Neita að upplýsa um fjölda útgefinna neyðarvegabréfa

Nýlega var reglu­gerð sam­þykkt í dóms­mála­ráðu­neyti sem veitir utan­rík­is­ráð­herra heim­ild til að óska eftir því að ÚTL gefi út vega­bréf til útlend­ings ef sér­stakar ástæður eru fyrir hendi. Utan­rík­is­ráðu­neytið upp­lýsir ekki um fjölda útgef­inna vega­bréfa.

Frá utanríkisráðuneytinu við Rauðarárstíg.
Frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu við Rauð­ar­ár­stíg. Mynd: Bára Huld Beck

Utan­rík­is­ráðu­neytið telur sér ekki fært að svara fyr­ir­spurn Kjarnans um fjölda vega­bréfa sem gefin hafa verið út á grunni reglu­gerðar sem var breytt í apríl. Í svari frá ráðu­neyt­inu segir að ekki sé hægt að svara fyr­ir­spurn­inni með vísan til 9. og 10. grein upp­lýs­inga­laga en grein­arnar fjalla um tak­mark­anir á upp­lýs­inga­rétti vegna einka­hags­muna ann­ars vegar og tak­mark­anir á upp­lýs­inga­rétti vegna almanna­hags­muna hins vegar.

Þann 26. apríl var í dóms­mála­ráðu­neyt­inu sam­þykkt breyt­ing á reglu­gerð nr. 560/2009 um íslensk vega­bréf en tvær greinar bætt­ust við reglu­gerð­ina í kjöl­far breyt­ing­ar­innar. Fyrri greinin veitir utan­rík­is­ráð­herra heim­ild til að óska eftir að Útlend­inga­stofnun gefi út vega­bréf til útlend­ings ef sér­stakar ástæður eru fyrir hendi.

Getur gilt í eitt ár

„Í því til­viki getur Útlend­inga­stofnun veitt slíkt vega­bréf til útlend­ings þótt við­kom­andi upp­fylli ekki kröfu 16. gr. um að hann sé lög­lega búsettur á Íslandi. Gildi vega­bréfs fyrir útlend­ing má binda við til­tekið svæði. Gild­is­tími vega­bréfs ræðst af þeim ástæðum sem gera útgáfu þess nauð­syn­lega en skal þó aldrei vera lengri en tólf mán­uðir,“ segir í fyrri grein­inni sem bætt var við reglu­gerð­ina.

Sú síð­ari veitir utan­rík­is­ráð­herra heim­ild til að fela sendi­skrif­stofum Íslands og kjör­ræð­is­mönnum að gefa út neyð­ar­vega­bréf til útlend­inga ef sér­stakar ástæður eru fyrir hendi og að fengnu sam­þykki útlend­inga­stofn­unar. Hámarks­gild­is­tími slíkra vega­bréfa er einn mán­uður en ræðst ann­ars „af þeim ástæðum sem gera útgáfu þess nauð­syn­lega“.

Kjarninn fal­að­ist eftir upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um útgáfu vega­bréfa á grunni þess­ara breyt­inga og sendi ráðu­neyt­inu almenna fyr­ir­spurn í tveimur liðum. Spurn­ing­arnar sem sendar voru til ráðu­neyt­is­ins voru eft­ir­far­andi: „Hversu mörg vega­bréf hafa verið gefin út á grunni þess­arar reglu­gerð­ar­breyt­ingar?“ og „Hvenær voru þau vega­bréf gefin út?“

Mikilvægir einka- og almannahagsmunir takmarki aðgengi

Líkt og áður segir sá ráðu­neytið sér ekki fært að svara fyr­ir­spurn­inni á grunni 9. og 10. greinar upp­lýs­inga­laga og upp­lýs­inga­beiðni Kjarnans var þar af leið­andi synjað. Þá var í svar­inu bent á kæru­heim­ild til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mála en kæru­frestur er 30 dagar.

Í 9. grein upp­lýs­inga­laga er fjallað um tak­mark­anir á upp­lýs­inga­rétti vegna einka­hags­muna en hún hljóðar svo: „Óheimilt er að veita almenn­ingi aðgang að gögnum um einka- eða fjár­hags­mál­efni ein­stak­linga sem sann­gjarnt er og eðli­legt að leynt fari, nema sá sam­þykki sem í hlut á. Sömu tak­mark­anir gilda um aðgang að gögnum er varða mik­il­væga [virka] fjár­hags- eða við­skipta­hags­muni fyr­ir­tækja og ann­arra lög­að­ila.“

Í 10. grein upp­lýs­inga­laga er fjallað um heim­ild til að tak­marka aðgang almenn­ings að gögnum þegar mik­il­vægir almanna­hags­munir krefj­ist. Greinin er í sex liðum og þar segir að hafi gögn að geyma upp­lýs­ingar um eft­ir­far­andi, þá sé heim­ilt að tak­marka aðgang að þeim:

  1. öryggi rík­is­ins eða varn­ar­mál,
  2. sam­skipti við önnur ríki eða fjöl­þjóða­stofn­anir,
  3. efna­hags­lega mik­il­væga hags­muni rík­is­ins,
  4. við­skipti stofn­ana og fyr­ir­tækja í eigu ríkis eða sveit­ar­fé­laga að því leyti sem þau eru í sam­keppni við aðra,
  5. fyr­ir­hug­aðar ráð­staf­anir eða próf á vegum hins opin­bera ef þau yrðu þýð­ing­ar­laus eða skil­uðu ekki til­ætl­uðum árangri væru þau á almanna­vit­orði,
  6. umhverf­is­mál ef birt­ing gagn­anna getur haft alvar­leg áhrif á vernd þess hluta umhverf­is­ins sem upp­lýs­ing­arnar varða, t.d. heim­kynni fágætra teg­unda líf­vera, steinda, stein­gerv­inga og berg­myndana.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár