Menningarpólítísk nýbreytni

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Enda­lausa þræði eftir sviðs­lista­hóp­inn Streng.

Strengur: Endalausir þræðir

Höfundur: Leik­hóp­ur­inn ásamt Unu Torfa­dóttur

Leik­stjórn: Óðinn Ásbjarn­ar­son

Leikmynd og bún­ingar: Katrín Guð­bjarts­dóttir

Hljóð­mynd: Magnús Thorlacius

Leik­endur: Magnús Thorlacius, Urður Bergs­dóttir, Katrín Guð­bjarts­dóttir

Leik­hóp­ur­inn Strengur sam­anstendur af ungu sviðs­lista­fólki sem enn er í BA-námi við Lista­há­skóla Íslands, tvö á sviðs­höf­unda­braut, þau Magnús Thorlacíus og Katrín Guð­bjarts­dóttir, en Urður Bergs­dóttir á sviðs­lista­braut. Þau þrjú eru leik­arar hóps­ins, en Óðinn Ásbjarn­ar­son, sem einnig er í BA-námi á sviðs­höf­unda­braut LHÍ, er leik­stjóri sýn­ing­ar­innar; hann mun hafa átt frum­kvæði að því að þau mynd­uðu í sum­ar­byrjun leik­hóp­inn Streng, sem starfar á grund­velli sér­staks sam­komu­lags um átaks­verk­efni á vegum Vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar.

[adspot]

Mark­miðið er að skapa sviðs­lista­verk þar sem lögð er áhersla á rann­sókn­ar­vinnu útfrá „þarfri sam­fé­lags­um­ræðu“ eins og segir á heima­síðu hóps­ins. Hug­myndin er að töfrar leik­húss­ins færi áhorf­and­ann nær flytj­and­anum, umbreyti hvers­dags­líf­inu í dálitla stund og gefi færi á að gleðj­ast yfir líf­inu. Leik­hóp­ur­inn Strengur á að leiða saman gam­alt og nýtt, bera hug­myndir á borð fyrir fólk, finna hvað tengir okkur saman.

Þetta eru vissu­lega háleit mark­mið og göfug og er svo sem ekki í fyrsta skipti sem ungt lista­fólk hefur sett sér slík mark­mið – vest­ræn menn­ing hefur að geyma sögu ara­grúa slíkra hópa ungs fólks sem hafa í upp­hafi fer­ils síns reynt að koma orðum að því sem breyta skal – því það mun óhætt að segja að það sem sam­eig­in­legt er öllum þeim hópum sem lista- og leik­list­ar­saga Vest­ur­landa kann að segja frá, sem orðið hafa til frá lokum seinni heims­styrj­aldar eða svo og sem hafa lagt vinnu í að skil­greina sam­tíð sína, er að til stendur að breyta heim­inum, að minnsta kosti þeim heimi sem næstur er, nán­asta umhverf­inu.

Leik­hóp­ur­inn Strengur virð­ist þó dálítið öðru­vísi að því leyti að hið unga lista­fólk sem hann skipar leitar sam­starfs við Vel­ferð­ar­svið Reykja­víkur og ég hygg það muni vera næsta fátítt að ungt lista­fólk hefji þannig feril sinn undir sér­stökum vernd­ar­væng hins opin­bera, en hér mun byggt á starfi Óðins leik­stjóra sem dag­skrár­stjóra félags­starfs eldri borg­ara í Norð­ur­brún í Reykja­vík. Þannig ber kannski að líta á Leik­hóp­inn Streng sem hluta af þróun félags­starfs eldri borg­ara þar sem ætl­unin er að skapa og bera á borð leik­sýn­ingar, en einnig nám­skeið í leik­list fyrir eldri borg­ara.

Það mun því óhætt að segja að hér sé um að ræða menn­ing­arpólítíska nýbreytni, sem er allrar virð­ingar verð. Hvað sem líður háleitum mark­miðum á heima­síðu er hér á ferð eins konar „nytja­leik­hús“, þar sem Vel­ferð­ar­svið kýs að fjár­magna hóp­inn, vænt­an­lega mark­hópi sínum, eldri borg­urum, til auk­innar gleði og afþrey­ingar. Vert er því að veita athygli starfi og afdrifum hóps­ins; það væri vissu­lega gaman ef Vel­ferð­ar­svið myndi smám saman auka við starf­sem­ina og þá væri ekki síður magnað ef önnur sveit­ar­fé­lög tækju sér þetta fram­tak Vel­ferð­ar­sviðs sér til fyr­ir­myndar.

„Nytja­leik­hús“ segi ég og er kannski óná­kvæm­lega orðað; það er nefni­lega til sér­stakur straumur í þerapísku starfi sem byggir á aðferða­fræði leik­list­ar­innar – kúnstinni að segja sögu – og sem miðar að því að vald­efla ein­stak­ling­inn, gefa honum færi á að öðl­ast vald yfir og vald á eigin æfi, eigin til­finn­ingum og minn­ingum. Það má jöfnum höndum heim­færa það undir nytjar og list og verður jafn­vel ekki greint þar á milli svo vel fari. Og það er kannski í ætt við þá rann­sókn­ar­vinnu, sem leik­hóp­ur­inn Strengur vill hafa sem grund­völl síns list­ræna starfs og krist­all­ast í sýn­ing­unni Enda­lausir þræðir.

Rann­sókn­ar­vinnan fólst í því að farið var á fund eldri borg­ara, sem síðar skyldu verða áhorf­endur og leitað til þeirra um minn­ingar. Þessar minn­ingar voru síðan soðnar niður í hand­rit þar sem minn­ing­arnar mynda þræði – enda­lausa þræði – sem tvinn­ast saman og verða að ein­hvers konar hug­mynd um veru­leik­ann eins og hann var. Sýningin snýst því um hvort tveggja í senn, að hefja frá­sagn­ar­list­ina til vegs og virð­ingar en einnig að varð­veita minn­ingar – og ekki sér­lega auð­velt að greina þar á milli, því það flétt­ast líka saman, rétt eins og minn­ing­arnar.

Um leið verður til fjarska heill­andi og aðlað­andi sýn á mann­eskj­urnar og tengsl þeirra, nefni­lega sú, að í frá­sagn­ar­stund­inni verði til eitt­hvað sem kalla má ham­ingju þegar tvær mann­eskjur (eða fleiri) hitt­ast og fara að rifja upp minn­ingar og segja sögur. Dýnamíkin sem verður á slíkri stund gerir mann­eskj­urnar einmitt að mann­eskjum.

Sýningin Enda­lausir þræðir er þannig byggð. Í henni mæt­ast þrír ein­stak­lingar, fjar­lægir hver öðrum í upp­hafi, en hver og einn lumar á sögu, frá­sögn, minn­ingu og áður en varir fara þær að flétt­ast saman og til verður eitt­hvað sem kalla má sam-félag. Það er, eins ein­falt og það virð­ist, bæði fal­legt og hug­ljúft.

Það má við bæta, að þessi hug­mynd er styrkt með ein­faldri leik­mynd þar sem heil­mikið kað­al­verk myndar bak­grunn sviðs­ins og með því er minnt á hversu flók­inn sá vefur getur verið sem flétt­aður er af minn­ingum og sögu­brotum. Lát­lausir bún­ingar vinna vel við leik­mynd­ina sem og ein­föld lýs­ingin.

Sem áður sagði er leik­hóp­ur­inn enn við nám. Það vekur því ósvikna ánægju und­ir­rit­aðs að hér er texta­flutn­ingur með ágætum, skýr og skil­merki­legur og fram­burður með góðu móti. Hand­ritið er enda vel skrifað og í því er fremur hátíð­legur tónn sem krefst skýr­leika og vand­aðs flutn­ings.

Það er von­andi að Leik­hóp­ur­inn Strengur nái víða með sýn­ingu sína og enn frekar er ástæða til að óska þess að sam­starf hóps­ins og Vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar nái að dafna og efl­ast. Sú menn­ing­arpólítík sem það sam­starf ber vitni um er ekki ein­asta virð­ing­ar­vert, það er æski­legt hvernig sem á það er litið – ekki síst þegar kemur að því að auka vel­ferð og lífs­gæði eldri borg­ara sam­fé­lags vors.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár