Vinstri græn tapa fylgi milli mánaða og Framsókn enn að mælast með lítinn stuðning

Viðreisn hefur aukið fylgi sitt um 73 pró­sent það sem af er kjör­tíma­bili. Sam­fylk­ing og Píratar hafa líka bætt vel við sig og Sós­í­alista­flokk­ur­inn tekur sömu­leiðis til sín. Aðrir flokkar mæl­ast nú undir kjör­fylgi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er varaformaður Vinstri grænna og Katrín Jakobsdóttir formaður hans.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son er vara­for­maður Vinstri grænna og Katrín Jak­obs­dóttir for­maður hans. Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi Vinstri grænna mælist nú 11,9 pró­sent og lækkað um 1,8 pró­sentu­stig milli mán­aða sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er á svip­uðum slóðum og hann var í lok sept­em­ber með 23,5 pró­sent fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig einu pró­sentu­stigi og mælist með stuðn­ing 7,7 pró­sent kjós­enda.

Þess ber þó að geta að fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í lok síð­asta mán­aðar, sem var 6,7 pró­sent, var það lægsta sem Gallup hefur nokkru sinn mælt hjá flokknum að einni könnun und­an­skildri. Sú könnun var gerð í sept­em­ber 2018 og sýndi flokk­inn með 6,6 pró­sent fylgi.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja er nú 43,1 pró­sent og allir mæl­ast þeir undir kjör­fylgi, en þeir fengu sam­an­lagt 52,9 pró­sent í kosn­ing­unum 2017. Því hafa þeir saman tapað um tíu pró­sentu­stigum.

Viðreisn bætir við sig

Sam­fylk­ingin er næst stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt Gallup og alls segj­ast 15,8 pró­sent kjós­enda styðja hann. Píratar mæl­ast með 12,1 pró­sent fylgi og dala lít­il­lega á milli mán­aða. Viðreisn mælist með 11,6 pró­sent fylgi sem er mesta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með í könn­unum Gallup á þessu ári.

[adspot]Sam­an­lagt fengu þessir þrír flokkar 28 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017. Nú mæl­ast þeir með 39,6 pró­sent og hafa því sam­tals bætt við sig 11,5 pró­sentu­stigum.

Mest hefur Viðreisn bætt við sig, eða 4,9 pró­sentu­stigum. Sam­fylk­ingin mælist nú með 3,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í októ­ber 2017 og Píratar hafa bætt við sig 2,9 pró­sentu­stigum.

Þá mælist Sós­í­alista­flokkur Íslands með 2,7 pró­sent fylgi, en hann mun bjóða fram til Alþingis í fyrsta sinn í sept­em­ber næst­kom­andi þegar næstu þing­kosn­ingar fara fram. Flokk­ur­inn hefur ein­ungis einu sinni mælst með fimm pró­sent fylgi í könn­unum Gallup, í lok febr­úar síð­ast­lið­ins. Þess ber þó að geta að Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur ekki kynnt hverjir munu manna lista flokks­ins, og skera sig því úr á meðal þeirra flokka sem mældir eru.

Undir kjörfylgi

Tveir flokk­anna í stjórn­ar­and­stöðu mæl­ast með minna fylgi en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum. Mið­flokk­ur­inn hefur ekki mælst yfir kjör­fylgi frá því í mars og nú segj­ast 9,9 pró­sent að þeir myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag. Það er nán­ast sama hlut­fall og fyrir mán­uði síðan. Mið­flokk­ur­inn fékk 10,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017.

Flokkur fólks­ins hress­ist aðeins á milli mán­aða og mælist með 4,5 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn hefur hins vegar ekki mælst með yfir fimm pró­sent fylgi í könn­unum Gallup frá því í lok árs 2018, eða í tæp tvö ár. Hann fékk 6,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum.

Nið­ur­stöður um fylgi flokk­anna á lands­vísu eru úr net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 30. sept­em­ber til 1. nóv­em­ber 2020. Heild­ar­úr­taks­stærð var 10.937 og þátt­töku­hlut­fall var 54,0 pró­sent. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,5-1,2 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár