Nauðsynlegt að sætta ólík sjónarmið

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir nauð­syn­legt að sætta ólík sjón­ar­mið í sam­fé­lag­inu gagn­vart því hvernig skuli lifa með veirunni. Sam­ráðs­fundur á vegum stjórn­valda um þetta efni fer fram í dag.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Að lifa með veirunni er yfir­skrift þessa viða­mikla sam­ráðs sem við hefjum í dag. Þetta sam­ráð er bæði mik­il­vægt og í raun nauð­syn­legt,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra er hún opn­aði sam­ráðs­fund stjórn­valda um lífið í skugga kór­ónu­veiru­veiru­far­ald­urs­ins í dag.

Svandís sagði að sam­ráðið sem hefj­ist með þessum fundi sé nauð­syn­legt til þess að sætta ólík sjón­ar­mið í sam­fé­lag­inu varð­andi sótt­varn­ar­að­gerðir yfir­valda, því þær snerti mis­mun­andi hópa í sam­fé­lag­inu á mis­mun­andi hátt, þrátt fyrir eng­inn fari var­hluta af áhrifum þeirra í sínu dag­lega lífi.

„Það er mikil þörf á gagn­kvæmum skiln­ingi á mis­mun­andi aðstæðum. Við þurfum á sam­stöðu að halda,“ sagði Svandís.

Sam­ráðs­fundur fer fram í formi vinnu­stofu og hefst á nokkrum örer­indum, meðal ann­ars frá þeim Guðrúni Johnsen hag­fræð­ingi, Henry Alex­ander Henrysyni heim­spek­ingi, Stein­unni Gests­dóttur aðstoð­ar­rektor HÍ og Unu Hild­ar­dóttur for­seta Lands­sam­bands ung­menna­fé­laga.

Síðan munu þátt­tak­endur í fund­inum fara í vinnu­hópa um mis­mun­andi mál­efni og afurðir þeirrar verða að sögn Svan­dísar lagðar fram á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Í hádeg­inu verða svo pall­borðsum­ræður þar sem Svandís tekur þátt ásamt þrí­eyk­inu, Ölmu Möller land­lækni, Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni og Víði Reyn­is­syni yfir­lög­reglu­þjóni.

Hægt er að fylgj­ast með fund­inum í streymi hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár