„Þurfum ekki að berja vaxtarófið með kaupum sisona“

Seðla­banka­stjóra þykir skiln­ing skorta á pen­inga­hag­fræði í litlum opnum hag­kerfum í umræðum um það hvort bank­inn sé að gera nóg til að lækka lang­tíma­vexti.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri sagði Ísland vera í annarri stöðu en önnur lönd þegar kemur að pen­inga­stefnu og þurfi þess vegna ekki að nýta sömu tæki og aðrir seðla­bankar hafa gert til að bregð­ast við núver­andi kreppu. Einnig segir hann ótækt að Seðla­bank­inn prenti pen­inga á sama tíma og hann grípur inn í á gjald­eyr­is­mark­aði, auk þess að hann missi ekki svefn þótt ein­hverjir við­skipta­bankar hækki vexti sína á lang­tíma­lánum.

Þetta kom fram á fundi pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands, sem fór fram í morgun. Á fund­inum var gerð grein fyrir lækkun stýri­vaxta bank­ans, en ákveðið var að lækka þá niður um 0,25 pró­sentu­stig og eru þeir því í 0,75 pró­sentum þessa stund­ina.

Á fund­inum gaf Ásgeir sér tíma til að bregð­ast við þeirri umræðu sem hefur átt sér stað um Seðla­bank­ann und­an­farið, en honum hafi þótt skorta skiln­ing á pen­inga­hag­fræði í litlum opnum hag­kerfum í þeirri umræðu.

Sjóðs­stjórar hafa gagn­rýnt lítil kaup Seðla­bank­ans á rík­is­skulda­bréfum, en hann hefur keypt innan við eitt pró­sent af þeim 150 millj­örðum sem hann sagð­ist vera til­bú­inn til að kaupa í svo­kall­aðri magn­bund­inni íhlutun (e. quantitative easing) til þess að halda lang­tíma­vöxtum niðri. Á síð­ustu mán­uðum hafa lang­tíma­vextir á rík­is­skulda­bréfum hækkað nokkuð, en Íslands­banki hækk­aði í kjöl­farið vexti sína á löngum íbúða­lánum.

Seðlabankinn hafi aðra möguleika en önnur lönd

Ásgeir sagði hins vegar nokkrar ástæður vera að baki lít­illa kaupa rík­is­skulda­bréfa hjá bank­anum. Í fyrsta lagi væri Ísland í annarri stöðu en önnur lönd, þar sem hér séu jákvæðir stýri­vextir og verð­bólga. Þessi staða valdi því að Seðla­bank­inn hafi aðra mögu­leika til að bregð­ast við efna­hags­sam­drætti heldur en aðrir seðla­bankar. Aðgerðum þeirra, til dæmis magn­bund­inni íhlutun og fram­sýnni leið­sögn, sé beitt eftir að stýri­vextir séu komnir í núll.

„Það er þá mjög mik­il­vægt, þegar menn bera saman Seðla­banka Íslands við aðra seðla­banka, að þetta sé haft í huga. Við erum með jákvæða stýri­vexti, við erum enn með að ein­hverju leyti klass­ísk vanda­mál sem tengj­ast pen­ingum. Þannig að ef við lækkum vexti, þá lækkum við stýri­vexti, eins og við gerðum núna. Við þurfum ekki að berja vaxtarófið með kaupum sisona, við erum í annarri stöðu,“ sagði Ásgeir.

Geta ekki gefið með annarri og tekið með hinni

Seðla­banka­stjór­inn bætti einnig við að pen­inga­stefna í litlu opnu hag­kerfi, líkt og Ísland er, þurfi að taka mið af gjald­eyr­is­mark­aði þess. Á síð­ustu mán­uðum hafi Seðla­bank­inn þurft að beita inn­gripum á gjald­eyr­is­mark­aði til að halda geng­inu stöð­ugu, þar sem stórir erlendir fjár­festar hafi selt eignir sínar á Íslandi. Með inn­gripum Seðla­bank­ans hafi pen­ingar verið teknir úr umferð í hag­kerf­inu, sem Ásgeir segir að hafi þver­öfug áhrif en kaup Seðla­bank­ans á rík­is­skulda­bréfum, sem væri ígildi pen­inga­prent­unar:

„Að láta sér detta í hug að við förum að láta út krónur með annarri hendi til þess að taka á móti þeim með hinni á gjald­eyr­is­mark­aði, það gengur ekki upp.“

Enginn héraðsbrestur þótt bankar hækki vexti

Þar að auki minnt­ist Ásgeir á umfjöllun síð­ustu daga í kjöl­far þess að tveir við­skipta­bankar höfðu hækkað vexti sína á lánum sem séu með lengri vaxta­bind­ingu. Samkvæmt Ásgeiri er slíkt „eng­inn hér­aðs­brestur,“ þar sem ekki hefur verið neinn vandi fyrir Seðla­bank­ann að koma pen­inga­stefn­unni áfram inn á fast­eigna­mark­að­inn. „Ég skil ekki afhverju við ættum að missa yfir því,“ sagði seðla­banka­stjór­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár