Telja að upplýsingar um fjölda sérstakra vegabréfa geti skaðað tengsl við önnur ríki

Utan­rík­is­ráðu­neytið vill ekki segja hversu mörg sér­stök vega­bréf það hefur gefið út til útlend­inga á grund­velli nýlegrar reglu­gerðar. Það telur ekki hægt að úti­loka nei­kvæð við­brögð ótil­greindra erlendra stjórn­valda ef þau frétta af vega­bréfa­út­gáf­unni.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er utanríkisráðherra.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Utan­rík­is­ráðu­neytið telur hættu á að opin­ber umfjöllun um hversu mörg íslensk vega­bréf hafi verið útgefin til erlendra ein­stak­linga á grund­velli nýlegrar reglu­gerðar gæti vakið athygli erlendra stjórn­valda, sér í lagi stjórn­valda í heima­landi þess erlenda ein­stak­lings sem fær útgefið íslenskt vega­bréf af sér­stökum ástæðum. „Ekki er hægt að úti­loka nei­kvæð við­brögð við­kom­andi erlendra stjórn­valda, á alþjóða­vett­vangi, gagn­vart íslenskum hags­munum [...] ef þau frétta af vega­bréfa­út­gáfu til rík­is­borg­ara sem e.t.v. hafa flúið landið vegna ógnar sem þau hafa orðið fyrir.“

Þetta kemur fram í umsögn ráðu­neyt­is­ins sem send hefur verið til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál vegna kæru Kjarnans á synjun ráðu­neyt­is­ins um að láta honum í té upp­lýs­ingar um hversu mörg vega­bréf hafi verið útgefin á grund­velli reglu­gerð­ar­innar. Þar segir að afhend­ing upp­lýs­ing­anna sem um ræði gæti haft skað­leg áhrif á tengsl Íslands við önnur ríki sem myndi stofna hags­munum íslenska rík­is­ins í hættu. „Þá er ekki hægt að úti­loka að umfjöllun um útgáfu íslenskra vega­bréfa af sér­stökum ástæðum geti haft nei­kvæð áhrif á til­trú og trú­verð­ug­leika íslenskra vega­bréfa.“

Kjarninn hefur sent úrskurð­ar­nefnd­inni athuga­semdir við umsögn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem öllum for­sendum hennar um synjun á umbeð­inni töl­fræði er hafnað.

Má láta útlending hafa neyðarvegabréf

Þann 26. apríl und­ir­rit­aði ráðu­neyt­is­stjóri í dóms­mála­ráðu­neyt­inu reglu­gerð fyrir hönd dóms­mála­ráð­herra. Reglu­gerð­ar­breyt­ingin hafði það í för með sér að Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra má nú óska þess að Útlend­inga­stofnun gefi út vega­bréf til útlend­ings „ef sér­stakar ástæður eru fyrir hend­i“.

[adspot]Í reglu­gerð­inni er sér­stak­lega tekið fram að hægt sé að láta útlend­ing fá slíkt neyð­ar­vega­bréf jafn­vel þótt hann sé ekki lög­lega búsettur hér­lend­is. Ut­an­rík­is­ráð­herra má nú líka fela sendi­skrif­stofum Íslands og kjör­ræð­is­mönnum að gefa út neyð­ar­vega­bréf til útlend­ings til allt að eins mán­að­ar.

Kjarn­inn óskaði í síð­asta mán­uði eftir upp­lýs­ingum um hversu mörg vega­bréf hefðu verið gefin út á þeim tæpa mán­uði sem lið­inn var síðan að reglu­gerðin tók gildi og hvenær þau voru útgef­in.

Ráðu­neytið neit­aði að svara þeirri fyr­ir­spurn með vísum í 9. og 10. grein upp­lýs­inga­laga. Kjarninn telur að hvorug greinin eigi við um þá upp­lýs­inga­beiðni sem send var, enda snýst hún um óper­sónu­grein­an­lega töl­fræði.

Fordæmi er fyrir því að utan­rík­is­ráðu­neytið veiti per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar um ein­stak­linga sem hafa fengið sér­stök vega­bréf. Það gerð­ist haustið 2005 þegar Mörður Árna­son, þáver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurði Geir H. Haarde, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, um þá ein­stak­linga sem höfðu ann­ars vegar diplómat­ísk vega­bréf og hins vegar svokölluð þjón­ustu­vega­bréf. Geir birti lista með nöfnum allra þeirra ein­stak­linga í svari við skrif­legri fyr­ir­spurn Marðar á Alþingi.

Sett í samhengi við Pussy Riot

Rúmum tveimur vikum eftir að reglu­gerð­ar­breyt­ingin var gerð, þann 11. maí 2022, birt­ist umfjöllun í New York Times um að íslenski lista­mað­ur­inn Ragnar Kjart­ans­son hefði aðstoðað hina rúss­nesku Mariu Alyok­hina, aðgerð­ar­sinna og liðs­konu rúss­nesku pön­k­rokksveit­ar­innar Pussy Riot, á flótta sínum frá Rúss­landi.

Í umfjöll­un­inni kom fram að Ragnar hefði fengið ónefnt Evr­ópu­land til að gefa út ferða­skil­ríki sem veitti Alyok­hina sömu stöðu og íbúar Evr­ópu­sam­bands­ins. Ferða­skil­ríkj­unum var smyglað inn til Hvíta-Rúss­lands svo hún gæti notað þau til að kom­ast þaðan og yfir til Lit­há­ens.

Mbl.is og fleiri fjöl­miðlar hefur sett reglu­gerð­ar­breyt­ing­una frá því í apríl í sam­hengi við þetta mál.

Hvorki Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra né utan­rík­is­ráðu­neytið hafa viljað tjá sig um hvort Ísland sé ríkið sem hjálp­aði Alyok­hinu með því að láta hana hafa ferða­skil­ríki sem veittu henni sömu stöðu og aðrir íbúar Evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

upplýsingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár