Vinstri græn bæta við sig en ríkisstjórnarflokkarnir allir undir kjörfylgi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 22,8 pró­sent fylgi og er stærsti flokkur lands­ins. Þrír flokkar á þingi eru að mæl­ast með meira fylgi en í kosn­ing­unum 2017. Þeir eru Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Vinstri græn bættu við sig 1,7 pró­sentu­stigum í fylgi í ágúst og mæl­ast nú með 12,6 pró­sent fylgi, sam­kvæmt nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn dalar lít­il­lega á milli mán­aða og nýtur stuðn­ings 22,8 pró­sent kjós­enda og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stendur nán­ast í stað með 7,9 pró­sent fylgi.

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja er nú 43,3 pró­sent, sem er aðeins meira en þeir höfðu í lok júlí, þegar 41,7 pró­sent lands­manna sögðu að þeir myndu kjósa þá. Allir þrír hafa hins vegar tapað fylgi frá haustinu 2017, þegar síð­ast var kosið, en þá fengu Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur sam­tals 52,9 pró­sent atkvæða.

Næstu kosn­ingar fara fram eftir rúmt ár, þann 25. sept­em­ber 2021.

Miðflokkurinn lækkar

Mið­flokk­ur­inn lækkar lít­il­lega á milli mán­aða og mælist nú með 9,9 pró­sent fylgi, sem er undir kjör­fylgi hans, en flokk­ur­inn fékk 10,9 pró­sent síð­ast þegar kosið var til þings.

[adspot]Flokkur fólks­ins heldur sömu­leiðis áfram að mæl­ast ólík­legur til að ná inn manni á þing, en nú segj­ast 3,6 pró­sent lands­manna styðja flokk Ingu Sæland. Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem hefur aldrei boðið fram til þings en þegar til­kynnt um fram­boð í næstu kosn­ingum, mælist með 3,9 pró­sent fylgi.

Miðað við þessa stöðu er ekki ósenni­legt að 7,5 pró­sent atkvæða myndu verða greidd flokkum sem næðu ekki inn á þing ef kosið yrði í dag, og þar með falla niður dauð.

Þrír yfir kjörfylgi

Sam­fylk­ingin mælist með nán­ast sama fylgi og hún var með fyrir mán­uði, eða 14,7 pró­sent. Hún er, líkt og und­an­farna mán­uði, næst stærsti flokkur lands­ins á eftir Sjálf­stæð­is­flokki sam­kvæmt könn­unum Gallup.

[links]Píratar koma þar á eftir með 13,7 pró­sent fylgi og 10,6 pró­sent kjós­enda segja að þeir myndu kjósa Viðreisn ef kosið yrði í dag.

Allir þessir þrír flokkar eru að mæl­ast með meira fylgi en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum og þannig hefur staðan verið meira og minna á þessu kjör­tíma­bili. Sam­an­lagt fylgi þeirra nú er 39 pró­sent en í kosn­ing­unum 2017 fengu Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn, sem starfa meðal ann­ars saman í borg­ar­stjórn Reykja­víkur með Vinstri grænum, 28 pró­sent fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár