Upplýsingalögum verður ekki breytt í takt við vilja Samtaka atvinnulífsins

Umfjöllun um frum­varp for­sæt­is­ráð­herra um breyt­ingar á upp­lýs­inga­lögum, þar sem átti að gera það skylt að leita upp­lýs­inga hjá þriðja aðila, hefur verið hætt af stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Það mun því að óbreyttu ekki verða að lögum.

Kolbeinn Óttarsson Proppé var framsögumaður frumvarpsins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé var fram­sögu­maður frum­varps­ins í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur hætt umfjöllun um frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um breyt­ingar á upp­lýs­inga­lögum. Það var gert eftir að Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, fram­sögu­maður máls­ins í nefnd­inni, lagði það til á fundi hennar í morgun. Afleið­ingar þess eru þær að frum­varpið er þá ekki lengur á dag­skrá og það þarf að leggja það fram að nýju eigi frum­varpið að verða að lögum.

Frá þessu er greint á vef RÚV en þar segir að í bókun Kolbeins vegna þessa hafi sagt að ýmsar spurn­ingar hafi komið fram sem hefðu kallað á umfangs­meiri skoðun en færi væri á að fara í.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um frum­varpið í frétta­skýr­ingu í morgun. Það var lagt fram í mars af for­sæt­is­ráð­herra og þá sagt að til­gangur þess væri að „auka gagn­sæi í atvinnu­lífi og allri stjórn­sýslu til að efla traust almenn­ings á rekstri fyr­ir­tækja, fjár­mála­lífi, stjórn­málum og stofn­unum sam­fé­lags­ins.“

[adspot]For­saga þess að frum­varpið var lagt fram eru athuga­semdir sem Sam­tök atvinnu­lífs­ins skil­uðu inn í fyrra, þegar lögum um upp­lýs­inga­mál var breytt án þess að nokkur þing­maður greiddi atkvæði gegn því. Athuga­semdir þeirra snéru að því að sam­tökin vildi að hinu opin­bera yrði gert skylt að leita upp­lýs­inga hjá þriðja aðila, t.d. skjól­stæð­inga Sam­taka atvinnu­lífs­ins, um hvort þeir vildu að upp­lýs­ingar um þá yrðu gerðar opin­ber­ar. Nýlegt dæmi um slíka þriðja aðila er þegar Kjarn­inn og Við­skipta­blaðið leit­uðu eftir að fá stefnur nokk­urra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á hendur rík­inu þar sem þau fóru fram á yfir tíu millj­arða króna bætur vegna úthlut­unar á mak­ríl­kvóta. Rík­is­lög­maður taldi sér ekki heim­ilt að afhenda stefn­urnar þar sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið reynd­ust því mót­fall­in. Málið var kært til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að stefn­urnar ættu fullt erindi við almenn­ing og skyldu afhent­ar.

Hörð gagnrýni

Fjöl­margir hafa gagn­rýnt frum­varpið harð­lega. Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands sagði að hætt væri við því að með frum­varp­inu yrði „stigið skref til baka“ þar sem að ekki væri tryggt að máls­með­ferð­ar­tími vegna upp­lýs­inga­beiðna myndi ekki lengj­ast verði það að lög­um. Blaða­manna­fé­lag Íslands leggst alfarið gegn sam­þykkt frum­varps­ins og það gerir Félag frétta­manna RÚV einnig.

Þá skil­aði Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál (ÚNU) umsögn í gær þar sem segir að frum­varpið muni gera fram­kvæmd upp­lýs­inga­lag­anna „bæði flókn­ari og óskil­virk­ari“. Ein­boðið sé að verði frum­varpið að lögum muni það valda enn tíð­ari og lengri töfum á afgreiðslu erinda á grund­velli upp­lýs­inga­laga.

[links]Þar segir enn fremur að ÚNU vilji árétta að „sam­bæri­leg ákvæði um aðkomu þriðja aðila að máls­með­ferð stjórn­valds, eins og frum­varpið felur í sér, eru ekki í nor­rænni lög­gjöf um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings. Síð­ast­nefnda atriðið end­ur­speglar enn fremur að sjón­ar­mið sem hafa komið fram opin­ber­lega um að þörf sé á breyt­ingum á upp­lýs­inga­lögum vegna laga[...]um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga, eiga ekki við rök að styðj­ast.“

Sam­tök atvinnu­lífs­ins skil­uðu líka inn umsögn um frum­varpið og lýstu yfir ánægju með það en lögðu líka til frek­ari breyt­ing­ar. Meðal ann­ars vilja sam­tökin að tekin verði upp gjald­­taka fyrir aðgang að upp­­lýs­ingum frá hinu opin­bera. Sá kostn­aður myndi að upp­i­­­stöðu falla á fjöl­miðla sem leggja fram nær allar beiðnir sem hinu opin­bera ber­­ast um upp­­lýs­ing­­ar. Þau vildu líka að tími til að afgreiða beiðni yrði tvö­fald­aður og að þeim sem leit­ast eftir að fá upp­lýs­ingar verði gert að útskýra til­gang beiðn­innar fyr­ir­fram.

For­sæt­is­ráð­herra, sagði í hádeg­is­fréttum RÚV í dag að sér hugn­að­ist ekki hug­myndir Samtaka atvinnu­lífs­ins um gjald­töku vegna upp­lýs­inga­beiðna. „Eftir því sem ég sé þá kalla allar þessar umsagnir á miklu meiri vinnu í þetta mál þannig að ég hef það ekki í for­gangi að þessu máli verði lokið núna. Ég tel að það sýni að við verðum að skoða þetta miklu betur.“

Nú hefur málið verið aflagt, að minnsta kosti sem stendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

upplýsingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár