Danska stjórnin skipti um skoðun eftir gagnrýni ferðaþjónustunnar

Þeim ferða­mönnum sem verður leyft að fara til Dan­merkur á annað borð frá og með mánu­deg­inum verður nú einnig heim­ilt að gista í Kaup­manna­höfn. Danska rík­is­stjórnin hlust­aði á háværar gagn­rýn­is­raddir ferða­þjón­ust­unnar.

Ferðamenn mega bóka sér gistingu í Kaupmannahöfn á mánudaginn.
Ferða­menn mega bóka sér gist­ingu í Kaup­manna­höfn á mánu­dag­inn.

Danska rík­is­stjórnin skipti um skoðun og nú mega Íslend­ingar og aðrir ferða­menn sem hyggja á för til Dan­merkur eftir að ríkið opnar landa­mæri sín fyrir þeim á mánu­dag gista í Kaup­manna­höfn. Frá þessu er greint á vef danska rík­is­út­varps­ins DR.

Dóms­mála­ráð­herra lands­ins, Nick Hækkerup, greindi frá þessu á blaða­manna­fundi í dag. Ennþá verður þó sú regla í gildi að sá sem ætlar að fara til Dan­merkur þarf að sýna fram á að hann ætli sér að gista í land­inu í alla­vega sex nætur.

Danir ætlar að opna landa­mæri sín afar var­færn­is­lega, en frá og með 15. júní mega ein­ungis ferða­menn frá Íslandi, Noregi og Þýska­landi koma til lands­ins. Þegar þetta var kynnt fyrir tveimur vikum síðan var þó lagt blátt bann við því að ferða­menn gistu í Kaup­manna­höfn, sökum þess að þar væru flest virk kór­ónu­veirusmit.

Ferða­þjón­ustan í höf­uð­borg­inni var þó allt annað en sátt með áætlað fyr­ir­komu­lag og mik­ill póli­tískur þrýst­ingur hefur verið á rík­is­stjórn­ina um að leyfa ferða­mönnum að bóka sér gisti­heim­ili, hótel eða íbúðir í Kaup­manna­höfn.

Fáir túristar frá löndunum þremur heimsækja Kaupmannahöfn

Í frétt DR segir að Kaup­manna­höfn fái alla jafna tæp­lega annan hvern túrista sem kemur til Dan­merkur, en þeir ferða­manna­hópar sem nú fá leyfi til að sækja landið heim frá og með mánu­deg­inum eru þó ekki gjarnir á að dvelja í Kaup­manna­höfn.

Í fyrra komu sam­an­lagt um það bil tæp ein og hálf milljón ferða­manna frá Þýska­landi, Noregi og Íslandi til Dan­merkur, en um það bil 1,3 millj­ónir þeirra fara ekki til Kaup­manna­hafnar á ferð sinni um landið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár