Meira atvinnuleysi og minni fjárfestingar en áður var talið

Íslands­banki telur nú að atvinnu­leysi muni vera 9,4 pró­sent í ár, sem er tölu­vert meira en hann gerði ráð fyrir í fyrra­haust. Einnig telur bank­inn að fjár­fest­ing hins opin­bera í kjöl­far krepp­unnar muni ekki aukast jafn­mikið og áður var talið.

Íslandsbanki gerir ráð fyrir viðspyrnu um leið og ferðamönnum fjölgar aftur hér á landi
Íslands­banki gerir ráð fyrir við­spyrnu um leið og ferða­mönnum fjölgar aftur hér á landi Mynd: Birgir Þór Harðarson

Grein­ing­ar­deild Íslands­banka er orðin svart­sýnni um stöð­una á vinnu­mark­aðnum í ár og gerir ekki lengur ráð fyrir eins mik­illi aukn­ingu í fjár­fest­ingu hins opin­bera og hún gerði í fyrra­haust. Þetta kemur fram í nýbirtri þjóð­hags­spá Íslands­banka fyrir tíma­bilið 2021-2023, en hún er fyrsta hag­spá árs­ins.

Þrálátari faraldur og óvissa um ferðamenn

Í henni segir að margar blikur hafi vaxið á lofti und­an­farið um að far­ald­ur­inn verði heldur þrá­lát­ari og efna­hags­bat­inn hæg­ari en von­ast var til, þrátt fyrir að margir hafi von­ast til skjóts við­snún­ings í ár.

[links]Í ár er búist við að hag­vöxt­ur­inn nái 3,2 pró­sentum, en sam­kvæmt grein­ing­ar­deild­inni ræðst kraftur við­spyrn­unnar fyrst og fremst af því hversu hraður upp­takt­ur­inn verður í komu ferða­manna á kom­andi miss­erum.

Sökum mik­illar óvissu um fjölda ferða­manna á næstu miss­erum útbjuggu höf­undar þjóð­hags­spár­innar þrjár sviðs­myndir. Í svört­ustu sviðs­mynd­inni er búist við að ein­ungis 400 þús­und ferða­menn komi til lands­ins í ár, á meðan búist er við þeir verði tæp­lega milljón tals­ins í þeirri björt­ustu.

Í grunn­s­viðs­mynd­inni sinni telur grein­ing­ar­deildin þó að ferða­menn verði 700 þús­und tals­ins í ár og að lang­flestir þeirra komi á seinni hluta árs­ins. Á næsta ári er svo gert ráð fyrir 1,3 milljón ferða­manna og 1,5 milljón ferða­manna á því þarnæsta.

9,4 prósenta atvinnuleysi

Gangi grunn­s­viðs­mynd bank­ans upp má búast við að atvinnu­leysi verði um 9,4 pró­sent í ár, en það er nokkru hærra en með­al­at­vinnu­leysi árs­ins 2020, sem áætlað er að hafi verið 8,6 pró­sent.

Nýju spá­tölur Íslands­banka um vinnu­mark­að­inn í ár eru tölu­vert svart­sýnni en þær sem birt­ust í síð­ustu þjóð­hags­spá þeirra í fyrra­haust. Muninn má sjá á mynd hér að neðan, en í gömlu spánni var gert ráð fyrir 7,6 pró­senta atvinnu­leysi í ár. Aftur á móti hafa lang­tíma­horf­urnar ekki breyst, enn er spáð því að atvinnu­leysið verði komið niður í fimm pró­sent á næsta ári.

Jón Bjarki Bentsson, aðal­hag­fræð­ingur Íslands­banka, segir í sam­tali við Kjarnann að spáin sé breytt þar sem nú sé búist við því að upp­takt­ur­inn í efna­hags­líf­inu verði seinna á ferð­inni en áður var ætlað. Slík seinkun þýðir að meiri bið verður á ráðn­ingum í mann­afls­frekum atvinnu­greinum, líkt og ferða­þjón­ust­unni, sem útskýri meiri atvinnu­leysi í ár.

Opinberar fjárfestingar undir spám

Í stórum dráttum hefur þjóð­hags­spáin þó lítið breyst hjá Íslands­banka frá því í sept­em­ber, þar sem spár um vöxt lands­fram­leiðslu og einka­neyslu fyrir árin 2020 og 2021 voru svip­aðar og nú.

Hins vegar má sjá mik­inn mun í væntum fjár­fest­ingum hins opin­bera á milli spáa, en þær eru áætl­aðar hafa verið um fimmt­ungi minni í fyrra en bank­inn spáði síð­asta sept­em­ber. Muninn á væntum fjár­fest­ingum má sjá á mynd hér að neðan.

Í þjóð­hags­spá sinni í fyrra­haust gerði grein­ing­ar­deildin ráð fyrir því að fjár­fest­ingar hins opin­bera myndu aukast um 17 pró­sent, þar sem gert var ráð fyrir því að ráð­ist yrði í fjölda fjár­fest­ing­ar­verk­efna á síð­ustu mán­uðum árs­ins.

Samkvæmt Jóni Bjarka var það svo ljóst út frá 9 mán­aða þjóð­hags­reikn­ingum Hagstofu og nýju fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar að minna yrði um opin­berar fjár­fest­ingar heldur en áður var talið. Í nýju þjóð­hags­spánni gerir Íslands­banki ráð fyrir að heild­ar­fjár­fest­ingar hins opin­bera á árunum 2020-2023 nemi um 336 millj­örðum króna, sem er 38 millj­örðum krónum minna en bank­inn gerði ráð fyrir í sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár