Öll viljum við vera alvöru!

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um sýn­ing­una Gosi – ævin­týri spýtu­stráks sem sýnd er í Borg­ar­leik­hús­inu.

Gosi – ævintýri spýtustráks
Gosi – ævin­týri spýtu­stráks Mynd: Borgarleikhúsið

Borgarleikhúsið: Gosi – ævintýri spýtustráks

Höfundur: Carlo Collodi

Leikgerð: Ágústa Skúla­dóttir, Karl Ágúst Úlfsson og leik­hóp­ur­inn

Söng­textar: Karl Ágúst Úlfsson

Leik­stjórn: Ágústa Skúla­dóttir

Leikmynd og bún­ingar: Þórunn María Jóns­dóttir

Lýsing: Þórður Orri Pét­urs­son

Tónlist: Eiríkur Steph­en­sen og Eyvindur Karlsson

Hljóð: Þorbjörn Stein­gríms­son

Leik­gervi: Þórunn María Jóns­dóttir og Guðbjörg Ívars­dóttir

Grímu­gerð: Elín S. Gísla­dóttir

Myndband: Elmar Þór­ar­ins­son

Leikarar og tón­list­ar­fólk: Árni Þór Lárusson, Halldór Gylfason, Katla Margrét Þor­geirs­dóttir, Eiríkur Steph­en­sen, Eyvindur Karlsson.

Mikið var nú gaman að koma aftur í leik­húsið eftir sam­komu­bann sem virð­ist hafa verið lengra en leggj­andi er á nokkra sál. Stemn­ingin í for­dyri Borg­ar­leik­húss­ins áður en sest var inn í sótt­varn­ar­hólfaðan stóra sal þess til að horfa á ævin­týrið um spýtu­dreng­inn Gosa gaf tón­inn, ara­grúi barna eft­ir­vænt­ing­ar­fullur og spenntur og for­eldrar ekki síður. Það er sann­ar­lega ástæða til að færa þakkir leik­húsum og leik­hús­lista­mönnum öllum þakkir fyrir að hafa staðið af sér bið­ina með okkur áhorf­endum og ósk­andi að ekk­ert verði nú til að spilla þró­un­inni til hins eðli­lega horfs, þegar við getum setið saman og notið frá­sagna mann­kyns af stórum og smáum leik­sviðum þessa heims.

[adspot]

Ævin­týrið um Gosa þarf tæp­ast að kynna fyrir neinum, það er fyrir löngu orðið hluti af okkar vest­rænu menn­ingu, hluti af hennar birt­ing­ar­mynd – sagan af spýtu­drengnum sem vildi verða alvöru drengur, en hans stutta nef lengd­ist á í hvert sinn sem hann fór með ósatt orð. Þessi grund­vall­ar­at­riði í sög­unni um Gosa – lífslöng­unin og afleið­ingar lyg­innar – hafa allt sem þarf til að vekja hug­ar­flug les­enda, áheyr­enda og áhorf­enda og ber öll ein­kenni góðs ævin­týris og góðrar fantasíu. Margt í sög­unni um Gosa er í ætt við súr­r­eal­isma – hann lendir í klóm ræn­ingj­anna Refs og Kattar, sem tæla hann í Sirkus og þar breyt­ist hann í asna. Það er því ekki að undra að sagan vakti athygli og hrifn­ingu kvik­mynd­ar­gerð­ar­manns­ins Disney í Banda­ríkj­unum, sem gerði eina af sínum marg­frægu teikni­myndum um Gosa og það er nú senni­lega í þeirri mynd sem flest okkar þekkja hann best. Það voru þó fleiri, sem spreyttu sig á að lífga Gosa við á hvíta tjald­inu; fyrsta kvik­myndin sem byggð var á ævin­týr­inu um Gosa var ítölsk þögul mynd, frum­sýnd 1911.

Það er vert að huga að því, að höf­undur sög­unnar um Gosa, ítal­inn Carlo Collodi, gerði hreint ekki lítið úr nei­kvæðum skap­gerð­ar­ein­kennum Gosa. Ekki ein­asta er hann hneigður að lyg­inni, sem gerir að verkum að nefið vex, hann er líka hrekkj­óttur, ill­kvitt­inn, kæru­laus, dóm­greind­ar­laus, vesæll og latur. Hann er eins langt frá því að vera sá sjar­mer­andi og heill­andi spýt­ur­drengur sem Disney sagði síðar frá. Markmið Carlo Collodis var að Gosi skyldi vera víti til varn­aðar – sagan kemur út 1883 og það er á þeim tíma sem hinn vest­ræni heimur er að upp­götva bernsk­una og byrjar að hlúa að þeirri skoðun að börn séu eins konar „tabula rasa“, autt blað, sem máli skiptir að fylla góðum gildum svo þau vaxi upp og verði nýtir þjóð­fé­lags­þegnar. Carlo Collodi leit á sög­una um Gosa sem harm­leik og í upp­haf­legu gerð­inni var Gosi meira að segja bein­línis tek­inn af lífi, sem var refs­ingin fyrir hans illu og and­fé­lags­legu hegðun.

Það gekk auð­vitað ekki, Gosa var þegar til kom hlíft við ömur­legum dauða en hins vegar var hann lát­inn sjá að sér. Gosi sner­ist til betri vegar, bjarg­aði föður sínum úr maga hund­fisks­ins (hvals­ins), gerð­ist góður og gekk í skóla til að mennt­ast og verða að menn­ing­ar­veru. Þar með öðl­að­ist sagan líka þann eig­in­leika, sem hentar svo vel fyrir leik­húsið og frá­sagn­ar­tækni þess – „katharsis“ er hug­tak jafn­gam­alt vest­rænni leik­hús­hefð, er frá Aristótel­esi komið og þýðir „hug­ar­fars­hreinsun“ sem merkir að sögu­hetjan skilur að hún hafi verið á villu­vegum en lærir að breyta rétt fyrir rás atburða. Hug­ar­fars­hreinsun aðal­hetj­unnar verður okkur áhorf­endum hvatn­ing til að breyta eins, láta af ósiðum og ger­ast þau hin góðu börn sem sam­fé­lagið vill og þarfn­ast.

Höfundar leik­gerð­ar­innar, þau Karl Ágúst Úlfsson, Ágústa Skúla­dóttir og leik­hóp­ur­inn, fylgja þeirri línu nokkuð sam­visku­sam­lega. Það er að vísu frekar lítið gert úr vondum eig­in­leikum Gosa og þeir afsak­aðir einna helst með ung­æði og fákunn­áttu – það fylgir Gosa frá upp­hafi að þótt hann breyti rangt, þá er það fyrir klaufa­skap og að nú þurfi hann bara að fara sinn veg niður til heljar og upp aftur til að verða góður. Sympat­ískur er hann frá upp­hafi. Í leik­gerð­inni er því far­inn vegur á milli hins upp­haf­lega Gosa Collodis og Gosa Disneys og sem liggur kannski heldur nær Disney, ekki síst vegna þess að Gosi bless­aður gerir sér á köflum grein fyrir því hversu illa hann breytir og brestur þá út í sjálfs­á­sak­anir, sem ungir áhorf­endur þekkja eflaust úr borg­ara­legu upp­eldi nútím­ans. Það er auð­vitað val leik­gerð­ar­höf­unda að fara þessa leið og hún gengur að öllu leyti upp í leik­gerð­inni; mig langar hins vegar til að velta upp þeirri spurn­ingu hvort hefði hugs­an­lega verið ástæða til að ganga lengra.

Fyrir nokkrum árum kom út skáld­saga, sem sækir inn­blástur í ævin­týrið um Gosa og tekur fyrst og fremst á til­hneig­ingu hans til að ljúga. Sagan heitir „Splintered: A Political Fairy Tale“ og er eftir Thomas London. Sú saga segir frá Gosa, sem var einu sinni alvöru drengur sem gat ekki sagt ósatt orð – en umbreytt­ist í stjórn­mála­mann sem getur ekki haldið sig við sann­leik­ann. Þetta er ekki sagt hér til að láta í ljósi ónægju með þá leið að segja frá Gosa sem valin er í sýn­ingu Karls Ágústs, Ágústu og leik­hóps­ins. En þessu er skotið að til gam­ans til að benda á að enn er ekki búið að skapa síð­asta afbrigðið af Gosa – hann er og verður hluti af okkar menn­ingu og mun um verða við­fangs­efni rit­höf­unda, kvik­mynda­gerð­ar­manna og leik­hús­lista­manna um mörg ókomin ár – okkur les­endum og áhorf­endum til enda­lausrar ánægju.

Gosi á stóra sviði Borg­ar­leik­húss­ins er afskap­lega vel unnin, vönduð og fal­leg sýn­ing. Leik­hóp­ur­inn er ekki nema fimm manns og sér bæði um leik og hljóð­færa­slátt og er hvort tveggja af fjöl­breyttu tagi. Leik­hóp­ur­inn er á heild­ina litið ein­vala­lið og þarf ekki að fara um það mörgum orðum. Árni Þór Lárusson er nýr í hlut­verki Gosa og mun leika það til skiptis við Harald Ara Stef­áns­son, sem var í upp­haf­lega leik­hópnum. Árni Þór skilar hlut­verk­inu með prýði, tengir vel við áhorf­endur og nær að halda því jafn­vægi sem þarf milli hins hrekkj­ótta og dóm­greind­ar­lausa Gosa og þess Gosa sem lærir á end­anum af mis­tökum sínum og sam­ein­ast föður sínum í lokin. Hlut­verkin eru mörg og hlut­verka­skipti hröð, teng­ingar milli tal­aðs máls, söngs og hljóð­færa­leiks eru lipur og frá­sögnin öll fjör­leg og kraft­mikil.

Leik­myndin nýtir stóra sviðið vel með mis­mun­andi svæðum og hæðum og bak­tjaldið er hug­vit­sam­lega hannað og þjónar bæði sem mynda­tjald þar sem birt­ast myndir sem segja hvort við séum stödd í bænum hans Gosa eða inni í hund­fisk­inum þar sem þeir lenda, Gosi og Jafet faðir hans. Þá eru skemmti­legar inn­komur og útgöngur um bak­tjaldið sem efla ævin­týra­blæ sýn­ing­ar­innar. Þá er ástæða til að nefna hug­vit­sam­lega bún­inga og frá­bær gervi og grímur sem tengja við ítalskan upp­runa sög­unnar og gleður svo sann­ar­lega augað.

Tón­listin byggir á áheyri­legum meg­in­stefjum og fleytir sýn­ing­unni vel áfram, gleður eyrað og ásamt marg­vís­legum hljóð­brögðum lífgar og eflir töfra leik­húss­ins – því það er aðals og ein­kenn­is­merki Gosa á stóra sviði Borg­ar­leik­húss­ins, að hér er treyst á þá töfra til fulls – og ein­fald­ast er að bregða sér á Gosa og sann­fær­ast af eigin raun.

Að end­ingu skal Borg­ar­leik­hús­inu hrósað fyrir vand­aða og vel unna leik­skrá, þar sem ungir áhorf­endur fá skemmti­legan minja­grip með sér heim. Í leik­skránni er ekki ein­asta að finna hefð­bundnar upp­lýs­ingar um sýn­ing­una, heldur er sögu­þráður sýn­ing­ar­innar rak­inn, söng­textar birtir og svo eru teikn­ingar sem má lita að eigin vild og vali. Slíkt er til fyr­ir­myndar og ber að þakka fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklistargagnrýni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár