Bjuggust ekki við mótbárum gegn hæfum manni sem var til í starfið

Sænski hag­fræði­pró­fess­or­inn Lars Calmfors segir að nor­ræni stýri­hóp­ur­inn sem ann­ast útgáfu tíma­rits­ins NEPR hafi verið kom­inn í tíma­þröng með að finna nýjan rit­stjóra er Þorvaldi Gylfa­syni var boðið starfið.

Þorvaldur Gylfason fékk starfstilboð á samnorrænum vettvangi sem ekki var heimilt að veita honum, áður en fjármála- og efnahagsráðuneytið lagðist gegn ráðningu hans á pólitískum forsendum.
Þor­valdur Gylfason fékk starfstil­boð á sam­nor­rænum vett­vangi sem ekki var heim­ilt að veita honum, áður en fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið lagð­ist gegn ráðn­ingu hans á póli­tískum for­sendum. Mynd: Johannes Jansson/Norden.org

Eins og fram kom í lið­inni viku var Þorvaldi Gylfa­syni hag­fræði­pró­fessor boðið starf sem rit­stjóri nor­ræna fræða­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review (NEPR) í lok októ­ber í fyrra. Starfstil­boðið þáði Þor­valdur í tölvu­póst­sam­skiptum við Anders Hedberg, starfs­mann Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Hann segir það hafa verið án allra fyr­ir­vara.[links]

En ljóst er að þessi til­tekni starfs­maður Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar hafði enga heim­ild til þess að bjóða Þorvaldi starfið fyr­ir­vara­laust, þar sem hefð er fyrir því innan nor­ræna stýri­hóps­ins sem stýrir tíma­rit­inu að öll fjár­mála­ráðu­neyti Norð­ur­land­anna þurfi að koma sér saman um ein­stak­ling í þetta starf.

Það hafði ekki gerst og síðan lagð­ist Ísland gegn því að Þor­valdur yrði ráð­inn, á póli­tískum for­sendum, sem hefur reynst umdeilt. En hvernig stendur þá á því að Þor­valdur fékk til­boðið til að byrja með?

Þegar Kjarninn spurði áður­nefndan starfs­mann að því í síð­ustu viku af hverju starfstil­boðið hefði verið veitt, svar­aði hann engu og sagði að ákvörð­unin um ráðn­ingu rit­stjóra NEPR væri á hendi fjár­mála­ráðu­neyt­anna fimm á Norð­ur­lönd­unum. „Því ættu allar fyr­ir­spurnir og kröfur í þessu máli að bein­ast til ráðu­neyt­anna,“ bætti Hedberg við í skrif­legu svari sínu.

Samkvæmt tölvu­póst­sam­skiptum Hedberg við Þorvald voru bæði Lars Calmfors, hag­fræði­pró­fessor og frá­far­andi rit­stjóri NEPR og Kjell Nilsson, stjórn­andi nor­rænu rann­sókna­stofn­un­ar­inar Nor­dregio, upp­lýstir um að Þorvaldi hefði verið boðið rit­stjóra­starfið, en þeir voru cc: tengdir inn á tölvu­póst­inn. 

[adspot]

Kjell Nilsson sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að hann hefði ekk­ert um málið að segja því Nor­dregio hefði engin áhrif (e. no influence) á það hver væri ráð­inn í stöð­una.

Tíminn naumur og enginn bjóst við mótbárum

Lars Calmfors ræddi við Kjarnann í lið­inni viku, en blaða­maður hafði sam­band við hann aftur til þess að fá útskýr­ingar á því hvernig stæði á því að gengið hefði verið til við­ræðna við Þorvald fyrst að form­legt sam­þykki allra ríkj­anna lá ekki fyrir. Calmfors seg­ist telja að Hedberg hafi talið sig vera kom­inn í tíma­þröng með að finna hag­fræð­ing í starfið.

„Svo hann veitti [Þorvaldi] til­boð áður en form­leg ákvörðun hafði verið tekin í stýri­hópnum, með þær skilj­an­legu vænt­ingar að allir yrðu ánægðir með það,“ segir Calmfors og bætir við að búið hafi verið að hafa sam­band við fjölda hag­fræð­inga, bæði finnska og norska, en eng­inn þeirra lýst sig til­bú­inn til þess að taka við starf­inu fyrr en í fyrsta lagi að ári liðnu. Og Calmfors var harð­á­kveð­inn í að hætta þar sem hann var búinn að vera þrjú ár í starf­inu og þráði meiri tíma til ann­arra starfa.

Á þeim tíma­punkti lagði hann sjálfur Þorvald til. Hann þekkir hann af störfum þeirra saman við Stokk­hólms­há­skóla og taldi hann hæfan til að fást við starfið. Calmfors segir að það hafi verið hans mat að það væru ekki margir Íslend­ingar með þá reynslu á breiðu sviði hag­fræð­innar sem þyrfti til þess að geta tekið þessa stöðu að sér, auk þess sem Þor­valdur hefði verið í hag­nýtum rann­sóknum og unnið mikið með öðrum nor­rænum hag­fræð­ingum.

Ísland viðraði konu í starfið

Hann segir aðspurður að hann muni til þess að íslenska ráðu­neytið hafi viðrað hug­mynd um að skoða að minnsta kosti einn hag­fræð­ing í stöð­una, konu, rétt eins og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur sagt og full­trúi Finn­lands í stýri­hópnum hefur sömu­leiðis stað­fest við Kjarnann.

Calmfors segir að hún hafi verið mjög hæf, en þó var ekki gengið lengra með hug­mynd­ina, þar sem rann­sóknir hennar þóttu á fremur þröngu sviði innan hag­fræð­innar, auk þess sem hún er búsett í Banda­ríkj­unum, sem álitið var óhent­ugt meðal ann­ars sökum þess að rit­stjórar þurfa að mæta nokkrum sinnum á ári til funda á Norð­ur­lönd­unum. Alls segir Calmfors að rætt hafi verið um örugg­lega 15-20 ein­stak­linga innan stýri­hóps­ins.

Calmfors segir að utan­um­hald þessa fræða­tíma­rits, sem senni­lega fæstir nema þeir sem glugga í hag­fræði­rann­sóknir reglu­lega hafa heyrt um, hafi alla tíð verið mjög óform­legt og afslappað og rit­stjóra­starfið hafi ekki tekið mik­inn tíma frá honum und­an­farin ár, raunar bara um það bil einn starfs­mánuð sem dreifst hafi yfir árið.

Þá sé núver­andi stýri­hópur mann­aður starfs­fólki ráðu­neyt­anna sem eru komin mis­langt á starfs­ferl­inum, Finnland og Noregur séu þar með reynd­ari full­trúa en Ísland, Danmörk og Svíþjóð.

Hann hefur bæði undr­ast og mót­mælt póli­tískri afstöðu Íslands í garð Þorvalds og segir að hann yrði mjög undr­andi á því ef fjár­mála­ráð­herrar hinna Norð­ur­land­anna væru að velta því mikið fyrir sér hvaða fræði­maður rit­stýri tíma­rit­inu. Hann vonar að slíkt ger­ist aldrei í Svíþjóð.

„Ég held að þetta sé höndlað á mun lægra stigi. Ef ekki, þá gæfi það til kynna mjög slæma nýt­ingu á tíma ráð­herr­ans,” segir Calmfors.

Af orðum pró­fess­ors­ins að dæma er ljóst að það kom flatt upp á þá sem höfðu þegar fengið vit­neskju um starfstil­boðið til Þorvalds, þegar afstaða Íslands, sem byggð­ist á póli­tískum rök­semdum og rang­færslum, kom fram innan stýri­hóps­ins þann 11. nóv­em­ber. Hún varð þess vald­andi að starfstil­boðið var aft­ur­kallað munn­lega 13. nóv­em­ber, eins og fram hefur komið.

Nú leitar hag­fræði­pró­fess­or­inn réttar síns þar sem hann telur starfstil­boðið í góðu gildi. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, sem mætir fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis í dag til þess að útskýra af hverju ráðu­neyti hans beitti sér gegn því að Þor­valdur yrði ráð­inn í starfið með þeim hætti sem það gerði, hefur sagt að Þor­valdur verði að sækja mein­tan rétt sinn til þeirra sem veittu honum starfstil­boðið, því það hafi ekki verið gert í hans umboði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár