Aukið líf á leigumarkaði

Leigu­verð hefur lækkað á sama tíma og fleiri íbúðir eru lausar fyrir lang­tíma­leigu eftir hrun í komu erlendra ferða­manna. Á sama tíma hefur virknin auk­ist, en sept­em­ber var met­mán­uður í þing­lýs­ingu leigu­samn­inga.

Mikla hreyf­ingu má sjá á leigu­mark­aðnum þessi miss­erin. Á meðan hús­næð­is­verð hefur hækkað hefur leigu­verð lækkað tölu­vert, en sér­fræð­ingar benda á að hrun í útleigu hús­næðis til erlendra ferða­manna gæti skýrt þá þróun. Hag­kvæm­ari leigu­mark­aður og aukin skóla­sókn gætu útskýrt hvers vegna fleiri hafa kosið að búa í leigu­hús­næði á síð­ustu vikum.

Kaupverð hækkar en leigan lækkar

Samkvæmt nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) hefur veru­lega hægst á vexti leigu­verðs á land­inu öllu á síð­ustu mán­uðum. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur vísi­tala leigu­verðs lækkað milli mán­aða frá því í apríl og er nú svipuð og hún var í upp­hafi árs.

Þessi þróun sést ekki á fast­eigna­mark­aðnum, þar sem kaup­verð íbúða var 4,5 pró­sentum hærra síð­ast­lið­inn ágúst, miðað við sama mánuð í fyrra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins mæld­ist árs­hækk­unin svo 3,9 pró­sent. Verð­hækk­unin kemur á sama tíma og umsvif á fast­eigna­mark­aðnum hafa auk­ist mikið, en eftir miklar vaxta­lækk­anir á hús­næð­is­lánum í vor hefur fjöldi kaup­samn­inga auk­ist ört um allt land.

Samdráttur í leigu til ferðamanna

Í sögu­legu sam­hengi er óvana­legt að leigu­verð lækki á sama tíma og fast­eigna­verð hækki, en verð­þróun hefur verið svipuð í báðum flokkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síð­ustu árin. Hagdeild HMS telur að sam­dráttur í Airbnb-íbúðum og öðrum skamm­tíma­leigu­í­búð­um­hafi lík­ast til haft nei­kvæð áhrif á leigu­verð.

Eftir hrun í komu erlendra ferða­manna til lands­ins hefur mark­að­ur­inn fyrir skamm­tíma­leigu íbúða minnkað til muna, á sama tíma og fram­boð á hús­næði til lang­tíma­leigu hefur auk­ist. Einnig eru íbúð­irnar sem áður voru leigðar til ferða­manna að með­al­tali minni en aðrar íbúðir, sem þýðir að leigj­endum standa nú ódýr­ari íbúðir til boða.

Leigusamningum fjölgar

Samkvæmt nýjum tölum Þjóð­skrár fjölg­aði þing­lýstum leigu­samn­ingum tölu­vert í síð­asta mán­uði, miðað við mán­uð­inn á undan. Ekki hafa jafn­margir leigu­samn­ingar verið þing­lýstir í ára­tug, er frá er tal­inn mán­uð­ur­inn eftir verk­fall lög­fræð­inga hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2015.

Skiptir aukning námsmanna máli?

Lækkun leigu­verðs á und­an­förnum mán­uðum gæti útskýrt þessa miklu fjölgun leigu­samn­inga í sept­em­ber. Hins vegar gæti fjölgun náms­manna einnig hafa leitt auk­innar aðsóknar í lang­tíma­leigu­í­búðir. Svipuð þróun má sjá á fjölda skráðra nem­enda í Háskóla Íslands og fjölda þing­lýstra leigu­samn­inga í sept­em­ber. Enn eiga tölur um nýskrán­ingar eftir að koma fyrir þetta skólaár, en búast má við áfram­hald­andi aukn­ingu skráðra nem­enda í skól­anum miðað við kóln­andi vinnu­markað á síð­ustu mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár