Frumvarp ráðherra mun gera framkvæmd upplýsingalaga „flóknari og óskilvirkari“

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál gagn­rýnir frum­varp for­sæt­is­ráð­herra um breyt­ingar á upp­lýs­inga­lögum í umsögn sem birt­ist í gær. Verði frum­varpið að lögum muni það valda enn tíð­ari og lengri töfum á afgreiðslu erinda á grund­velli upp­lýs­inga­laga.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði frumvarpið fram í mars.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði frum­varpið fram í mars. Mynd: Bára Huld Beck

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál (ÚNU) segir að frum­varp for­sæt­is­ráð­herra um breyt­ingar á upp­lýs­inga­lögum, sem á að efla traust og auka gagn­sæi, muni gera fram­kvæmd lag­anna „bæði flókn­ari og óskil­virk­ari“. Einboðið sé að verði frum­varpið að lögum muni það valda enn tíð­ari og lengri töfum á afgreiðslu erinda á grund­velli upp­lýs­inga­laga.

Þetta kemur fram í umsögn nefnd­ar­innar um frum­varpið sem birt var í gær. Þar segir enn fremur að ÚNU vilji árétta að „sam­bæri­leg ákvæði um aðkomu þriðja aðila að máls­með­ferð stjórn­valds, eins og frum­varpið felur í sér, eru ekki í nor­rænni lög­gjöf um upp­lýs­inga­rétt almenn­ings. Síð­ast­nefnda atriðið end­ur­speglar enn fremur að sjón­ar­mið sem hafa komið fram opin­ber­lega um að þörf sé á breyt­ingum á upp­lýs­inga­lögum vegna laga[...]um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga, eiga ekki við rök að styðj­ast.“

Brugðist við beiðni Samtaka atvinnulífsins

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði frum­varpið fram í mars. Það er nú til með­ferðar hjá stjórn­sýslu- og eft­ir­lits­nefnd þar sem Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, er fram­sögu­maður nefnd­ar­innar.

[adspot]Frum­varpið er samið í ráðu­neyti for­sæt­is­ráð­herra og sagt að til­gangur þess sé meðal ann­ars að „auka gagn­sæi í atvinnu­lífi og allri stjórn­sýslu til að efla traust almenn­ings á rekstri fyr­ir­tækja, fjár­mála­lífi, stjórn­málum og stofn­unum sam­fé­lags­ins.“

Forsaga þess að frum­varpið var lagt fram eru athuga­semdir sem Samtök atvinnu­lífs­ins skil­uðu inn í fyrra, þegar lögum um upp­lýs­inga­mál var breytt án þess að nokkur þing­maður greiddi atkvæði gegn því. Athuga­semdir þeirra snéru að því að sam­tökin vildi að hinu opin­bera yrði gert skylt að leita upp­lýs­inga hjá þriðja aðila, t.d. skjól­stæð­inga Samtaka atvinnu­lífs­ins, um hvort þeir vildu að upp­lýs­ingar um þá yrðu gerðar opin­berar. Nýlegt dæmi um slíka þriðja aðila er þegar Kjarninn og Við­skipta­blaðið leit­uðu eftir að fá stefnur nokk­urra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á hendur rík­inu þar sem þau fóru fram á yfir tíu millj­arða króna bætur vegna úthlut­unar á mak­ríl­kvóta. Rík­is­lög­maður taldi sér ekki heim­ilt að afhenda stefn­urnar þar sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið reynd­ust því mót­fallin. Málið var kært til úrskurð­ar­nefndar Alþingis sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að stefn­urnar ættu fullt erindi við almenn­ing og skyldu afhentar.

Vildu að gjaldskylda yrði tekin upp

Í því frum­varpi sem for­sæt­is­ráð­herra lagði fram í mars, í þeim til­gangi að taka til­lit til athuga­semda Samtaka atvinnu­lífs­ins, stendur til að gera öflun umsagnar þriðja aðila að meg­in­skyldu sem stjórn­völd geti aðeins vikið frá þegar það er „aug­ljós­lega óþarft.”

Samtök atvinnu­lífs­ins skil­uðu inn umsögn um nýja frum­varpið líka og lýstu yfir ánægju með það en lögðu líka til frek­ari breyt­ingar. Meðal ann­ars vilja sam­tökin að tekin verði upp gjald­taka fyrir aðgang að upp­lýs­ingum frá hinu opin­bera. Sá kostn­aður myndi að uppi­stöðu falla á fjöl­miðla sem leggja fram nær allar beiðnir sem hinu opin­bera ber­ast um upp­lýs­ing­ar. Þau vildu líka að tími til að afgreiða beiðni yrði tvö­fald­aður og að þeim sem leit­ast eftir að fá upp­lýs­ingar verði gert að útskýra til­gang beiðn­innar fyr­ir­fram.

Verður flóknara og óskilvirkara

Ýmsir aðilar hafa sent inn umsagnir og gagn­rýnt frum­varpið. Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands sagði að hætt væri við því að með frum­varp­inu yrði „stigið skref til baka“ þar sem að ekki væri tryggt að máls­með­ferð­ar­tími vegna upp­lýs­inga­beiðna myndi ekki lengj­ast verði það að lögum. Blaða­manna­fé­lag Íslands leggst alfarið gegn sam­þykkt frum­varps­ins og það gerir Félag frétta­manna RÚV einnig.

ÚNU skil­aði síðan í gær umsögn sinni um frum­varpið þar sem það er gagn­rýnt á ýmsan máta. Í henni segir að nefndin telji rétt að árétta að sú breyt­ing sem lögð sé til, um að skylt verði að leita álits þriðja aðila á upp­lýs­inga­beiðnum, sé ein­sýnt að erindum sem stjórn­völdum ber­ast á grund­velli upp­lýs­inga­laga „inn­heimta aukna vinnu starfs­manna og gera fram­kvæmd upp­lýs­inga­laga bæði flókn­ari og óskil­virk­ari.“

Nefndin vekur einnig athygli á því að öflun umsagnar þriðja aðila sé nú þegar ein af helstu ástæðum þess að beiðnir almenn­ings um aðgang að upp­lýs­ingum tefj­ist. „Rétt er að taka fram að þau gögn sem óskað er eftir aðgangi að geta í vissum til­vikum varðað hund­ruð, jafn­vel þús­undir þriðju aðila. í þeim málum þar sem stjórn­völd telja þörf á því að afla umsagnar [...]bregður því oftar en ekki við að þriðji aðili dragi að svara stjórn­vald­inu með þeim afleið­ingum að sú hraða máls­með­ferð upp­lýs­inga­beiðna sem Alþingi hefur stefnt að er fyrir bí.“

Tíðari og lengri tafir

Í ljósi þessa telur ÚNU ein­boðið að verði breyt­ing­ar­til­laga for­sæt­is­ráð­herra að lögum muni það valda enn tíð­ari og lengri töfum á afgreiðslu erinda á grund­velli upp­lýs­inga­laga. Þessu til stuðn­ings er bent á að í upp­lýs­inga­lögum sé þegar, í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum, heim­ild til að hafna beiðni ef með­ferð upp­lýs­inga­beiðni ef álitið er að hún tæki svo mik­inn tíma, eða krefð­ist svo mik­illar vinnu, að ekki væri for­svar­an­legt að verða við henni. „Fyrirséð er að stjórn­völd munu í auknum mæli beita fyrir sig ákvæð­inu verði frum­varpið sam­þykkt og máls­með­ferðin þannig þyngd og vinna við afgreiðslu beiðna aukin.“

[links]Í frum­varp­inu er líka kveðið á um skyldu úrskurð­ar­nefnd­ar­innar til að senda þriðja aðila afrit af úrskurðum nefnd­ar­innar ef hags­munir varða hann. Eins og sakir standa í dag fá ein­ungis þeir sem kæra mál til nefnd­ar­innar, og þeir sem eru kærðir, slíkt afrit. Ástæða þessa er, sam­kvæmt grein­ar­gerð frum­varps­ins, að gefa þriðja aðila færi á að krefj­ast frest­unar rétt­ar­á­hrifa úrskurð­ar­ins en sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum hefur máls­að­ili sjö daga til þess að setja fram slíka kröfu.

Í umsögn ÚNU segir að sá sem á rétt til aðgangs að upp­lýs­ingum sam­kvæmt úrskurði nefnd­ar­innar getur því þurft að bíða eftir því að fá gögn afhent í sjö daga eða þar til aðili hefur tekið ákvörðun um hvort krafa um frestun rétt­ar­á­hrifa er lögð fram og lengur ef slík krafa er lögð fram en nefndin tekur afstöðu til hennar með úrskurði. „Hafa ber í huga að sjö daga frest­ur­inn byrjar ekki að líða fyrr en aðila hefur borist afrit úrskurð­ar­ins. Það blasir því við að fyr­ir­huguð breyt­ing mun tefja afgreiðslu gagna sem úrskurðað hefur verið um aðgang að.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár