Úrskurður í Landsréttarmálinu verður kveðinn upp 1. desember

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu mun kveða upp úrskurð sinn í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða á full­veld­is­dag­inn.

Efri deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu mun kveða upp úrskurð í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða 1. des­em­ber næst­kom­andi, eða eftir ell­efu daga. Þann dag munu 102 ár vera lið­inn frá því að Ísland fékk full­veldi. Frá þessu er greint á vef RÚV en þar segir að þetta komi fram í bréfi sem dóm­stóll­inn hafi sent máls­að­ilum.

Mál­­flutn­ingur í Lands­rétt­­ar­­mál­inu svo­­kall­aða fyrir efri deild Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu fór fram 5. febr­­úar síð­ast­lið­inn í Strass­borg. Alls sátu 17 dóm­­arar ­­­deild­inni við með­­­ferð máls­ins. Á meðal þeirra er Róbert Spanó, þá vara­­for­­seti og nú for­seti Mann­rétt­inda­­dóm­stóls­ins.

Hann var einnig á meðal þeirra þeirra dóm­­ara sem felldu áfell­is­­dóm í mál­inu 12. mars síð­­ast­lið­inn. ­Ís­lenska ríkið ákvað í apríl að áfrýja þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu og beina því til yfir­­­deildar dóms­ins að taka málið aftur fyr­­­­ir.

Greint var frá því þann 9. sept­­em­ber síð­ast­lið­inn að yfir­­­deildin hefði ákveðið að taka Lands­rétt­­ar­­málið fyr­­ir. Dóm­­stóll­inn felldi upp­­haf­­legan dóm sinn síð­asta vor þar sem bæði Sig­ríður og Alþingi fengu á sig áfell­is­­­­­­dóm fyrir það hvernig haldið var á skipan 15 dóm­­­­­­ara við Lands­rétt í byrjun júní árið 2017.

[adspot]Í Lands­rétt­ar­mál­inu felst að Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­­­mála­ráð­herra, ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­­­­­­nefndar um skipun fimmtán dóm­­­­­­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað þess í stað að til­­­­­­­­­­­nefna fjóra ein­stak­l­inga dóm­­­­­­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­­­­­­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­­­­­­ustu. Alþingi sam­­­­­­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Tveir umsækj­end­anna sem metnir höfðu verið á meðal fimmtán hæf­­­ustu af hæfn­is­­­nefnd­inni, Ást­ráður Har­alds­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­­­son, stefndu rík­­­­­­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­­­ar. Hæst­i­­­­­­réttur komst að þeirri nið­­­­­­ur­­­­­­stöðu í des­em­ber 2018 að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­­­­­nefnd­­­­­­ar­inn­­­­­­ar.

Málinu end­aði síðar fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu sem komst að þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­­­ar­­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­­með­­­­­­­ferð. Þrír þeirra hafa síðan verið skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt að nýju.

Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­­mála­ráð­herra. Íslenska ríkið ákvað að vísa mál­inu til yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins og mál­flutn­ingur þar fór fram fyrr á þessu ári.

Dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins, sem var í máli manns sem heitir Guð­­mundur Andri Ást­ráðs­­son.

Þrír þeirra dóm­ara sem Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn taldi að hefðu verið ólög­lega skip­aðir hafa síðan verið skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt að nýju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár