„Let the good times roll ...“

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Fyr­ir­heitna landið í Land­náms­setr­inu.

Landnámssetur: Fyrirheitna landið

Sögu­maður: Einar Kárason

Land­náms­setur er iðið við sinn kola að bjóða upp á sögu­st­undir á Sögu­loft­inu og heiður ber því fyrir að halda í sögu­manns­hefð­ina; þetta er senni­lega það í okkar menn­ingu nútil­dags sem kemst næst hinni fornu kvöld­vöku – afþr­ey­ingu sveita­sam­fé­lags­ins sem eflaust við­gekkst frá land­námi og allt fram til fyrri hluta tutt­ug­ustu aldar – og er þá ekki ein­ungis átt við sögu­mennsk­una sjálfa sem leyfir hug­anum að fara á flug og sækja heim fjar­læga staði og fjar­læga tíma, það er ekki síður nota­leg til­finn­ing að sitja undir súð Sögu­lofts­ins og njóta þess arki­tekt­úrs sem minnir á hina fornu bað­stofu, heim­ili kvöld­vök­unnar. Það vantar bara að áheyr­endur allir sýsli við sitt – prjóni, kembi, spinni og hekli til að menn­ing­ar­arf­ur­inn lifni við og verði að núi. En það er nú kannski að ætl­ast til of mik­ils.

Einar Kárason hefur verið óþreyt­andi við að segja sögur af fjöl­skyld­unni í Thule­kamp­inum á Melunum. Þrjár bækur hafa komið út – Þar sem Djöfla­eyjan rís, Gull­eyjan og Fyr­ir­heitna landið – og tvær þær fyrstu hafa verið færðar í bún­ing kvik­myndar, og amk. tveggja verka fyrir leik­hús. Og nú flytur Einar Kárason sög­una af fólk­inu eins og það kemur fyrir í þriðju bók­inni, Fyr­ir­heitna land­inu, en þar er að finna sög­una af því þegar Ásmundur Grett­is­son, Mundi, og Manni, sonur Fíu og Tóta, halda til Ameríku til að finna þá með­limi fjöl­skyld­unnar sem hafa farið að leita gæf­unnar í hinu fyr­ir­heitna landi.

[adspot]

Það sem einkum ein­kennir Einar Kárason sem sögu­mann er hversu gott vald hann hefur á sam­bandi sínu við áheyr­endur. Hann beitir af öryggi og inn­sæi húmornum sem hald­góðu vopni við að halda áheyr­endum við efnið. Þegar hann segir frá sögu­per­sónum sínum hittir hann ávallt á það sem er sér­kenni­legt og sér­stakt við þær, og hann styrkir frá­sögn sína með því að breyta rödd­inni eilítið, og þannig lifna per­són­urnar við fyrir augum okkar – án þess að nokkrum öðrum með­ulum sé beitt en rödd og æði sögu­manns. Þannig kemst Einar ekki ein­göngu í gott og traust sam­band við áheyr­endur, hann nær þannig valdi á þeim að þeir gefa sig sög­unni á vald.

Þessum krafti nær Einar og heldur honum allt til enda og þarf þess vegna ekki að beita neinni til­gerð fyrir sig eða stælum – í með­förum hans rennur sagan einsog lygnt stór­fljót, nýtur þeirrar epísku breiddar sem örlög þeirra Munda og Manna, Ömmu Gógó og Badda frænda og Bóbó bróður – og allra hinna – krefj­ast.

Það er líka annað, sem ein­kennir sagna­mennsku Einars Kára­sonar, ekki síst þar sem hann stendur sjálfur frammi fyrir áheyr­endum sínum og segir frá því fólki, sem sumir myndu nú ein­fald­lega kalla „white trash“ okkar Íslend­ingar – fólks­ins, sem dag­aði uppi í hreysum og kofum eft­ir­stríðs­ár­anna og tókst ekki að láta draum­inn um betra líf ræt­ast og hvarf á end­anum í glitter og glamúr og yfir­borðs­lega afþrey­ing­ar­mennsku hinnar amer­ísku menn­ingar – hann dæmir engan.

Einar Kárason hefur eng­ann á stall, hann veltir engum niður sem ekki gæti staðið upp sjálfur. Hann hefur ein­læga og djúpa samúð með sínu fólki. Hann lýsir því af nán­ast klínískri nákvæmni, en tekur enga sið­ferð­is­lega afstöðu til gjörða þeirra. Hann móralíserar ekki yfir sögu­per­són­unum, vandar ekki um fyrir þeim í okkar eyru. Hann ber per­sónur sínar fram eins og þær eru – veskú, þetta eru Mundi og Manni, Amma Gógó og Baddi og Bóbó bróðir, með öllum sínum kostum og göllum. Svona eru þau – þau geta vissu­lega gert ýmsa vit­leys­una, þau taka feil­stefnu í líf­inu en það eru bara ekki allir sem kunna á kompásinn. Gjörðir þeirra, sumar hverjar alveg út í hött og hugs­un­ar­lausar, verða að mein­legum, skringi­legum og hlá­legum upp­á­komum og við hugsum með okkur að þetta fólk er ekki með öllum mjalla, en alls staðar skín vænt­um­þykja og virð­ing sögu­manns í gegn og verður að okkar afstöðu til þess­ara per­sóna.

Þetta er fal­legur eig­in­leiki hjá sögu­manni. Slíkur sögu­maður beinir ekki aðeins athygl­inni að því góða sem býr í sögu­per­sónum hans – hann vekur einnig upp hið besta í áheyr­endum sínum.

Það er full ástæða til að hvetja fólk að bregða sér í Land­náms­setur í Borg­ar­nesi til að láta snjallan sögu­mann vekja upp hið besta í manni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklistargagnrýni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár