Skin og skúrir í Kauphöllinni á tímum COVID

Sam­komu­lag líf­eyr­is­sjóð­anna um að fjár­festa inn­an­lands virð­ist halda lífi í Kaup­höll­inni, en gengi skráðra félaga þar hefur verið mis­jafnt á síð­ustu sex mán­uðum.

Óformleg gjald­eyr­is­höft virð­ast hafa haldið uppi virkni á Kaup­höll­inni síðan í mars, en vísi­tala hennar er nú á sama reiki og hún var í byrjun árs. Gengi fyr­ir­tækja hefur hins vegar verið mis­mun­andi, en Origo og Síminn hafa hækkað mest á síð­ustu mán­uðum á meðan hluta­bréfa­verð Icelandair og Sýnar hefur lækkað mest.

Lífeyrissjóðir líklega afstýrt frekari samdrátt

Ekkert stórt hrun hefur orðið í kaup­höll­inni í ár, líkt og gerð­ist í kjöl­far síð­ustu efna­hag­skreppu. Að vísu virt­ist svo vera á fyrstu vikum far­ald­urs­ins, en vísi­tala kaup­hall­ar­innar féll um 27% í mars.

Þann 17. mars gerði Seðla­bank­inn svo sam­komu­lag við líf­eyr­is­sjóð­ina um hlé á gjald­eyr­is­kaupum, en með því sam­komu­lagi hófust nokk­urs konar óform­leg gjald­eyr­is­höft á land­inu. Þar sem líf­eyr­is­sjóð­irnir ákváðu að fjár­festa ekki erlendis hafa þeir í auknum mæli þurft að beina fjár­fest­ingum sínum inn­an­lands á síð­ustu mán­uðum.

Þessi ákvörðun virð­ist hafa haft góð áhrif á hluta­bréfa­mark­að­inn hér­lendis, en vísi­tala kaup­hall­ar­innar tók að hækka örfáum dögum eftir sam­komu­lagið og er hún nú á sama reiki og hún var í byrjun árs­ins.

Mismunandi gengi fyrirtækja

Nokkur munur hefur þó verið á gengi skráðra fyr­ir­tækja, en virði Marel, Origo og Símans hafa hækkað mest, á meðan virði Icelandair og Sýn hefur lækkað all­mikið. Hluta­bréfa­verð smá­sölu­fyr­ir­tækj­anna Haga og Festi hefur náð aftur fyrri hæðum, og fjár­mála­fyr­ir­tækin virð­ast hafa sömu­leiðis rétt úr kútnum. Hins vegar virð­ist skell­ur­inn hafa verið harð­ari hjá fast­eigna­fé­lög­unum Reiti, Eik og Reginn.

70% lækkun bréfa hjá Icelandair

Af öllum fyr­ir­tækj­unum í kaup­höll­inni sker Icelandair sig úr, en lok­anir landamæra um allan heim og erf­ið­leikar við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins hefur stefnt fram­tíð þess í tví­sýnu. Óvissan end­ur­spegl­ast í hluta­bréfa­virði félags­ins, en það hefur lækkað um 70% frá byrjun mars­mán­aðar, lang­mest allra félaga í Kaup­höll­inni.

Ólíkt gengi hjá fjarskiptafyrirtækjunum

Næst á eftir Icelandair kemur Sýn, en virði fyr­ir­tæk­is­ins hefur lækkað um tæp 28% á sama tíma­bili, en slæmar fréttir hafa borist af rekstri fyr­ir­tæk­is­ins í nokkurn tíma. Á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs tap­aði Sýn 350 millj­ónum króna, en heild­ar­tap fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra nam rúm­lega 1,7 millj­örðum króna.

Gengi Sýnar er í and­stöðu við gengi helsta keppi­nautar fyr­ir­tæk­is­ins, Símans, en hluta­bréfa­verð þess síð­ar­nefnda hefur hækkað um fjórð­ung á sama tíma eins og sjá má á mynd hér að ofan. Ólíkt Sýn hefur rekstur Símans gengið vel, en fyr­ir­tækið skil­aði 764 millj­óna króna hagn­aði á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs og 3 millj­arða króna hagn­aði í fyrra. 

Hluta­bréfa­verð Origo hefur einnig hækkað tölu­vert frá byrjun heims­far­ald­urs­ins og er það nú 22% hærra en það var við mán­aða­mót febr­úar og mars.

Fjármálafyrirtæki og Brim í góðum málum

Flest önnur fyr­ir­tæki Kaup­hall­ar­innar virð­ast hafa náð að rétta úr kútnum eftir tíma­bund­inn skell í hluta­bréfa­verði í mars. Virði trygg­inga­fyr­ir­tækj­anna Sjóvár, TM og VÍS, auk Kviku banka eru á svip­uðum slóðum og í byrjun árs, auk þess sem hluta­bréfa­verð Brims hefur verið á góðri sigl­ingu allt árið.

Eina fjár­mála­fyr­ir­tækið sem ekki hefur náð sér að fullu eftir skell­inn í mars er Arion banki, en hluta­bréfa­verð þess er núna um 10% lægra en það var við mars­byrjun.

Minni sveiflur með samruna smásölu og olíu

Gengi hluta­bréfa í Högum og Festi hefur verið nokkuð gott, en verð þeirra hefur hækkað lít­il­lega frá byrjun far­ald­urs­ins. Ætla má að hækk­unin hefði verið meiri ef fyr­ir­tækin hefðu ekki tekið yfir olíu­fyr­ir­tækin N1 og Olís á síð­ustu árum, en eft­ir­spurn á olíu hefur lækkað í núver­andi kreppu á meðan rekstur smá­sölu­fyr­ir­tækja hefur gengið vel heilt yfir.

Virði olíu­fyr­ir­tæk­is­ins Skelj­ungs, sem ekki hefur sam­ein­ast smá­sölu­fyr­ir­tæki, hefur hins vegar lækkað nokkuð og er nú um 5% lægra en það var í mars­byrjun. 

Fasteignafélög finna fyrir kreppunni

Gengi flestra fast­eigna­fé­laga hefur einnig verið erfitt á síð­ustu mán­uðum, en virði Eikar, Regins og Reita hefur minnkað tölu­vert frá byrjun far­ald­urs­ins. Mest hefur fallið verið hjá Reitum, þar sem hluta­bréfa­verð félags­ins hefur lækkað um 26% á síð­asta hálfa árinu.

Mögulegt er að félögin finni fyrir auknum van­skilum í leigu hjá fyr­ir­tækjum sem ekki hafa getað haldið áfram starf­semi sinni á meðan far­aldr­inum stóð, en Morg­un­blaðið greindi frá því í gær að eig­endur skemmti­stað­ar­ins b5 hafi ekki greitt Eik leigu af hús­næði sínu síð­ustu þrjá mán­uði vegna tekju­leysis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár