Huawei á undir högg að sækja beggja vegna Ermasunds

Kín­verski fjar­skipt­ar­is­inn Huawei hefur mætt and­stöðu franskra og breskra yfir­valda í kjöl­far við­skipta­þving­ana Banda­ríkj­anna gegn fyr­ir­tæk­inu.

Net­ör­ygg­is­stofnun Frakka, ANSSI, hvetur frönsk fjar­skipta­fyr­ir­tæki til þess að snið­ganga Huawei í vænt­an­legri 5G upp­bygg­ingu. Frakkar ætla samt sem áður ekki að banna aðkomu fyr­ir­tæk­is­ins að 5G væð­ingu fjar­skipta­kerfa þar í landi. Bretar skoða nú hvort banna eigi Huawei aðkomu að 5G væð­ingu þar í landi.

Í frétt Reuters er haft eftir Guilaume Poupard, yfir­manni ANSSI, að stofn­unin muni ekki fram­fylgja ströngu banni á notkun bún­aðar frá Huawei, en þau félög sem hingað til hafa ekki notað búnað Huawei eru hvött til að halda því áfram.

Tvö af stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tækjum Frakka, SFR og Bouygues Telecom, nota búnað Huawei í kerfum sínum. ANSSI hefur veitt þeim fyr­ir­tækjum sem nota búnað frá Huawei heim­ild til að halda því áfram en gild­is­tími heim­ild­anna er frá þremur árum og upp í átta ár.

Banda­rísk yfir­völd hafa hvatt vest­ræn ríki til þess að snið­gang Huawei í upp­bygg­ingu 5G kerf­is­ins. Þau telja bún­að­inn geta verið not­aðan til njósna af hálfu Kínverja. Þeim ásök­unum hafa for­svars­menn Huawei hafnað. Fyr­ir­tæk­inu er meinað að nota hug­búnað og tækni frá Banda­ríkj­unum í fram­leiðslu og vöru­þróun en bannið nær einnig til fram­leið­enda sem sjá Huawei fyrir íhlutum.

Fram kemur í frétt BBC að bresk yfir­völd meti nú hvort að þau þurfi að taka harð­ari afstöðu gegn Huawei vegna tak­markan­anna sem banda­rísk yfir­völd hafa sett fyr­ir­tæk­inu. Vegna tak­markan­anna gæti sú staða komið upp að íhlutir í bún­aði frá Huawei fái ekki grænt ljós frá þar­lendum stofn­unum sem sinna net­ör­ygg­is­málum. Í jan­úar var þak sett á hlut Huawei í breska fjar­skipta­kerf­inu en nú gæti svo farið að bún­aður fyr­ir­tæk­is­ins hverfi með öllu úr kerf­inu.

Búnaður Huawei er nú þegar í kerfum BT og Vodafone sem eru stór fyr­ir­tæki á breskum fjar­skipta­mark­aði. Fyr­ir­tækin hafa óskað eftir því að bún­aður Huawei í kerfum þeirra megi vera í notkun til árs­ins 2030.

Ákveði Bretar að banna búnað Huawei í 5G net­inu gæti það haft í för með sér að sá bún­aður fyr­ir­tæk­is­ins sem fyrir er í 3G og 4G kerf­unum þurfi einnig að víkja. Kostn­að­ur­inn við það gæti hlaupið á millj­örðum punda auk þess sem slíkar kvaðir gætu tafið fyrir ljós­leið­ara­væð­ingu lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár