Ríkið greitt yfir tíu milljarða stofnframlög vegna 1.870 almennra íbúða í Reykjavík

Frá árinu 2016 hefur íslenska ríkið úthlutað alls 10,8 millj­örðum króna í stofn­fram­lög vegna almennra íbúða í Reykja­vík. Þær íbúðir sem verða byggðar eða keyptar fyrir fram­lögin eru fleiri en allar íbúðir á Sel­tjarn­ar­nesi.

Móavegur í Reykjavík er eitt þeirra verkefna sem Bjarg hefur ráðist í á grundvelli laga um stofnframlög til byggingar á almennum íbúðum.
Móavegur í Reykja­vík er eitt þeirra verk­efna sem Bjarg hefur ráð­ist í á grund­velli laga um stofn­fram­lög til bygg­ingar á almennum íbúðum. Mynd: Bjarg

Íslenska ríkið hefur alls úthlutað 10,8 millj­örðum króna í stofn­fram­lög vegna almennra íbúða í Reykja­vík frá árinu 2016, þegar lög um slík fram­lög voru sett.

Alls hafa þessi fram­lög verið nýtt til að annað hvort byggja eða kaupa 1.870 íbúðir á tíma­bil­inu. Stofn­virði þeirra er 56,1 millj­arður króna.

Þetta kemur fram í sam­an­tekt um stofn­fram­lög rík­is­ins vegna almennra íbúð í höf­uð­borg­inni sem Kjarninn hefur fengið afhent.

Til sam­an­burðar má nefna að alls voru 1.727 íbúðir á öllu Sel­tjarn­ar­nesi í lok síð­asta árs. Því er verið að byggja, eða kaupa, 147 fleiri almennar íbúðir í Reykja­vík en sem nemur öllum íbúðum á Sel­tjarn­ar­nesi frá byrjun árs 2016.

Íbúðir fyrir tekjulægri

Lög um almennar íbúðir voru sam­þykkt sum­arið 2016. Hið nýja íbúða­kerfi er til­raun til að end­ur­reisa ein­hvern vísi að félags­lega hús­næð­is­kerf­inu sem var aflagt undir lok síð­ustu aldar með þeim afleið­ingum að félags­legum íbúðum fækk­aði um helm­ing milli áranna 1998 og 2017.

[adspot]Markmið þeirra laga var að bæta hús­næð­is­ör­yggi þeirra sem eru undir ákveðnum tekju- og eign­ar­mörkum með því að auka aðgengi að öruggu og við­eig­andi leigu­hús­næði. Þannig sé stuðlað að því að hús­næð­is­kostn­aður sé í sam­ræmi við greiðslu­getu þeirra sem leigja hús­næðið og fari að jafn­aði ekki yfir 25 pró­sent af tekjum þeirra.

Lögin byggja á yfir­lýs­ingu sem þáver­andi rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar gaf út í tengslum við kjara­samn­inga sem voru und­ir­rit­aðir í maí 2015. Í henni var gert ráð fyrir að 2.300 íbúðir yrðu byggðar á árunum 2015 til 2018.

Lengri tíma tók hins vegar að klára lögin og fyrstu úthlut­anir á grund­velli þeirra fóru ekki fram fyrr en á árinu 2016. Fjár­mála­á­ætlun núver­andi rík­is­stjórnar áætlar nú að um 3.200 íbúðir verði byggðar á árunum 2016 til 2022.

Nú, árið 2020, eru 1.870 slíkar íbúðir tryggðar í Reykja­vík einni saman.

Íbúð­irnar í Reykja­vík sem hafa fengið stofn­fram­lög eru ætl­aðar fyrir allskyns hópa sem eru með lágar tekjur. Þar ber fyrst að nefna þá félags­hópa sem eru undir skil­greindum tekju- og eign­ar­við­miðum. Þau eru 535 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði fyrir ein­stak­ling og 749 þús­und krónur á mán­uði fyrir hjón eða sam­búð­ar­fólk. Fyrir hvert barn eða ung­menni að 20 ára aldri sem býr á heim­il­inu bæt­ast við 133.750 krónur á mán­uði sem má hafa í tekjur. Heild­ar­eignir heim­il­is­ins mega þó ekki vera hærri en sem nemur 6.930.000 krónum. Stór hluti þess­arar upp­bygg­ingar, sem er afar umfangs­mikil, er á vegum Bjargs íbúða­fé­lags, sem var stofnað af ASÍ og BSRB fyrir nokkrum árum síðan, og er rekið án hagn­að­ar­mark­miða.

Sveitarfélög úthluta lóðum

Íbúða­kerfið er fjár­magnað þannig að ríkið veitir stofn­fram­lag sem nemur 18 pró­sent af stofn­virði almennra íbúða. Stofn­virði er kostn­að­ar­verð íbúð­ar­innar, sama hvort það er við bygg­ingu hennar eða vegna kaupa á henni. Íslenska ríkið hefur greitt rúm­lega tíu millj­arða króna í slíkt stofn­fram­lag til íbúða sem hafa verið byggðar eða keyptar í Reykja­vík frá árinu 2016.

Til við­bótar hefur ríkið greitt 817 millj­ónir króna í fjögur pró­sent við­bót­ar­fram­lag til hluta þeirra verk­efna sem ráð­ist hefur verið í á tíma­bil­inu í höf­uð­borg­inni. Forsenda fyrir veit­ingu stofn­fram­lags er að bæði Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS), sem sér um umsýslu stofn­fram­laga, og sveit­ar­fé­lag hafi veitt sam­þykki. Rík­is­fram­lögin eru í formi beinna fjár­út­láta og því hefur rík­is­sjóður sam­tals greitt 10,8 millj­arða króna í stofn­fram­lög vegna verk­efna í Reykja­vík á und­an­förnum árum.

Sveit­ar­fé­lög veita síðan 12 til 16 pró­sent stofn­fram­lag til verk­efn­anna. Þau geta falist í beinu fjár­fram­lagi en eru oftar en ekki í formi úthlut­unar á lóðum eða lækk­unar eða nið­ur­fell­ingar á gjöldum sem þyrfti ann­ars að greiða til sveit­ar­fé­lags­ins. Reykja­vík­ur­borg hefur meðal ann­ars úthlutað Bjargi íbúð­ar­fé­lagi lóðir undir mörg hund­ruð íbúðir á stöðum eins í Úlf­arsár­dal, Bryggju­hverf­inu og Hraunbæ, en líka á þett­ing­areitum í gamla hluta borg­ar­innar á borð við Kirkju­sand, Voga­byggð og Skerja­byggð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár