Fjármálaeftirlitið birtir lista yfir opinber störf sem teljast háttsett

Á vef Seðla­banka Íslands má nú nálg­ast lista yfir starfs­heiti sem Fjár­mála­eft­ir­litið skil­greinir sem hátt­sett opin­ber störf. Listinn er settur fram vegna reglu­gerðar um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka sem tók gildi í fyrra.

Tilkynningarskyldir aðilar, til dæmis bankar, eiga að framkvæma aukna áreiðanleikakönnun þegar viðskiptamenn þeirra eru háttsettir opinberir starfsmenn.
Til­kynn­ing­ar­skyldir aðilar, til dæmis bankar, eiga að fram­kvæma aukna áreið­an­leika­könnun þegar við­skipta­menn þeirra eru hátt­settir opin­berir starfs­menn. Mynd: Pexels

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur birt lista yfir þau starfs­heiti hér á landi sem telj­ast til hátt­settra opin­berra starfa.

Þetta gerir Fjár­mála­eft­ir­litið til þess að upp­fylla skyldur sínar sam­kvæmt reglu­gerð um ein­stak­linga í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla með til­liti til aðgerða gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, sem tók gildi í fyrra.

Ein­stak­lingar sem eru eða hafa verið hátt­settir í opin­berri þjón­ustu, nán­asta fjöl­skylda þeirra og nánir sam­starfs­menn eru nefni­lega taldir vera í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla í skiln­ingi laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Stjórnmálamenn, dómarar, opinberir stjórnarmenn og framkvæmdastjórar

Listinn sem Fjár­mála­eft­ir­litið hefur nú gefið út á að geta verið til hlið­sjónar við mat á því hvort aðilar séu í áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla. Á list­anum eru allir þing­menn og ráð­herrar, for­seti Íslands og allir stjórn­ar­menn í stjórn­mála­flokkum, eða aðilar í fram­kvæmda­stjórn, eftir því sem á við, en það er mis­jafnt milli flokka.

Dómarar við íslenska dóm­stóla (þó ekki hér­aðs­dóm­arar) og íslenskir dóm­arar við alþjóða­dóm­stóla eins og Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, EFTA-dóm­stól­inn og Alþjóð­lega haf­rétt­ar­dóm­stól­inn eru einnig á list­anum og það eru sömu­leiðis hæst­ráð­endur í Seðla­banka Íslands, seðla­banka­stjóri og vara­seðla­banka­stjórar.

[adspot]

Íslend­ingar sem starfa sem fram­kvæmda­stjórar eða stjórn­ar­menn fyrir alþjóða­stofn­anir á borð við EFTA og eft­ir­lits­stofnun EFTA falla líka í þennan flokk, sam­kvæmt list­anum frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

Sendi­herrar Íslands og stað­genglar þeirra telj­ast einnig hátt­settir opin­berir starfs­menn og það gera einnig allir stjórn­ar­menn í opin­berum fyr­ir­tækjum, auk fram­kvæmda­stjóra þeirra.

Þannig telj­ast stjórn­ar­menn til dæmis Rík­is­út­varps­ins, tón­list­ar­húss­ins Hörpu og Íslands­pósts allir vera hátt­settir opin­berir starfs­menn og sem slíkir eru þeir í skil­greindum áhættu­hópi vegna stjórn­mála­legra tengsla með til­liti til aðgerða gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, sem tók sem áður segir gildi í fyrra.

Til­kynn­ing­ar­skyldir aðilar, til dæmis bankar, eiga að fram­kvæma aukna áreið­an­leika­könnun þegar við­skipta­menn þeirra eru í slíkum áhættu­hópi.

Fréttin hefur verið upp­færð: Tekið er fram að starf hér­aðs­dóm­ara telst ekki hátt­sett opin­bert starf að mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, en það láð­ist í fyrri útgáfu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár