Verðlagning íslenskra félaga bjartsýnni en áður

Fjár­festum finnst meira varið í flest fyr­ir­tæki í Kaup­höll­inni heldur en árs­reikn­ingar þeirra segja til um og hefur sá mæli­kvarði hækkað á síð­ustu árum. Verð­lagn­ingin er þó nokkuð lægri en í kaup­höllum hinna Norð­ur­land­anna.

Húsnæði Kauphallarinnar
Húsnæði Kaup­hall­ar­innar Mynd: Nasdaq Iceland

Verðmiði íslenskra fyr­ir­tækja í Kaup­höll­inni er að með­al­tali 69 pró­sentum hærri en bók­færða virðið þeirra. Hlutfall mark­aðsvirðis þess­ara 19 fyr­ir­tækja á móti bókværðu virði hefur auk­ist hér á landi á síð­ustu árum, en er þó ekki jafn­hátt og í kaup­höllum í Osló, Stokk­hólmi, Kaup­manna­höfn og Helsinki.

Algengur mæli­kvarði á verð­lagn­ingu fyr­ir­tækis er að meta mark­aðsvirði þess út frá eig­in­fjár­stöðu, með svoköll­uðu P/B-hlut­falli. Lágt hlut­fall milli þess­ara tveggja breytna gæti gefið til kynna litla trú fjár­festa á fyr­ir­tæk­inu, á meðan hátt hlut­fall er mögu­legur mæli­kvarði á bjart­sýni um vaxta­mögu­leika þess til fram­tíðar.

Hlut­fallið á Íslandi mælist nú í 1,69, sem þýðir að fjár­festar telja fyr­ir­tækin vera 69 pró­sent verð­mæt­ari en árs­reikn­ingar þeirra segja til. Á síð­ustu tíu árum hefur þetta hlut­fall verið á bil­inu 1,3 til 1,6 hjá fyr­ir­tækjum í Kaup­höll­inni.

Sex fyrirtæki undir einum

Þó er nokkur munur á milli fyr­ir­tækja, en hjá sex þeirra er hlut­fallið undir einum, sem gefur til kynna að fjár­festar telja skráð virði þeirra ekki jafn­hátt og raun­veru­legt virði þeirra. Lægst er hlut­fallið hjá Arion banka, en Benedikt Gíslason banka­stjóri sagði bank­ann vera með of mikið eigið fé í til­kynn­ingu sem fylgdi síð­asta upp­gjöri þess. Mark­aðsvirðið á móti skráðu eigin fé bank­ans er 0,75.

Hlut­fallið er einnig undir einum hjá fast­eigna­fé­lög­unum þremur í Kaup­höll­inni, Reitum, Regin og Eik. Kjarninn fjall­aði í gær um gengi þeirra á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, en sam­kvæmt árs­reikn­ingum fyr­ir­tækj­anna er búist við að útbreiðsla kór­ónu­veirunnar muni hafa nei­kvæð áhrif á rekstur þeirra út árið 2021.

Til við­bótar við þessi fjögur fyr­ir­tæki mælist verð­mið­inn á Icelandair einnig í 0,93 og svo 0,96 í Eimskip.

Fer eftir geirum

Í flestum til­vikum er hlut­fallið svipað innan hvers geira sem fyr­ir­tækið starfar í. Til að mynda eru fjar­skipta­fyr­ir­tækin Sýn og Síminn bæði með hlut­fall á milli 1 og 2, þótt hlut­fallið hjá Símanum sé aðeins hærra. Sömu sögu má segja um sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin Iceland Seafood og Brim, sem bæði eru með hlut­fallið á þessu bili. Trygg­inga­fyr­ir­tækin þrjú, tm,Sjóvá og Vís, eru einnig með mjög svipað hlut­fall, en það er á milli 1,6 og 1,8.

Í smá­sölu og elds­neyt­is­sölu gætir þó nokk­urs mis­ræmis. Á meðan Skelj­ungur og Festi eru með svipuð hlut­föll á bil­inu 1,6 til 1,7 er það mun hærra hjá Högum, þar sem það er tæp­lega 2,5.

Hlut­fallið er einnig hátt hjá tækni­fyr­ir­tæk­inu Origo, eða í 2,11. Langhæst er þó hlut­fallið hjá Marel, þar sem það nær 3,87.

Lægst á Norðurlöndunum

Þrátt fyrir að hlut­fall mark­aðsvirðis á móti bók­færðs virðis sé hærra hér­lendis en það hefur verið á síð­ustu árum er það nokkuð lágt ef litið er til hluta­bréfa­mark­að­ar­ins ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. Sam­an­burð­inn má sjá á mynd hér að ofan, en sam­kvæmt henni er hlut­fallið hæst í kaup­höll Kaup­manna­hafnar, þar sem það er rúm­lega tvö­falt hærra en hér á landi. Í Stokk­hólmi, Osló og Helsinki er svo hlut­fallið nokkuð hærra en á Íslandi, eða rétt yfir tveimur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár