og móður- eða föð­ur­for­eldra. Hér er nefni­lega ekki aðeins unnið með nátt­úr­una sem þema, heldur einnig og ekki síður með þann menn­ing­ar­arf, sem snýr að sam­búð manns og nátt­úru. Öll saga okkar Íslend­inga snýst um það og okkur er nauð­syn­legt og hollt að kynn­ast henni og öðl­ast tæki­færi til að móta per­sónu­lega afstöðu til hennar.

Kvæði Ólafs Ind­riða­sonar, sem vitnað var til hér í upp­hafi, og sem hefur nýst höf­undum Fugla­bjargs­ins, segir frá hinu þekkta þjóð­sagna­minni sem er Skrúðs­bónd­inn og þeirri mystík sem umvefur hann. Slíkur heimur þjóð­sagna og þjóð­trúar umlykur vita­skuld einnig alla þá fugla sem byggja þetta land, Ísland, ásamt okkur mönn­unum, og eru til vitnis um sambú­skap manna og fugla.

Fugla­bjargið er kjörin fjöl­skyldu­sýn­ing, þar sem kyn­slóð­irnar geta útfrá sýn­ing­unni og því sem þar segir frá, leyft sýn­ing­unni að lifa áfram í minn­ing­unni og glætt hana nýjum fróð­leik og nýjum upp­lif­unum, t.d. með því að fletta í nýút­kominni bók Sigurðar Ægis­sonar, Íslensku fugl­arnir og þjóð­trúin, sem segir frá sömu fuglum og sýn­ingin (og all­mörgum til við­bótar) og þar að auki í sama anda, þótt í öðru­vísi miðli sé. Bók Sigurðar kemur út eftir að höf­undar hafa samið hand­rit og tón­list, en það er eins og það sé ekki til­viljun að Fugla­bjargið og bók Sigurðar komi út á sama tíma – bæði verkin horfa til heildar og bera með sér anda virð­ingar og réttar alls til lífs á eigin for­sendum.

Fugla­bjargið er sýn­ing sem engin ætti að láta fram­hjá sér fara – og það væri hreint ekki verra ef von væri á fram­haldi; af nógu er að taka í dýra­ríki lofts, láðs og lagar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklistargagnrýni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár