Bakkabræður teknir í samfélagssátt

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans fjallar um Bakka­bræður í upp­setn­ingu Leik­hóps­ins Lottu.

Leikhópurinn Lotta: Bakkabræður
Leik­hóp­ur­inn Lotta: Bakka­bræður Mynd: Aðsend mynd

Leikhópurinn Lotta: Bakkabræður

Höfundur: Anna Bergljót Thoraren­sen

Leik­stjórn: Þórunn Lár­us­dóttir

Dans­höf­undur: Viktoría Sig­urð­ar­dóttir

Höfundar laga­texta: Anna Bergljót Thoraren­sen og Baldur Ragn­ars­son

Höfundar tón­listar: Baldur Ragn­ars­son, Rósa Ásgeirs­dóttir, Þórður Gunnar Þor­valds­son

Leik­mynda­hönnun: Andrea Ösp Karls­dóttir og Sig­steinn Sig­ur­bergs­son

Bún­inga­hönnun: Kristína R. Berman

Hljóð­hönnun og útsetn­ingar: Þórður Gunnar Þor­valds­son

Leikarar: Andrea Ösp Karls­dóttir, Huld Ósk­ars­dóttir, Júlí Heiðar Hall­dórs­son, Sig­steinn Sig­ur­bergs­son, Stefán Benedikt Vil­helms­son, Viktoría Sig­urð­ar­dóttir.

Það þarf ekki að ótt­ast um menn­ing­ar­arf­inn, ef litið er til þess hvaða við­fangs­efni ungt leik­li­st­ar­fólk taka sér fyrir hendur og gera úr skemmti­legar leik­sýn­ingar. Síðasta sýn­ing sem und­ir­rit­aður fjall­aði um áður en sam­komu­bann skall á var sýn­ing Mið­nættis leik­húss í sam­vinnu við Leik­fé­lag Akur­eyrar á Djákn­anum á Myrká og varla er búið að opna fyrir sam­komur á borð við leik­hús­við­burði fyrr en Leik­hóp­ur­inn Lotta kallar til sýn­ingar á Lottu­túni í Elliða­ár­dal og frum­sýnir sýn­ingu sem byggir á þjóð­sög­unum um Bakka­bræður.

[adspot]

Um báðar þessar sýn­ingar má segja að tekið er á við­fangs­efn­inu af virð­ingu fyrir bæði menn­ing­ar­arf­inum og áhorf­endum og er það vissu­lega vel – en það sem skiptir kannski öllu meira máli er að í báðum til­vikum er við­fangs­efnið tekið frjáls­legum tökum, aðlagað að þeim fjöl­miðli sem leik­húsið er og unnið útfrá þeim frá­sagn­ar­með­ulum sem leik­listin hefur upp á að bjóða. Með öðrum orðum: í báðum til­vikum er um að ræða vel gert leik­hús ef svo má að orði kom­ast.

Hver þekkir ekki sög­urnar af þeim Bakka­bræðrum, eða eins og þeir eru líka kall­aðir, Bakka­flónum, og sög­unum af því þegar faðir þeirra kall­aði kút­inn, þegar þeir báru inn ljósið í húsið glugga­lausa, Þegar þeir keyptu kött­inn sem þeir svo drápu af ótta við að hann myndi éta þá alla, þegar þeir drápu hest­inn Brúnku með því að hlaða grjóti á hana til að koma í veg fyrir að hún fyki í óveðr­inu og þegar þeir ótt­uð­ust að rugl­ast á fótum sínum þegar þeir sátu með fæt­urna í laug­inni ... Það má gera list­ann með bjálfa­legum og ána­legum upp­á­tækjum þeirra Bakka­bræðra býsna langan.

Raunar eiga Bakka­bræður sér fleiri bræður – bæði hér á Íslandi og eins víðar um heim. Þær sögur sem Anna berg­ljót Thoraren­sen styðst við í sinni leik­gerð og sem Leik­hóp­ur­inn Lotta styðst við í sýn­ingu sinni eru Bakka­bræður frá bænum Bakka í Svarf­að­ar­dal, en þar bjuggu forðum – að því er sagan segir – þrír bræður sem þóttu hver öðrum heimsk­ari, vissu sjaldn­ast hver þeirra væri hver og ávörp­uðu sjálfa sig ávallt með hinni klass­ísku kveðju, „Gísli, Eiríkur Helgi“ og átu hana hver upp eftir öðrum. Þessir bræður voru ein­faldir og auð­trúa og sög­urnar um þá byggja allar á þessum ein­kennum.

Hins vegar voru einnig til bræður á bænum Bakka í Fljótum. Þeir voru fjórir, hétu Eiríkur, Þor­steinn, Gísli og Jón og eru taldir hafa búið í Fljót­unum um 1600. Einn þess­ara bræðra var giftur og hét kona hans Gróa og var kölluð Gróa ein­sýna af því hún var ein­eygð. Reyndar kemur Gróa fyrir í leik­verki Önnu Berg­ljótar, en Gróa sú er læknir og býr á Leiti og við hana eru kenndar gróu­sögur. Það er ákaf­lega vel til fundið af Önnu Berg­ljótu að tengja Gróu á Leiti við Bakka­bræðraminnið eins og hún vinnur úr því, en ég vík að því betur síðar.

Bakka­bræður í Fljótum eru þekktir fyrir álíka aula­skap og kjána­skap og frændur þeirra úr Svarf­að­ar­dal, en senni­lega hafa þeir þrí­bræður orðið þekkt­ari vegna þess að talan þrír á sér langa og gróna hefð í sagna­mennsku og svo hugs­an­lega einnig vegna hins, að örlög þeirra fjór­bræðra eru öllu harm­þrungn­ari en þrí­bræðr­anna úr Svarf­að­ar­dal, þannig að almenn­ingi hefur senni­lega þótt auð­veld­ara að hlæja að bræðr­unum úr Svarf­að­ar­dal.

Bakka­bræður eiga sér einnig skyld­menni erlendis og liggur þá bein­ast við að nefna Molbúana í Danmörku, enda hafa þær sögur átt auð­velt með að rata til Íslands sakir lang­tíma menn­ing­ar­tengsla Íslands og Dan­merkur. Molbúar munu einnig hafa verið hafðir að skot­spæni í Noregi, enda heyrði Noregur undir Danmörku þegar Mol­búa­sög­urnar kvikn­uðu til lífs með útgáfu bók­ar­innar „Ber­etn­ing om de vidtbeki­endte Molboers vise Giern­inger og tapre Bedrifter“ árið 1771, en þar mátti finna 13 mol­búa­sögur, hverri annarri kostu­legri. Molbúar búa í Mols á Suður-Jótlandi og voru löngum sagðar sögur um þá af svip­uðu tagi og um Bakka­bræður og má finna margar sög­urnar lítt breyttar beggja vegna Atl­ants­hafs; þá má finna svip­aðar sögur um svo­kall­aða „Täljetokar“, sem bjuggu í bænum Södertälje nokkru sunnan Stokk­hólms­borgar í Svíþjóð en sög­urnar um Täljetokar fóru á flug eftir að byggt hafði verið geð­sjúkra­hús í Södertälje. Það má þannig leiða að því nokkur rök að sög­urnar um Bakka­bræður, hvort sem er úr Svarf­að­ar­dal eða Fljótum, Molbúa og Täljetokar eiga rætur að rekja til ótta okkar við hið óþekkta, hið afbrigði­lega og hið fram­andi.

Afrek Bakka­bræðra eru vand­lega skjal­fest í Þjóð­sögum Jóns Árna­sonar og hafa lifað góðu lífi meðal okkar Íslend­inga upp­frá því. Jóhannes úr Kötlum gerði um þá frægt kvæði sem kom út 1941. Árið 1951 fram­leiddi einn af frum­kvöðlum íslenskrar kvik­mynda­gerðar, Óskar Gíslason, mynd­ina „Reykja­vík­ur­æv­in­týri Bakka­bræðra“, í leik­stjórn Ævars R. Kvarans en hand­rit gerði Loftur Guð­munds­son. Þá las Sigurður Sig­ur­jóns­son, leik­ari sög­urnar um Bakka­bræður árið 1983 inn á hljóm­plötu. En fljót­lega eftir það hurfu þeir Bakka­bræður af sjón­ar­svið­inu og við hlut­verki aula­bárð­anna, „hinna“, tóku Hafn­firð­ingar og áður en nokkur gat rönd við reist urðu Hafn­firð­inga­brand­arar móð­ins, rétt eins og sögur af Norð­mönnum tóku við af sög­unum af „Täljetokarna“ í Svíþjóð.

Við virð­umst sem sagt hafa þessa þörf fyrir að gera grín að og hlæja að náung­anum, spotta hann og lít­il­lækka. Rótgróið í menn­ing­unni, myndi ein­hver segja og í raun bara græsku­laust gaman. En er það svo? Er þetta ekki frekar nei­kvæður menn­ing­ar­arfur (ef tala má um „menn­ingu“ í þessu sam­hengi – það er ekki alveg óum­deilt hug­tak í þessu sam­hengi – en hins vegar mun óum­deilt að atferlið fer hindr­un­ar­lítið frá einni kyn­slóð til ann­arrar)? Þessi sögu­hefð hallar sér að þörf­inni fyrir að skil­greina „okkur“ frá „hinum“ og „við“ erum þá „góða fólkið“, sem teljum „okkur góða fólkið“ yfir þá hafna sem eru „öðru­vísi“ og þar með „hinir“ (afsakið allar gæsalapp­irnar, les­endur góðir, en hér er verið að nota hvers­dags­leg orð yfir það sem kalla má félags­leg fyr­ir­bæri og lýtur að því hvort sam­fé­lag okkar er „gott“ eða „vont“ öllum sem það byggja, eða bara sumum!) Það má minna á, að um miðja síð­ustu öld voru svip­aðir „brand­arar“ sagðir um gyð­inga og í Banda­ríkj­unum hefur mátt heyra álíka „gam­an­mál“ sögð um blökku­menn. Og það þarf ekki einu sinni að nefna kven­fyr­ir­litn­ing­una sem birt­ist í ljósku­brönd­urum og svoköll­uðum skemmti­sögum af eig­in­konum og tann­hvössum tengda­mömmum og öðrum slíkum „kjellíngum“.

Leik­hóp­ur­inn Lotta hefur orðstír fyrir að vera gömlum, við­teknum og íhalds­sömum við­horfum ljár í þúfu. Í verkum sínum hefur hóp­ur­inn einatt tek­ist á við þessi við­horf, og tekið hiklausa afstöðu gegn þeim. Og það er vel – leik­hús á að ögra, leik­hús á að gefa áhorf­endum sínum færi á að þok­ast áleiðis í átt til betra sam­fé­lags, sem skapað verður af betri mann­eskjum. Og í sög­unni um Bakka­bræður tekst höf­und­inum, Önnu Berg­ljótu svo sann­ar­lega að snúa upp á sögu­hefð­ina um Bakka­bræður svo bragð verði að. Í sýn­ing­unni allri, leik­stjórn Þórunnar Lár­us­dóttur, dans­hreyf­ingum Viktoríu Sig­urð­ar­dóttur, tón­list þeirra Baldurs Ragn­ars­sonar, Rósu Ásgeirs­dóttur og Þórðar Gunnars Þor­valds­sonar er tek­ist á við þessi við­horf og grunn­hug­mynd sýn­ing­ar­innar studd og rök­studd: að allir menn eru jafnir – og eng­inn á að vera jafn­ari en annar!

Sýningin um þá Bakka­bræður í með­förum Leik­hóps­ins Lottu byggir á Svarf­dæl­ings­sög­unum (og Gróa kemur þar fyrir sem læknir og helsti gróu­sögu­ber­inn einnig og þannig sett í kór­rétt sam­hengi), en sagan sett í ramma þar sem óðals­bóndi nokkur (Sig­steinn Sig­ur­bergs­son) segir dóttur sinni, Lilju (Viktoría Sig­urð­ar­dóttir) sögur af þeim bræðrum og bjálfum og mark­miðið er vit­an­lega að skemmta sér og henni á sögum af afkára­skap þeirra og heimsku – styrkja og efla hugs­un­ina um mun­inn á „okkur“ og „þeim, hinum“.

Sögurnar lifna við og bræð­urnir og for­eldrar þeirra birt­ast Lilju og þá ger­ist það sem þurrkar út mörk og mæri milli „okkar“ og „hinna“ – Lilja kynn­ist þeim bræðrum, lærir að það er munur á þeim Gísla, Eiríki og Helga og að sög­urnar, sem af þeim eru sagðar eru ekk­ert nema gróu­sögur – eða eins og við myndum orða það á okkar nútíma­máli: fake news!

Þetta er snilld­ar­leg vend­ing á Bakka­bræðra­hefð­inni og hæfir nútím­anum að öllu leyti – enda varð ekki annað fundið á frum­sýn­ing­unni á Lottu­túni en fjöl­mennur áhorf­enda­skar­inn, mis­jafn að aldri, tæki þessum boð­skap vel. Honum var líka svo snyrti­lega og fag­mann­lega komið fyrir í fjörugri sýn­ingu þar sem fjör­leg tón­list, glað­legar dans­hreyf­ingar og hraðar og snjallar skipt­ingar milli atriða héldu athygli áhorf­enda og miðl­uðu boð­skapnum, að slúður um náung­ann er aldrei satt.

Í sýn­ingum Leik­hóps­ins Lottu fer allt vel að lokum. Þegar áhorf­endur rísa úr sætum – eða upp af teppum sínum og upp úr garð­stólum, því hér koma áhorf­endur með sín eigin sæti! – er heim­ur­inn orð­inn ívið betri og við öll ívið betri mann­eskjur. Það gildir líka um Bakka­bræður – þeir hafa í sögu­lok öðl­ast sess á borð við aðra í sam­fé­lag­inu og jafn­réttið hrósar sigri.

Sýningar Leik­hóps­ins Lottu eru fjör­legar, skemmti­legar og vel gerðar. Atburða­rásin er hröð og sögur Lottu hafa jákvæðan boð­skap fram að færa. Það eitt og sér er ærin ástæða til að hvetja alla sem vett­lingi geta valdið að fjöl­menna á Lottutún í Elliða­ár­dal – eða hvar sem Lotta ákveður að reisa leik­mynd sína og hefja sýn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklistargagnrýni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár