Hvorki Miðflokkur né Framsókn mælast með mann inni í Reykjavík

Sam­fylk­ingin, Sós­í­alista­flokkur Íslands og Viðreisn mæl­ast á góðri sigl­ingu í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur. Staða stjórn­ar­flokk­anna í höf­uð­borg­inni veik­ist mikið og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi ekki ná inn manni þar að óbreyttu.

Lilja D. Alfreðsdóttir stendur frammi fyrir brekku til að halda sér inni á þingi samkvæmt könnunum.
Lilja D. Alfreðs­dóttir stendur frammi fyrir brekku til að halda sér inni á þingi sam­kvæmt könn­unum. Mynd: Bára Huld Beck


Hvorki Mið­flokk­ur­inn né Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi ná inn manni í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt könn­unum sem Maskína gerði fyrir frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar.

Mið­flokk­ur­inn fékk einn þing­mann kjör­inn í Reykja­vík 2017, Þorstein Sæmunds­son sem datt inn sem upp­bót­ar­þing­maður í Reykja­vík suður. Þá fékk flokk­ur­inn 7,6 pró­sent atkvæða í því kjör­dæmi og 7,0 pró­sent í Reykja­vík suður. Samkvæmt könnun Maskínu fengi Mið­flokk­ur­inn 4,8 pró­sent í Reykja­vík suður nú og ein­ungis 3.6 pró­sent í Reykja­vík norður.

Lilja D. Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, var ell­efti og síð­asti kjör­dæma­kjörni þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suður í síð­ustu kosn­ingum þegar flokkur hennar fékk 8,2 pró­sent atkvæða í kjör­dæm­inu. Verr gekk í hinu Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu þar sem Framsókn fékk 5,3 pró­sent atkvæða og náði ekki inn manni. Miðað við stöðu mála sam­kvæmt könnun Maskínu er Lilja ansi langt frá því að ná inn á ný, þar sem fylgi Fram­sóknar í kjör­dæmi hennar hefur næstum helm­ing­ast og mælist 4,3 pró­sent.

Í Reykja­vík norður, þar sem Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra ætlar að bjóða sig fram næst er fylgið aðeins skárra, eða 4,8 pró­sent, en þó ekki nægj­an­legt til að ná inn manni ef þetta yrði nið­ur­staða kosn­inga.

[adspot]Gögnin sem nið­ur­stöð­urnar eru unnar úr koma úr tveimur könn­unum Maskínu, annarri sem gerð var í des­em­ber og hinni sem var gerð í jan­úar. Fjöldi svar­enda í Reykja­vík suður í báðum könn­unum var 557, fjöldi svar­enda í Reykja­vík norður var 632.

Samfylkingin, Sósíalistaflokkurinn og Viðreisn á siglingu

Sá flokkur sem bætir mestu við sig í höf­uð­borg­inni sam­kvæmt könn­unum Maskínu er Sam­fylk­ingin. Í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, þar sem Helga Vala Helga­dóttir er lík­lega að fara að leiða flokk­inn aftur, mælist fylgi hans nú 25,7 pró­sent. Það er meira en tvö­földun á fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar í kjör­dæm­inu frá síð­ustu kosn­ingum og myndi gera flokk­inn að langstærsta flokknum í því.

Sam­fylk­ingin bætir líka við sig í Reykja­víkur suður – fjórum pró­sentu­stigum – og myndi fá 17 pró­sent atkvæða. Hún yrði næst stærsti flokk­ur­inn í kjör­dæm­inu yrði þetta nið­ur­staða kosn­inga og allar líkur yrðu þá á að þing­menn Sam­fylk­ingar í Reykja­vík yrðu fimm tals­ins, í stað tveggja eins og nú er.

Hinn stóri sig­ur­veg­ar­inn í höf­uð­borg­inni sam­kvæmt könn­unum Maskínu er Sós­í­alista­flokkur Íslands. Hann bauð ekki fram 2017, á enn eftir að kynna stefnu­skrá og fram­boðs­lista fyrir kom­andi kosn­ingar en mælist samt sem áður með 6,4 pró­sent fylgi í suður og 5,1 pró­sent í norður. Í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum er flokk­ur­inn með meira fylgi en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins sam­kvæmt könn­unum Maskínu.

Viðreisn er einnig á ágætri sigl­ingu og bætir vel við fylgi sitt í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum frá síð­ustu kosn­ingum. Samkvæmt könn­unum Maskínu fengi flokk­ur­inn 11,9 pró­sent atkvæða (3,5 pró­sentu­stigi meira en 2017) í norður og 14,6 pró­sent í suður (6,1 pró­sent meira en 2017).

Píratar mega líka vel við una. Þeir bæta við sig 2,4 pró­sentu­stigum í Reykja­vík suður og mæl­ast með 13,8 pró­sent fylgi og eru nán­ast á pari – lækka um 0,5 pró­sentu­stig niður í 13,1 pró­sent – í Reykja­vík norður.

Sjálfstæðisflokkurinn tapar og Vinstri græn í vanda

Framsókn er ekki eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem tapar fylgi í höf­uð­borg­inni. Það gera hinir tveir líka. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi halda stöðu sinni sem stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík suður, þar sem Sigríður Á. Andersen leiddi lista flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum, ef kosið yrði í dag með 20,6 pró­sent fylgi en myndi tapa 2,2 pró­sentu­stigum frá 2017. Í hinu Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu, sem Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra leiddi síð­ast, tapar flokk­ur­inn hins vegar for­ystu­hlut­verki sínu til Sam­fylk­ing­ar­innar og mælist með 19,6 pró­sent fylgi, eða þremur pró­sentu­stigum minna en hann fékk upp úr kjör­köss­unum fyrir rúmum þremur árum.

Vinstri græn tapa allra flokka mest í Reykja­vík rá síð­ustu kosn­ingum. Í Reykja­vík norður, kjör­dæmi Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, bíður flokk­ur­inn afhroð sam­kvæmt könnun Maskínu og tapar heilum níu pró­sentu­stigum, fer úr 21,5 pró­sentum í 12,5 pró­sent. Kjör­dæma­kjörnum þing­mönnum hans þar myndi að öllum lík­indum fækka úr þremur í einn fyrir vikið.

Í Reykja­vík suður, þar sem búist er við því að Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra leiði aftur í haust, fer fylgið úr 18,9 pró­sent í 12,8 pró­sent, og lækkar því um 6,1 pró­sentu­stig. Það myndi líka skila einum kjör­dæma­kjörnum þing­manni.

Flokkur fólks­ins tapar líka fylgi í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og myndi fá ann­ars vegar 5,5 pró­sent í suður og hins vegar 3,7 pró­sent í norður ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt nið­ur­stöðu Maskínu. Það myndi ekki duga til að ná inn þing­manni í kjör­dæm­unum.

Minna rót í Kraganum, en samt hreyfingar

Maskína skoð­aði líka stöð­una í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, Kraganum svo­kall­aða, stærsta kjör­dæmi lands­ins sem samastendur af nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur. Þar eru sveifl­urnar minni en í höf­uð­borg­inni. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi tapa mestu – 3,9 pró­sentu­stigum – en áfram vera langstærsti flokkur kjör­dæm­is­ins, þar sem Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, leiðir. Alls segj­ast 27 pró­sent aðspurðra ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn þar. Ekki er víst að það myndi hafa nein áhrif á þá fjóra þing­menn sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er þegar með í kjör­dæm­inu.

Sá flokkur sem bætir mestu við sig í Kraganum er Viðreisn, sem mælist nú með 15,2 pró­sent fylgi eða 5,7 pró­sent meira en haustið 2017. Það er jafn­mikið fylgi og Sam­fylk­ingin, sem bætir við sig 3,1 pró­sentu­stigi, mælist með og báðir flokkar myndi lík­ast til fá tvo kjör­dæma­kjörna þing­menn hvor, og tvö­falda þann fjölda sem þeir hafa nú. Píratar ættu að sigla lygnan sjó, bæta við sig einu pró­sentu­stigi og mæl­ast með 9,3 pró­sent fylgi. Það dugar til að halda eina þing­manni þeirra í Kraganum, en allar líkur eru á að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir leiði flokk­inn þar í haust.

Fylgis­tap Vinstri grænna er mun minna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi en í höf­uð­borg­inni og fylgið fer úr 13,6 pró­sentum í 12 pró­sent. Líklega myndi flokk­ur­inn þó tapa kjör­dæma­kjörnum þing­manni fyrir vikið. Það myndi Mið­flokk­ur­inn að öllum lík­indum gera líka þar sem fylgi hans fer úr 9,8 pró­sentum í síð­ustu kosn­ingum í 6,8 pró­sent.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem er með einn mann kjör­dæma­kjör­inn í Kraganum nú, myndi ekki ná að end­ur­taka þann leik miðað við stöðu mála í könn­unum Maskínu, þar sem fylgi flokks­ins er nú að mæl­ast 6,6 pró­sent.

Flokkur fólks­ins tapar einnig fylgi í Kraganum og mælist með 4,7 pró­sent. Minnstur þeirra flokka sem mæl­ast var svo Sós­í­alista­flokk­ur­inn með 3,3 pró­sent fylgi.

Fjöldi svar­enda í könn­unum Maskínu í Suð­vest­ur­kjör­dæmi var 807.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár