Bankarnir taka aftur forystu í húsnæðislánum

Stýri­vaxta­lækk­anir, lækkun banka­skatts og afnám sveiflu­jöfn­un­ar­auka hafa haft áhrif á vaxta­kjör sem og getu bank­anna til að lána fé. Með til­liti til verð­bólgu verða hag­stæð­ustu vext­irnir til hús­næð­is­kaupa nú hjá bönkum í stað líf­eyr­is­sjóða.

Stóru viðskiptabankarnir þrír tilkynntu allir vaxtalækkanir í vikunni sem leið.
Stóru við­skipta­bank­arnir þrír til­kynntu allir vaxta­lækk­anir í vik­unni sem leið. Mynd: Samsett

Það for­skot sem líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa haft í vaxta­kjörum á hús­næð­is­lánum er óðum að hverfa. Stóru við­skipta­bank­arnir þrír; Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki, til­kynntu allir vaxta­lækk­anir í vik­unni í kjöl­far stýri­vaxta­lækk­unar. Með til­liti til verð­bólgu eru óverð­tryggð hús­næð­is­lán við­skipta­bank­ana því orðin þau hag­stæð­ustu sem í boði eru ef frá eru talin hús­næð­is­lán sem Birta líf­eyr­is­sjóður býður sjóð­fé­lögum sínum. Lán Birtu eru hins vegar að hámarki fyrir 65 pró­sent af kaup­verði á meðan að bank­arnir lána fyrir 70 pró­sent þess.

Þegar vaxta­lækk­anir bank­ana hafa tekið gildi í upp­hafi júní verða breyti­legir óverð­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum hjá Lands­bank­anum 3,50 pró­sent. Á sam­bæri­legum lánum hjá Arion banka verða vext­irnir 3,54 pró­sent og hjá Íslands­banka 3,70 pró­sent. Einu lánin í þessum flokki sem bera lægri vexti eru, eins og áður segir, hjá Birtu líf­eyr­is­sjóði. Lán með breyti­legum óverð­tryggðum vöxtum hjá Birtu eru 2,85 pró­sent. Vaxta­kjörin hjá þeim líf­eyr­is­sjóðum sem bjóða upp á óverð­tryggð lán eru almennt óhag­stæð­ari en hjá bönk­unum.

Vextir á lánum með fasta óverð­tryggða vexti taka mið af því í hve langan tíma vextir eru fastir og hvert veð­hlut­fall er. Nokkrir líf­eyr­is­sjóðir bjóða upp á slík lán en eftir vaxta­lækkun bank­anna fást hag­stæð­ustu lánin í þessum flokki hjá bönk­unum.

Verðbólgan er lykilbreyta

Mun algeng­ara er að líf­eyr­is­sjóðir bjóði upp á verð­tryggð lán. Ef horft er til þeirra sést að nokkrir af sjóð­unum munu enn bjóða upp á lán á hag­stæð­ari kjörum en bank­arnir í þeim flokki. Lægstu breyti­legu vext­irnir á verð­tryggðum lánum eru í dag hjá Festa líf­eyr­is­sjóði, 1,70 pró­sent. Þar á eftir koma Birta, Frjálsi, Stapi og Brú með vexti á bil­inu 1,74 pró­sent til tvö pró­sent. Hjá bönk­unum munu lægstu breyti­legu verð­tryggðu vext­irnir fást hjá Lands­bank­anum, þar sem þeir verða tvö pró­sent.

Verð­bólgan mælist nú 2,6 pró­sent á árs­grund­velli. Haldist hún í sama horf­inu er því ljóst að raun­vextir eru orðnir lægstir á óverð­tryggðum lánum bank­anna. Í síð­ustu mæl­ingum fór verð­bólgan yfir verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans í fyrsta sinn frá því í nóv­em­ber. Bankinn spáir því að hún verði undir mark­miði á næst­unni en ljóst er að óvissan er mikil.

Sjóðfélögum boðist hagstæðari lán í áraraðir

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa um ára­bil boðið upp á hag­stæð­ustu hús­næð­is­lánin. Þessi hag­stæðu lán hafa orðið til þess að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa orðið stór­tækir í lán­veit­ingum til hús­næð­is­kaupa. Vöxtur í hús­næð­is­lánum á síð­ustu árum hefur til að mynda verið langtum meiri hjá sjóð­unum heldur en hjá bönk­unum.

Láns­skil­yrðin hjá líf­eyr­is­sjóð­unum hafa verið þrengd upp á síðkastið en þetta hafa sjóð­irnir gert til þess að reyna að hemja vöxt­inn í útlánum. Til að mynda er veð­hlut­fall hjá sjóð­unum almennt lægra en hjá bönk­unum og hjá lang­flestum er þak á hversu há láns­fjár­hæð getur orðið. Allir sjóð­irnir setja það sem skil­yrði að lán­taki hafi greitt í sjóð­inn en sumir setja enn þrengri skil­yrði, til að mynda þurfa lán­tak­endur hjá sumum líf­eyr­is­sjóðum að hafa greitt í sjóð­inn síð­ustu sex mán­uði til að geta tekið hjá þeim lán.

Stýrivextir í sögulegu lágmarki

Það eru aðal­lega þrír þættir sem hafa haft þessi áhrif á vaxta­kjör bank­ana og þá stað­reynd að vextir þeirra séu nú að verða sam­bæri­legir við vexti sem líf­eyr­is­sjóð­irnir bjóða upp á. Þessir þættir eru lækkun stýri­vaxta, afnám sveiflu­jöfn­un­ar­auka á fjár­mála­fyr­ir­tæki og lækkun banka­skatts.

Stýri­vextir hafa að und­an­förnu lækkað tölu­vert. Fyrir rétt um ári síðan, þann 22. maí lækk­uðu vext­irnir um hálft pró­sentu­stig, úr 4,5 pró­sentum í fjögur pró­sent. Síðan þá hafa vextir haldið áfram að lækka og nú síð­ast lækk­uðu þeir niður í eitt pró­sent og hafa þeir aldrei verið lægri.

Seðla­bank­inn aflétti tveggja pró­senta sveiflu­jöfn­un­ar­auka á fjár­mála­fyr­ir­tæki í mars. Aflétt­ingin hefur það í för með sér að aukið svig­rúm skap­ast til nýrra útlána sem að öðru óbreyttu nemur allt að 350 millj­örðum króna eða um 12,5 pró­sent af núver­andi útlána­safni banka­kerf­is­ins, að því er segir í til­kynn­ingu fjár­mála­stöðu­leika­nefndar frá því í mars. Þar segir enn fremur: „Nefndin ætl­ast til þess að það svig­rúm sem lækkun sveiflu­jöfn­un­ar­aukans skapar verði notað til að styðja við heim­ili og fyr­ir­tæki.“

Samþykkt var að lækka banka­skatt í fyrra úr 0,376 pró­sentum í 0,145 pró­sent. Lækkunin átti að koma til í fjórum þrepum á árunum 2021 til 2024 en vegna versn­andi efna­hags­horfa í kjöl­far COVID-19 far­ald­urs­ins var lækk­un­inni flýtt þannig að gjald­hlut­fallið verður fært alla leið niður í 0,145 pró­sent á skatt­stofn vegna skulda í árs­lok 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár