Nær öll ný húsnæðislán á árinu óverðtryggð

Heimili lands­ins eru að færa sig úr lánum með föstum vöxtum yfir í lán með breyti­legum vöxtum sam­kvæmt sam­an­tekt Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja. Auk þess hefur hlut­deild óverð­tryggðra lána aldrei verið meiri.

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins námu ný óverðtryggð húsnæðislán á breytilegum vöxtum 48 milljörðum króna.
Á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins námu ný óverð­tryggð hús­næð­is­lán á breyti­legum vöxtum 48 millj­örðum króna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins voru 90 pró­sent nýrra hús­næð­is­lána óverð­tryggð lán á breyti­legum kjörum. Þetta kemur fram í nýrri sam­an­tekt Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF). Þar segir einnig að mikil aukn­ing hafi orðið í end­ur­fjár­mögnun á hús­næð­is­lánum það sem af er ári og að heim­ili lands­ins séu að færa sig úr lánum með föstum vöxtum yfir í lán með breyti­legum vöxtum.

Í sam­an­tekt SFF kemur fram að á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins veittu lána­stofn­anir um 44,5 millj­arða í ný hús­næð­is­lán að teknu til­liti til upp­greiðslna. „Þar af nema ný óverð­tryggð hús­næð­is­lán með breyti­legum vaxta­kjörum 48 millj­örðum króna. Þetta er met á umræddu tíma­bili, svo langt aftur sem gögn Seðla­bank­ans ná, og er fjár­hæðin til að mynda rúm­lega fjór­falt hærri en á sama tíma­bili árið 2019. Aðsókn í óverð­tryggð hús­næð­is­lán á breyti­legum kjörum hefur því aldrei verið meiri en nú,“ segir á vef SFF.

Á sama tíma­bili nema upp­greiðslur á hús­næð­is­lánum á föstum vaxta­kjörum alls níu millj­örðum. „Þar er um að ræða algjöran við­snún­ing á þróun slíkra hús­næð­is­lána sem juk­ust til að mynda meira en hús­næð­is­lán á breyti­legum vaxta­kjörum á sama tíma­bili í fyrra,“ segir þar.

Líkt og áður segir er langstærstur hluti nýrra hús­næð­is­lána á breyti­legum óverð­tryggðum vöxtum. Þessi þróun hefur haft það í för með sér að hlut­deild óverð­tryggðra lána hefur aldrei verið meiri. Á síð­ustu tíu árum hefur hlut­deild þeirra farið úr því að vera 1,67 pró­sent upp í 28,36 pró­sent sam­kvæmt sam­an­tekt SFF.

Vextir hafa lækkað töluvert upp á síðkastið

[links]

Breyti­legir vextir bank­anna hafa lækkað umtals­vert síð­asta eina og hálfa árið í kjöl­far mik­illar lækk­unar stýri­vaxta. Í upp­hafi árs í fyrra voru breyti­legir óverð­tryggðir vextir bank­anna á bil­inu sex til 6,6 pró­sent en eru nú 3,5 til 3,74 pró­sent. Líkt og Kjarninn hefur fjallað um hefur þessi lækkun gert það að verkum að vaxta­kjör bank­anna eru nú almennt betri en hjá líf­eyr­is­sjóðum, ef frá er tal­inn Birta líf­eyr­is­sjóður sem býður upp á 2,1 pró­sent vexti.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa verið stór­tækir á hús­næð­is­lána­mark­aði á und­an­förnum árum. Til að mynda hefur hlut­deild þeirra í heild­ar­út­lánum heim­ila rúm­lega tvö­fald­ast á síð­ustu fjórum árum, að því er fram kemur í sam­an­tekt SFF. Nú er hins vegar farið að hægja á vext­inum. Síðustu tvö ár nemur útlána­aukn­ing líf­eyr­is­sjóð­anna um 20 pró­sent á árs­grund­velli en var 40 pró­sent árið 2017 og 30 pró­sent árið 2018.

Gera ráð fyrir að bankarnir auki hlutdeild sína á húsnæðislánamarkaði

Samkvæmt SFF er útlána­vöxtur hús­næð­is­lána lána­stofn­ana alfarið bund­inn við óverð­tryggð lán og hefur vöxt­ur­inn verið um 26 pró­sent á árs­grund­velli það sem af er ári. SFF telur að hlut­deild bank­anna muni aukast. „Líklegt verður að telj­ast að vin­sældir óverð­tryggðra hús­næð­is­lána á breyti­legum kjörum haldi áfram. Má því gera ráð fyrir að banka­kerfið auki hlut­deild sína á hús­næð­is­lána­mark­aði á næstu miss­erum.“

Þrátt fyrir að vextir hús­næð­is­lána hafi lækkað tölu­vert að und­an­förnu heldur sú lækkun ekki í við lækkun stýri­vaxta. Stýri­vextir Seðla­bank­ans hafa aldrei verið lægri, þeir eru eitt pró­sent í dag en voru í upp­hafi árs 2019 4,5 pró­sent. Samkvæmt úttekt ASÍ um þróun á hús­næð­is­vöxtum hefur munur á stýri­vöxtum og vöxtum á hús­næð­is­lánum auk­ist um eitt til 1,5 pró­sentu­stig á þessu tíma­bili. Lán­tak­endur hafa því ekki notið stýri­vaxta­lækk­unar að fullu í formi lægri vaxta á hús­næð­is­lánum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húsnæðismarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár