„Jákvæður viðsnúningur“ hjá Arion en COVID-óvissa framundan

Arion banki hagn­að­ist um 4,95 millj­arða króna á síð­asta árs­fjórð­ungi og var arð­semi eig­in­fjár 10,5 pró­sent á fjórð­ungnum, sem banka­stjór­inn segir sér­stak­lega ánægju­legt í ljósi þess að eig­in­fjár­staðan sé langt umfram kröfur eft­ir­lits­að­ila.

Hagnaður Arion banka af áfram­hald­andi starf­semi á öðrum árs­fjórð­ungi nam rúmum 4,95 millj­örðum króna og jókst um 76 pró­sent frá sama árs­fjórð­ungi í fyrra. Arðsemi eig­in­fjár var 10,5 pró­sent, í sam­an­burði við 4,3 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi í fyrra. Óvissa vegna COVID-19 er sögð við­var­andi, í til­kynn­ingu frá bank­anum til Kaup­hallar í dag.

Bankinn lýsir jákvæðum við­snún­ingi í rekstri sínum og segir Benedikt Gíslason banka­stjóri að það sé „sér­stak­lega ánægju­legt“ að mark­miðum um 10 pró­sent arð­semi hafi verið náð, þar sem eig­in­fjár­staða bank­ans sé afar sterk og langt umfram kröfur eft­ir­lits­að­ila.

„Regluleg starf­semi bank­ans þró­ast með jákvæðum hætti á fjórð­ungnum en óvenju­lega háar fjár­muna­tekjur, bæði af hluta- og skulda­bréfum, hafa mjög jákvæð áhrif á afkom­una. Það er því áfram for­gangs­at­riði að bæta enn frekar okkar reglu­legu starf­semi,“ er haft eftir Benedikt í til­kynn­ingu bank­ans.

Bankinn hefur í heild­ina hagn­ast um rúma 2,7 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, en tapið á fyrsta árs­fjórð­ungi nam um 2,2 millj­örðum króna og arð­semi eig­in­fjár var þá nei­kvæð um 4,6 pró­sent.

Faraldurinn muni setja mark sitt á starfsemina

„Þrátt fyrir gott upp­gjör á öðrum árs­fjórð­ungi er mik­il­vægt að taka fram að enn er umtals­verð óvissa í starfs­um­hverfi bank­ans vegna Covid-19. Far­ald­ur­inn, þróun hans og áhrif á bæði inn­lent og alþjóð­legt efna­hags­líf mun áfram setja mark sitt á starf­sem­ina,“ segir Benedikt banka­stjóri í ávarpi sínu og bætir við að óvissan snú­ist fyrst og fremst að þróun eigna­safns bank­ans.

„Verulega dró úr nið­ur­færslum útlána á öðrum árs­fjórð­ungi frá þeim fyrsta en við verðum að hafa í huga að skap­ast getur þörf á frek­ari nið­ur­færslum á meðan við göngum í gegnum núver­andi efna­hags­örð­ug­leika. Fjár­hags­legur styrkur Arion banka hvað varðar eigið fé og lausafé er hins vegar það mik­ill að bank­inn er í góðri stöðu til að takast á við þær aðstæður sem eru uppi,“ segir Benedikt.

17 milljarðar í ný íbúðalán

Benedikt segir að umtals­verð eft­ir­spurn hafi verið íbúða­lánum, bæði nýjum lánum og lánum í tengslum við end­ur­fjár­mögnun, sem gera megi ráð fyrir að teng­ist lægra vaxta­stigi hér á landi. Hann segir bank­ann alls hafa lánað 17 millj­arða króna í ný íbúða­lán á öðrum árs­fjórð­ungi.

„Jafn­framt fara stuðn­ings­lán til fyr­ir­tækja, sem eru hluti af úrræðum stjórn­valda og hafa rík­is­á­byrgð að hluta eða öllu leyti, vel af stað og gengur vel að afgreiða þau lán til við­skipta­vina,“ segir Benedikt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár