Áhrif kísilvers yrðu „talsvert neikvæð“ – hvað þýðir það?

Umhverf­is­stofnun metur áhrif end­ur­ræs­ingar og stækk­unar kís­il­vers­ins í Helguvík tals­vert nei­kvæð. Hvað ein­staka umhverf­is­þætti varðar telur hún áhrifin allt frá því að vera óviss í það að geta orðið veru­lega nei­kvæð. En hvað þýða þessar væg­is­ein­kunnir?

Kísilverið í Helguvík var starfrækt á nokkurra mánaða tímabili á árunum 2016-2017.
Kís­il­verið í Helguvík var starf­rækt á nokk­urra mán­aða tíma­bili á árunum 2016-2017. Mynd: United Silicon

„Heilt yfir metur Umhverf­is­stofnun áhrif end­ur­ræs­ingar 1. áfanga og upp­bygg­ingar kís­il­verk­smiðju Stakks­bergs í Helguvík, í fulla virkni 4. áfanga, vera tals­vert nei­kvæð frá núver­andi stöðu. Óvissa er um áhrif end­ur­ræs­ingar og gæði meng­un­ar­varna án neyð­ar­skor­steins. Umhverf­is­stofnun telur hættu á rekstr­ar­ó­stöð­ug­leika með fyr­ir­liggj­andi fyr­ir­komu­lagi um starf­semi án neyð­ar­skor­steins/a. Við þær aðstæður telur stofn­unin mögu­legt að áhrif verk­smiðj­unnar á loft­gæði verði veru­lega nei­kvæð, bæði ryklos­unar og lykt­ar­meng­unar. Þá eru áhrifin ekki aðeins stað­bundin við iðn­að­ar­svæðið í Helguvík heldur einnig svæð­is­bundin m.t.t. ásýndar.“

Þetta eru loka­orð í ítar­legri umsögn Umhverf­is­stofn­unar um frum­mats­skýrslu Stakks­bergs á áform­aðri end­ur­ræs­ingu og stækkun kís­il­vers­ins í Helguvík. Kísilver United Silicon í Helguvík, sem starf­rækt var um nokk­urra mán­aða skeið á árunum 2016-2017 olli íbúum Reykja­nes­bæjar óþæg­indum. Rekst­ur­inn gekk brös­ug­lega allt frá upp­hafi, illa gekk að halda ljós­boga­ofni vers­ins stöð­ugum svo oft­sinnis þurfti að slökkva á honum og kveikja upp á nýjan leik. Það er við þær aðstæður sem mest hætta á mengun verður. Umhverf­is­stofnun ákvað að stöðva rekst­ur­inn haustið 2017. United Silicon varð gjald­þrota en eig­andi verk­smiðj­unnar í dag er Stakks­berg, félag sem er alfarið í eigu Arion banka.

Stakks­berg hyggst gera end­ur­bætur á verk­smiðj­unni, end­ur­ræsa hana og stækka svo í áföngum þar til ofn­arnir verða fjórir. Í frum­mats­skýrslu er lagt mat á þau áhrif sem þær fyr­ir­ætl­anir gætu haft.

[adspot]

Umhverf­is­stofnun er ósam­mála Stakks­bergi að ýmsu leyti hvað áhrifin varðar. Þannig telur hún til dæmis að áhrif á loft­gæði gætu orðið tals­vert nei­kvæð en ekki nokkuð nei­kvæð eins og fram kemur í skýrslu Stakks­bergs. Þá telur stofn­unin að áhrif á loft­gæði yrðu ekki endi­lega aft­ur­kræf og ef rekstaró­stöð­ug­leiki skap­ist geti þau orðið veru­lega nei­kvæð.

En hvað þýða þessar væg­is­ein­kunnir sem gefnar eru í skýrslum um mat á umhverf­is­á­hrifum og umsögnum stofn­ana?

[links]Allt hvílir ferlið á lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum frá árinu 2000 með síð­ari breyt­ingum. Og til að glöggva sig á orða­val­inu er gagn­legt að skoða leið­bein­ingar Skipu­lags­stofn­unar um flokkun umhverf­is­þátta, við­mið ein­kenni og vægi umhverf­is­á­hrifa.

Þegar meta á áhrif til­tek­innar fram­kvæmdar, s.s. umfang og vægi áhrifa, á ákveðna umhverf­is­þætti (t.d. and­rúms­loft) þarf að liggja fyrir við hvað er miðað við matið. Grund­völlur slíks mats er m.a. fyr­ir­liggj­andi stefna um við­kom­andi umhverf­is­þætti sem að finna má lögum og reglu­gerðum, alþjóða­samn­ingum og ýmsum stefnu­skjölum stjórn­valda. Sem dæmi um við­mið má nefna við­mið­un­ar­mörk fyrir styrk brenni­steins­dí­oxíð (SO2) í útblæstri frá verk­smiðju er við­mið sem notað er til að meta áhrif verk­smiðj­unnar á umhverf­is­þátt­inn and­rúms­loft, segir í leið­bein­ing­unum.

Í þeim er að finna yfir­lit yfir þau við­mið sem sett eru fram í hinum ýmsu stefnu­skjölum um umhverf­is­mál sem gilda hér á landi. Yfir­litið er þó ekki sagt tæm­andi og fram kemur að í huga þurfi að hafa að til­tekin við­mið geti breyst og önnur bæst við með til­komu nýrra stefnu­skjala, svo sem nýrra laga og reglu­gerða.

Ýmsir þættir eru skoðaðir

Umhverf­is­þættir sem eru til skoð­unar við mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda eru t.d. and­rúms­loft og veð­ur­far, vatn og sjór, land og sjáv­ar­botn, vist­kerfi, heilsa og öryggi, lands­lag, nátt­úru- og menn­ing­arminjar og hag­rænir og félags­legir þættir.

Í lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda segir að í skýrslu um mat á umhverf­is­á­hrifum skuli til­greina bein, óbein, upp­söfnuð og sam­virk áhrif fram­kvæmdar á umhverfið. Í reglu­gerð frá árinu 2005 eru ein­kenni umhverf­is­á­hrifa flokkuð í bein og óbein áhrif, jákvæð og nei­kvæð áhrif, var­an­leg og tíma­bundin áhrif, aft­ur­kræf og óaft­ur­kræf áhrif, sam­virk og sam­mögnuð áhrif.

Einkenni áhrifa

Þegar unnið er að lýs­ingu og mati á áhrifum fram­kvæmdar á umhverfið þarf að gera grein fyrir ein­kennum áhrif­anna. Til að stuðla að sam­ræmdri umfjöllun um áhrif í mats­skýrslum réð­ist Skipu­lags­stofnun í að skil­greina þessi ein­kenni. Auk þess eru í leið­bein­ing­unum sett fram dæmi um skýr­ingar sem geta lýst eig­in­leikum áhrif­anna. Bent er á að taka þurfi til­lit til stað­setn­ingar og eðlis hverrar fram­kvæmdar fyrir sig. Þannig geti t.d. bein áhrif fram­kvæmda á til­tek­inn umhverf­is­þátt verið aft­ur­kræf í sumum til­fellum en óaft­ur­kræf í öðrum.

Bein áhrif geta verið skerð­ing á gróðri, varp­svæðum, jarð­mynd­unum og forn­leifum, svo dæmi séu tekin. Einnig geta bein áhrif orðið á loft­gæði og hávaða.

Óbein áhrif eru áhrif á umhverf­is­þætti sem ekki eru bein afleið­ing fram­kvæmdar en þó má rekja til fram­kvæmd­ar­innar, t.d. breyt­ing á gróðri vegna hækk­aðrar grunn­vatns­stöðu.

Jákvæð áhrif geta falist í auknu umferð­ar­ör­yggi, auknum atvinnu­mögu­leikum og svo fram­vegis.

Áhrif eru nei­kvæð ef þau skerða eða rýra gildi til­tek­ins eða til­tek­inna umhverf­is­þátta á beinan eða óbeinan hátt. Til dæmis hávaði í íbúða­byggð, skerð­ing á útsýni, jarð­vegs- og gróð­ur­eyð­ing, röskun á jarð­mynd­unum og fleira.

Varanleg áhrif verða til dæmis þegar ný íbúða­hverfi eru byggð á lítt snortnu landi en tíma­bundin áhrif geta svo orðið á fram­kvæmda­tíma, s.s. með auk­inni umferð og hávaða.

Vægiseinkunnir

Við mat á áhrifum fram­kvæmdar þarf svo að meta vægi þeirra, t.d. veru­lega jákvæð, tals­vert jákvæð, óveru­leg, tals­vert nei­kvæð eða veru­lega nei­kvæð á til­tekna umhverf­is­þætti s.s. loft, vatn, jörð vist­kerfi, heilsu og öryggi. Það þarf einnig að gera hvað varðar fram­kvæmd­ina í heild sinni.

Skipu­lags­stofnun bendir á að vægi áhrifa og væg­is­ein­kunn sé ávallt mats­kennd, jafn­vel þótt liggi fyrir til­tekin og skýr við­mið í stefnu­mörkum stjórn­valda, lögum og reglu­gerðum eða alþjóða­samn­ingum. „Almennt má segja að vægi áhrifa fari eftir eðli, gerð, umfangi, tíðni og tíma­lengd umhverf­is­á­hrifa, hverjar séu líkur á áhrifum og hvort þau séu óaft­ur­kræf að teknu til­liti til við­kvæmni fyr­ir­hug­aðs fram­kvæmda- og áhrifa­svæðis. Allt eru þetta þættir sem leggja þarf mat á í matsvinn­unni til að kom­ast að nið­ur­stöðu um vægi áhrifa á til­tek­inn umhverf­is­þátt.“

Að auki bendir Skipu­lags­stofnun á að hafa þurfi í huga að áhrif fram­kvæmdar á ein­stakan umhverf­is­þátt geta verið nei­kvæð en um leið geti þau haft jákvæð áhrif á annan umhverf­is­þátt. Neikvæðu áhrifin geti þó verið það veru­leg og afger­andi að þrátt fyrir jákvæð áhrif á til­tekna þætti vegi þau ekki upp á móti þeim nei­kvæðu, þannig að áhrif fram­kvæmd­ar­innar í heild sinni telj­ast umtals­verð.

Í leið­bein­ing­unum eru lögð til hug­tök sem lúta að vægi áhrifa. „Þetta er gert í því skyni að stuðla að sam­ræm­ingu í hug­taka­notkun þegar kom­ist er að nið­ur­stöðu um vægi á ein­staka umhverf­is­þætti.“

Hugtökin eru eft­ir­far­andi:

Verulega jákvæð: Áhrif fram­kvæmdar á umhverf­is­þátt bæta hag mik­ils fjölda fólks og/eða hafa jákvæð áhrif á umfangs­mikið svæði. Sú breyt­ing eða ávinn­ingur sem hlýst af fram­kvæmd­inni er oft­ast var­an­leg. Áhrifin eru oft­ast á svæðis-, lands- og/eða heims­vísu en geta einnig verið stað­bundin.

Talsverð jákvæð: Áhrif fram­kvæmdar á umhverf­is­þátt taka ekki til umfangs­mik­ils svæðis en svæðið kann að vera við­kvæmt fyrir breyt­ingum, m.a. vegna nátt­úru­fars og forn­minja. Áhrifin geta verið jákvæð fyrir svæðið og/eða geta verið jákvæð fyrir fjölda fólks. Áhrifin geta verið var­an­leg og í sumum til­fellum aft­ur­kræf. Áhrif geta verið stað-, svæð­is­bundin og/eða á lands­vísu.

Óveruleg: Áhrif fram­kvæmdar á umhverf­is­þátt eru minni­háttar með til­liti til umfangs svæðis og við­kvæmni þess fyrir breyt­ingum ´samt fjölda fólk sem verður fyrir áhrifum. Áhrifin eru í mörgum til­fellum tíma­bundin og að mestu aft­ur­kræf. Áhrifin eru oft­ast stað- eða svæð­is­bundin.

Talsverð nei­kvæð: Áhrif fram­kvæmdar á umhverf­is­þátt taka ekki til umfangs­mik­ils svæðis en svæðið kann að vera við­kvæmt fyrir breyt­ingum m.a. vegna nátt­úru­fars eða forn­minja. Áhrifin geta verið nei­kvæð fyrir svæðið og/eða geta valdið fjölda fólks ónæði eða óþæg­indum. Áhrifin geta verið var­an­leg og í sumum til­fellum óaft­ur­kræf.

Veruleg nei­kvæð: Áhrif fram­kvæmdar á umhverf­is­þátt skerða umfangs­mikið svæði og/eða svæði sem er við­kvæmt fyrir breyt­ingum og/eða rýra hag mik­ils fjölda fólks. Sú breyt­ing eða tjón sem hlýst af fram­kvæmd­inni er oft­ast var­an­leg og yfir­leitt óaft­ur­kræf.

Miðað við skil­grein­ingar Skipu­lags­stofn­unar á hug­tak­inu „tals­vert nei­kvæð“ telur Umhverf­is­stofnun að end­ur­ræs­ing kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík og stækkun hennar gæti valdið fjölda fólks ónæði eða óþæg­indum og að áhrifin gætu orðið var­an­leg og í sumum til­fellum óaft­ur­kræf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stakksberg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár