Segir umfram eigið fé ekki hafa tengingu við úrræði stjórnvalda

Banka­stjóri Arion banka segir við­skipta­vini sína hafið notið góðs af minni álagn­ingum stjórn­valda á banka­kerfið og litla teng­ingu vera á milli þess og umfram eigin fé bank­ans.

Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni
Höf­uð­stöðvar Arion banka í Borg­ar­túni Mynd: EPA

Benedikt Gíslason banka­stjóri Arion banka segir lækkun banka­skatts hafi skilað sér í betri kjörum fyrir við­skipta­vini og að hún, auk ann­arra aðgerða stjórn­valda í banka­kerf­inu hafi litla teng­ingu við umfram eigið fé bank­ans. Enn fremur segir hann að ekki sé hægt að nýta allt umfram eigið fé bank­ans í ný íbúða­lán eða fyr­ir­tækja­lán.

[links]Kjarninn fjall­aði um nýbirt árs­fjórð­ungs­upp­gjör Arion banka síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, en sam­kvæmt því hagn­að­ist bank­inn um tæpa fjóra millj­arða króna á þriðja fjórð­ungi þessa árs. Í frétta­til­kynn­ingu sem fylgdi upp­gjör­inu sagði Benedikt að bank­inn væri í þeirri stöðu að vera með of mikið eigið fé, sem ómögu­legt væri að ávaxta í takt við mark­mið bank­ans.

Á síð­ustu sex mán­uðum hefur eigið fé Arion banka auk­ist um 8,6 millj­arða, sem er til­komið vegna hagn­aðar hans síð­ustu tvo árs­fjórð­unga. Í milli­tíð­inni hefur rík­is­stjórnin lækkað sér­stakan banka­skatt, auk þess sem Seðla­bank­inn lækk­aði stýri­vexti og minnk­aði eig­in­fjár­kröfur í mars með afnámi sér­staks sveiflu­jöfn­un­ar­auka til þess að auka eft­ir­spurn á banka­starf­semi og auð­velda greiðslu­miðlun í banka­kerf­inu.

Arion með hærri eiginfjárkröfur

Arion banki lítur þó enn svo á að sveiflu­jöfn­un­ar­auk­inn sé hluti af kröfum stjórn­valda til lengri tíma þar sem ætla má að hann verði settur á þegar heims­far­aldr­inum lýkur og hefur því bank­inn sett sér hærri eig­in­fjár­kröfur. Stjórn­völd gera þá kröfu á bank­ann að eig­in­fjár­hlut­fall hans (eig­in­fjár­þáttur 1) sé 13,6 pró­sent en bank­inn hefur sett sér það mark­mið að það hlut­fall sé 17 pró­sent. Í dag er eig­in­fjár­hlut­fall hins vegar 22,5 pró­sent, sem er nokkuð yfir báðum mark­mið­unum.

Einnig segir Benedikt að sterk eig­in­fjár­staða bank­ans ekki hafa teng­ingu við úrræði stjórn­valda. Samkvæmt honum báru við­skipta­vinir hans banka­skatt­inn og njóta nú lækk­unar hans í formi betri kjara.

Lítil eftirspurn eftir fyrirtækjaútlánum

Þrátt fyrir áður­nefndar aðgerðir stjórn­valda og umfram eigið fé Arion banka hafa útlán til fyr­ir­tækja hins vegar minnkað á síð­ustu mán­uðum. Á blaða­manna­fundi í kjöl­far fjár­festa­til­kynn­ingar á upp­gjör­inu í gær sagði Benedikt að lítil eft­ir­spurn hafi verið eftir slíkum útlánum, þar sem mik­ill sam­dráttur hafi orðið í fjár­fest­ingu einka­geirans. Jafn­framt sagði Benedikt bank­ann vinna með öðrum aðilum, einkum stofn­ana­fjár­festum, þegar kemur að fjár­mögnun fyr­ir­tækja enda séu þeir oft betur til þess fallnir að fjár­magna stærri fyr­ir­tæki.

Óraunhæft að nýta eigið fé til útlánaaukningar

Samkvæmt honum væri ekki hægt að nýta umfram eigið fé bank­ans í ný íbúða­lán eða fyr­ir­tækja­lán, þar sem ekki væri hægt að fjár­magna þau. Eigið fé sé dýrasta form fjár­mögn­unar og bank­inn þurfi alltaf að sækja sér fjár­magn á markað eða ný inn­lán til að geta boðið ásætt­an­leg kjör, sem sé ein­fald­lega ekki til staðar í fjár­mála­kerf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár