Einstaklingar og fyrirtæki minnkuðu samdráttinn

Seðla­bank­inn telur nú að sam­drátt­ur­inn í lands­fram­leiðslu hafi ekki verið jafn­mik­ill í fyrra og búist var við fyrir nokkrum mán­uðum síðan. Ekki er það þó hinu opin­bera að þakka, heldur neyslu og fjár­fest­ingu ein­stak­linga og fyr­ir­tækja.

Neysla Íslendinga minnkaði samdráttinn í hagkerfinu í fyrra
Neysla Íslend­inga minnk­aði sam­drátt­inn í hag­kerf­inu í fyrra Mynd: Bára Huld Beck

Lands­fram­leiðsla er talin hafa dreg­ist saman um 7,7 pró­sent í fyrra, sam­kvæmt nýút­gefnum Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands. Þetta er minni sam­dráttur en bank­inn bjóst við í fyrra­haust, þrátt fyrir að fjár­fest­ing hins opin­bera hafi verið langt undir vænt­ingum. Aftur á móti virð­ist neysla og fjár­fest­ing ein­stak­linga og fyr­ir­tækja hafa verið kröft­ugri en áður var spáð.

Hvað varð um fjárfestinguna?

Líkt og Kjarninn fjall­aði um í síð­ustu viku nið­ur­færði Íslands­banki spá sína um opin­berar fjár­fest­ingar á tíma­bil­inu 2020-2022, þar sem ekki var ráð­ist í jafn­mörg fjár­fest­ing­ar­verk­efni í fyrra og áður var búist við. Nú telur bank­inn að heild­ar­um­fang opin­berra fjár­fest­inga á tíma­bil­inu verði 38 millj­örðum krónum minna en þeir töldu í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Svipaðan mun má sjá í Pen­inga­málum, þar sem búist var við fimmt­ungs­aukn­ingu í opin­berum fjár­fest­ingum í lok fyrra­sum­ars, en taldi hana svo ein­ungis munu aukast um þrjú pró­sent í lok nóv­em­ber. Nú telur bank­inn að fjár­fest­ingar hins opin­bera hafi dreg­ist saman um 7 pró­sent.

Samkvæmt Seðla­bank­anum eru vís­bend­ingar um að tafir hafi orðið umfram áætl­anir á fjár­fest­ingu ríkis og sveit­ar­fé­laga á fyrri helm­ingi árs­ins. Fjár­hags­á­ætl­anir stærstu sveit­ar­fé­lag­anna gefa til kynna að fjár­fest­ing hafi svo gengið betur á seinni helm­ingi árs­ins þó að mörg sveit­ar­fé­lög hafi í reynd skorið fjár­fest­ingu mikið niður á meðan önnur bættu í.

Bankinn segir að hliðrun í tíma á fjár­fest­ing­ar­á­ætl­unum stjórn­valda sé meg­in­á­stæðan fyrir þess­ari miklu minnkun, en bætir við að sam­dráttur í fjár­fest­ingum sé þvert á áætl­anir þeirra.

Einstaklingar og fyrirtæki til bjargar

Þrátt fyrir minni fjár­fest­ingar hins opin­bera er Seðla­bank­inn nú bjart­sýnni á stöðu heild­ar­fjár­fest­ingar í hag­kerf­inu en hann var áður, þökk sé minni sam­drætti í atvinnu­vega- og íbúða­fjár­fest­ingu. Sér­stak­lega minn­ist bank­inn á fjár­fest­ingu í atvinnu­vegum utan stór­iðju, skipa og flug­véla, sem dróst minna saman en stór­iðju­fjár­fest­ingar.

Einka­neysla dróst líka minna saman en áður var ætlað, sér­stak­lega síð­sum­ars og í byrjun hausts­ins. Samkvæmt Pen­inga­málum gefur þetta til kynna að heim­ilin hafi í meira mæli gengið á þann sparnað sem þau söfn­uðu upp í kjöl­far far­sótt­ar­innar.

Aftur á móti telur Seðla­bank­inn að neyslan hafi minnkað tölu­vert í fyrra­haust, sam­hliða þriðju bylgju far­ald­urs­ins og sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum sem henni fylgdi. Hins vegar er talið að neyslan hafi auk­ist aftur á ný á síð­ustu vikum árs­ins, eftir því sem smitum fækk­aði og létt var á ýmsum tak­mörk­unum. Bankinn áætlar að einka­neysla hafi dreg­ist saman um 4,4 pró­sent í fyrra miðað við árið 2019, sem er heilu pró­sentu­stigi minni sam­dráttur en hann taldi áður.

Vegna minni sam­dráttar í neyslu og fjár­fest­ingu einka­að­ila telur Seðla­bank­inn því að lands­fram­leiðsla hafi dreg­ist saman um 7,7 pró­sent í fyrra, en ekki 8,5 pró­sent líkt og hann spáði í síð­asta hefti Pen­inga­mála fyrir þremur mán­uðum síðan.

Erfið viðspyrna fram undan

Þrátt fyrir jákvæð­ari áætl­anir um árið 2020 er Seðla­bank­inn ekki bjart­sýnni um við­spyrn­una sem er fram undan í efna­hags­líf­inu. Nýjasta hefti Pen­inga­mála gerir ráð fyrir komu um 700 þús­und ferða­manna til lands­ins í ár, en það er nokkuð minna en bank­inn spáði fyrir þremur mán­uðum síðan. Spáin rímar þó vel við nýj­ustu þjóð­hags­spá Íslands­banka, þar sem einnig er gert ráð fyrir að 700 þús­und ferða­menn komi hingað í ár.

Búist er við að slakað verði smám saman á sótt­vörnum er líður á árið þótt gert sé ráð fyrir að tak­mark­anir verði við lýði í ein­hverri mynd fram á síð­asta fjórð­ung árs­ins. Því er talið að einka­neyslan verði nokkuð hæg að taka við sér, sér­stak­lega á fyrri helm­ingi árs­ins. Bankinn spáir því að lands­fram­leiðslan auk­ist um 2,5 pró­sent í ár, sem er svipuð spá og birt­ist í síð­asta hefti Pen­inga­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár