Jón og Ragnheiður skipuð í Landsrétt – Ástráði hafnað enn og aftur

Jón Hösk­ulds­son hefur loks hlotið skipun í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, rúmum þremur árum eftir að hafa verið færður af lista yfir hæf­ustu umsækj­endur. Þrír þeirra fjög­urra sem færðir voru upp á list­anum hafa nú verið skip­aðir í annað sinn í emb­ætti.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur ákveðið að gera til­lögu um að Jón Hösk­ulds­son og Ragn­heiður Braga­dóttir verði skipuð í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt. Ragn­heiður er þegar dóm­ari við Lands­rétt en hefur ekki mátt dæma í málum frá því í fyrra, þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst að þeirri nið­ur­stöðu að hún, og þrír aðrir dóm­arar við rétt­inn, hefðu verið ólög­lega skip­aðir.

Þrír þeirra fjög­urra hafa nú verið skip­aðir aftur í Lands­rétt.

Með skipun Ragn­heiðar losnar því ein staða við Lands­rétt sem mun verða aug­lýst innan tíðar.

Ástráði hafnað í sjötta sinn

Dómnefnd um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þrír umsækj­endur væru hæf­astir þeirra sjö sem sóttu um tvö emb­ætti, og að ekki yrði gert upp á milli þeirra.

[adspot]Um var að ræða Jón, Ragn­heiði og Ástráð Har­alds­son, sem dóm­nefnd hafði metið á meðal 15 hæf­ustu umsækj­enda en ráð­herr­ann ákvað að til­nefna ekki. Ragn­heiður var þá ekki á meðal þeirra 15 hæf­ustu en var samt skipuð. Þetta var í sjötta sinn sem Ástráður sótti um stöðu við rétt­inn, og í sjötta sinn sem honum er hafnað.

Í álykt­un­ar­orðum í umsögn dóm­nefndar sagði að það væri „nið­ur­staða dóm­nefndar að Ástráður Har­alds­son, Jón Hösk­ulds­son og Ragn­heiður Braga­dóttir séu hæfust umsækj­enda til að hljóta skipum í tvö emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, sem aug­lýst voru til umsóknar 19. júní, og ekki verði gert upp á milli hæfi þeirra þriggja að því er það varðar.“

Lykilhlutverk í Landsréttarmálinu

Umsækj­end­urnir þrír voru öll í lyk­il­hlut­verkum í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða, sem sner­ist um það að þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, Sigríður Á. Andersen, gerði breyt­ingu á til­lögu dóm­nefndar um þá 15 dóm­ara sem myndu skipa Lands­rétt þegar hann hæfi starf­semi í byrjun árs 2018.

[links]Í kjöl­farið hafa íslenskir dóm­stólar úrskurðað að Sig­ríður hafi brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­­dóm­­­­stóll Evr­­­­ópu að þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­­­ar­­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­­með­­­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­­mála­ráð­herra.

Því máli var skotið til yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins sem hefur enn ekki lokið umfjöllun sinni um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár