Faraldurinn ýfði upp kunnugleg sár hjá Spánverjum

Yfir­stand­andi far­aldur hefur verið Spán­verjum sér­stak­lega skæður, en þeir hafa einnig þurft að þola frelsis­tak­mark­anir vegna hans, sem leitt hafa til djúprar efna­hag­skreppu. Þessi vanda­mál eru þó ekki ný af nál­inni á Spáni.

Gran Vía í Madríd á Spáni
Gran Vía í Madríd á Spáni Mynd: Pexels - Alex Azabache

Vegna kór­ónu­veirunnar og aðgerða gegn útbreiðslu hennar er spænska hag­kerfið nú í dýpstu nið­ur­sveiflu frá því að borg­ara­styrj­öld geis­aði þar í landi fyrir tæpri öld síðan. Samkvæmt Þórunni Helga­dóttur hag­fræð­ingi gæti póli­tísk sundr­ung, saga og menn­ing Spánar auk umsvifa ferða­þjón­ustu útskýrt hvers vegna landið varð svona illa fyrir barð­inu á veirunni og efna­hags­legum afleið­ingum hennar.

Menning og þéttbýli gætu hafa fjölgað smitum

Í grein Þórunnar í jóla­blaði Vís­bend­ingar bendir hún á margar hugs­an­legar ástæður að baki þess hversu hratt veiran tók að dreifast á Spáni síð­asta vor. Til að mynda sé algengt að fólk búi þröngt í spænskum stór­borgum, þar sem fast­eigna­verð er hlut­falls­lega hátt miðað við laun. Þar búi oft saman margir vinn­andi ein­stak­lingar, sem hverjir hafi sína fjöl­skyldu og vina­hópa utan heim­il­is­ins.

Einnig veltir hún því upp hvort menn­ing­ar­legir þættir hafi stuðlað að auk­inni dreif­ingu, en mik­ill sam­gangur er milli fjöl­skyldu­með­lima þar í landi. Því til stuðn­ings nefnir hún nýlega sam­an­tekt frá spænska heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu sem sýndi að rúm­lega 40 pró­sent hóp­sýk­inga megi rekja til vina- eða fjöl­skyldu­hitt­inga.

Hundar máttu hreyfa sig en ekki börn

Þórunn bendir þó á að spænska rík­is­stjórnin brugð­ist hart við þess­ari dreif­ingu smita, en sam­kvæmt henni risti útgöngu­bannið,sem tók gildi um miðjan mars í fyrra, þjóð­ina djúpt.

Einnig segir hún að spænsk börn hafi verið hneppt í algjör stofu­fang­elsi á þessum tíma, þar sem engum var leyft að fara úr húsi nema til þess að sækja nauð­synja­vörur.

„Athygli vakti að hunda­eig­endur fengu und­an­þágu frá útgöngu­bann­inu til þess að viðra dýrin sín,“ bætir Þórunn við. „Göngu­ferðin átti þó að vera stutt og aðeins til þess að full­nægja grund­vall­ar­hreyfi­þörf hunds­ins. Ekki var minnst á hreyfi­þörf barna í reglu­gerð­inni. Af þeim sótt­varna­að­gerðum sem bein­ast að börnum eru þessar aðgerðir þær hörð­ustu í Evrópu en spænsk börn máttu ekki yfir­gefa heim­ili sín í 45 daga.“

Atvinnuleysi eykst á ný

Vegna veirunnar og útgöngu­banns­ins hefur lands­fram­leiðsla á Spáni dreg­ist tölu­vert saman og atvinnu­leysi auk­ist á ný, en það jókst einnig tölu­vert í kjöl­far efna­hag­skrepp­unnar fyrir rúmum ára­tug síðan. Þórunn vitnar í nýút­gefna skýrslu frá OECD, en í henni kemur fram að það muni taka nokkur ár fyrir spænskt efna­hags­líf að ná bata og að atvinnu­leysi muni hald­ast hátt í langan tíma.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár